Fréttablaðið - 12.11.2009, Page 43
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 7nærfatnaður & náttföt ● fréttablaðið ●
Garðastræti 17
Í undirfataversluninni Línserí
er boðið upp á frönsk og ítölsk
nærklæði og náttföt af bestu
gerð.
„Íslenskar konur eiga að geta keypt
sér úrvalsundirfatnað innan land-
steinanna. Þær eiga það sannar-
lega skilið. Þær eiga ekki að þurfa
að fara til útlanda til þess,“ segir
Sif Jónsdóttir, sem ásamt Katr-
ínu systur sinni opnaði undirfata-
verslunina Línserí í Garðastræti
17 sumarið 2008.
Línsérí leggur áherslu á vönduð
vörumerki. „Við erum með topp-
inn á undirfötum í dag: La Perla
frá Bologna á Ítalíu. Kjörorðið
hjá Ada Masotti, sem stofnaði La
Perla, var að fórna aldrei gæðum á
efni og hönnun fyrir verð. Allt sem
frá La Perla kemur, hvort sem það
eru náttkjólar eða -föt, undirkjólar
eða undirföt, ber þess skýr merki,“
segir Sif og tekur sem dæmi að
ákveðinn hluti undirfatnaðarins sé
úr silki og alsettur ítölskum blúnd-
um. „Þetta eru einstaklega falleg,
vönduð og rómantísk undirföt.“
Þá er Línsérí með nýjasta nýtt í
undirfatnaði frá París. „Við erum
með undirföt, sokkabuxur, sokka-
bönd og annað frá Chantal Thom-
ass sem er mjög „chic“. Ungu
stelpurnar kaupa mikið af Chantal
Thomass en annars hentar þetta
konum á öllum aldri. Fyrirtækið
heitir eftir stofnanda þess, sem
enn í dag hannar allt sjálf. Í versl-
uninni eru líka flottar regnhlífar
frá Chantal Thomass sem eru frá-
bærar til gjafar.“
Sif segir að fyrirtækin La Perla
og Chantal Thomass hafi verið
stofnuð af konum sem byrjuðu með
lítinn rekstur heima hjá sér sem
síðan hefur þróast út í umsvifa-
mikil fyrirtæki. Bæði njóti mik-
illar velgengni sem megi þakka
þeirri alúð sem konurnar hafa lagt
í hönnun sína.
Línsérí leggur áherslu á ein-
staklingsbundna þjónustu. „Hér
er opið þriðjudaga til föstudaga
frá klukkan 11 til 18 og á laug-
ardögum frá 11 til 16. Í desem-
ber verður opið lengur. Ef ekki
hentar fólki að versla þegar opið
er, getur fólk hringt og fengið að
koma eftir lokun. Við tökum vel á
móti einstaklingum, klúbbum eða
pörum, þar sem herrann getur
sopið á koníaki á meðan frúin
mátar falleg undirföt. Enda er
þetta gjöf sem gleður bæði.“
Þess skal getið að þeir sem ger-
ast aðdáendur Línsérí á Facebook
fyrir 10. desember fara í lukku-
pott. Einnig lenda í lukkupottin-
um þeir sem þegar eru á póst-
lista hjá Línsérí. Dregið verður
15. desember og fær vinningshafi
undirfatasett frá Chantal Thom-
ass að eigin vali.
Gjöf sem gleður bæði
Línsérí er í Garðastræti 17, við hliðina á Klausturvörum, verslun með vörur unnar af
munkum og nunnum í Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● NÆRFÖTIN UTAN YFIR Almenn hefð er
fyrir því að vera í nærfatnaði innan klæða. Þó hafa
ólíklegustu menn reyndar tekið upp á því að klæð-
ast honum utan yfir. Poppsöngkonan Madonna er
sjálfsagt einna þekktust þeirra sem það hafa stundað,
en hún hefur verið iðin við að koma fram í nærfatnaði
einum klæða eða þá utan yfir ýmsum öðrum fatnaði.
Sölufulltrúi:
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Laugardaga