Fréttablaðið - 12.11.2009, Síða 60
44 12. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
bio@frettabla-
Hinn 76 ára leikari Michael Caine vill að
ungir Bretar verði kallaðir í herinn eins
og gert var á árum áður. „Það ætti að
vera einhver allsherjaráætlun í gangi til
að endur mennta þessi ungmenni,“ sagði
Caine, sem barðist á sínum tíma í Kóreu-
stríðinu. „Þeim finnst öllum eins og þjóð-
félagið hafi níðst á þeim. Það ætti að setja
þau í herinn í sex mánuði. Þar læra þau að
verja landið sitt og þau tilheyra því. Síðan
þegar krakkarnir ljúka herskyldunni
líður þeim frekar eins og þeir tilheyri
einhverju í stað þess að hugsa sífellt um
ofbeldi,“ sagði leikarinn.
Nýjasta mynd Caines nefnist Harry
Brown og fer hún í almennar sýningar í
Bretlandi á morgun. Þar leikur hann fyrr-
verandi hermann sem þarf að glíma við
eiturlyfja- og glæpagengi sem vaða uppi í
hverfinu hans í London.
Caine vill herskyldu á ný
MICHAEL CAINE Breski leikarinn vill að ungir landar
sínir verði kallaðir í herinn í sex mánuði.
> SNILLINGURINN WILL
Framleiðslufyrirtæki Wills
Smith er að undirbúa nýja
kvikmynd byggða á bók
Daniels Keyes, Flowers
for Algernon. Bókin fjall-
ar um heimskingja sem
gengst undir tilraunir sem
breyta honum í snilling.
Líklegt má telja að Smith
fari með aðalhlutverkið.
Rómantíska gamanmyndin My Life
in Ruins og spennumyndin Horse-
men verða frumsýndar á morgun.
My Life in Ruins fjallar um konu
sem ferðast til Grikklands til að
gerast leiðsögumaður með það að
leiðarljósi að ferðast um landið
og heimsækja gamlar heimaslóð-
ir. Fljótlega fer hún að sjá lífið í
allt öðru ljósi með ferðamanna-
hópi sínum sem hún myndar traust
tengsl við. Nina Vardalos, sem sló í
gegn í myndinni My Big Fat Greek
Wedding, fer með aðalhlutverkið.
Richard Dreyfuss er einnig í einu
aukahlutverkanna.
Í Horsemen leikur Dennis Quaid
rannsóknarlögreglumanninn Aidi-
an Breslin. Lítið hefur gengið upp
hjá honum að undanförnu og er
hann bitur út í lífið og tilveruna.
Hann hefur nýlega misst konu sína
og nær litlum tengslum við syni
sína. Hann tekur að sér mál þar
sem röð hrottalegra morða hefur
verið framin og skyndilega tekur
líf hans allt aðra stefnu. Hann
kemst að því að hann hefur tengsl
við fórnarlömbin og að morðin eru
byggð á spádómi Biblíunnar um
reiðmennina fjóra sem leiða heims-
endi á eftir sér.
Rómantík og morð
MY LIFE IN RUINS Nina Vardalos fer með aðalhlutverkið í rómantísku gamanmynd-
inni My Life in Ruins.
Þjóðverjinn Roland
Emmerich leikstýrir stór-
slysamyndinni 2012 sem
verður frumsýnd á morgun.
Hann á að baki aðrar mynd-
ir í svipuðum dúr en sjálfur
býst hann ekki við að geta
toppað þessa.
Í 2012 verða sólargos af áður
óþekktri stærðargráðu til þess að
jarðskorpan gliðnar með tilheyr-
andi jarðskjálftum og flóðum. Mitt
í öllum látunum þarf hinn fráskildi
faðir Jackson Curtis (John Cusack)
að bjarga fjölskyldu sinni og reyn-
ist það hægara sagt en gert.
Hugmyndin að baki 2012 var að
búa til nútímaútgáfu af sögunni
um örkina hans Nóa. Fyrst um
sinn vildi Roland Emmerich ekki
taka þátt í verkefninu, enda þegar
búinn að gera tvær stórslysamynd-
ir; Independence Day og The Day
After Tomorrow. Á endanum tókst
að sannfæra hann um ágæti þess-
arar nýju myndar. „Ég setti mér
það markmið að gera eitthvað sem
væri svo ótrúlegt að enginn gæti
leikið það eftir í langan tíma, ekki
einu sinni ég,“ sagði Emmerich.
„Maður á aldrei að segja aldrei en
þetta verður líklega síðasta stór-
slysamyndin mín.“
Hann segir að brellurnar í mynd-
inni hafi auðveldað sér verkið til
mikilla muna. „Þegar ég gerði The
Day After Tomorrow sá ég að þessi
frábæra tölvutækni var að ryðja
sér til rúms. Núna er hægt að gera
allt í tölvu og engin módel eru leng-
ur nauðsynleg. Maður getur fram-
kvæmt allt sem hugurinn girnist.“
Roland Emmerich fæddist í
Stuttgart árið 1955. Hann gekk
í kvikmyndaskóla í München og
þótti fljótt afar efnilegur. Holly-
wood bankaði á dyrnar og fyrsta
stórmyndin hans var Universal
Soldier með belgíska buffinu Jean-
Claude Van Damme í aðalhlutverki.
Í framhaldinu leikstýrði hann
ævintýramyndinni Stargate. Þrátt
fyrir að þessar tvær myndir gengju
vel voru það smámunir miðað við
velgengni næstu tveggja mynda.
Geimveruhasarinn Independence
Day naut gríðarlegra vinsælda úti
um allan heim og gerði Emmerich
að einum eftirsóttasta leikstjóran-
um í Hollywood. Næst var röðin
komin að bandarísku útgáfunni af
japanska skrímslinu Godzilla og sú
mynd hlaut góða aðsókn þrátt fyrir
misjafna dóma.
Emmerich breytti um gír fyrir
næsta verkefni sitt, sem var stríðs-
myndin The Patriot með Mel Gibs-
on í aðalhlutverki, og fékk hún
einnig fína aðsókn. Henni fylgdi
hann eftir með stórslysamynd-
inni The Day After Tomorrow,
sem gerðist eftir að ný ísöld hafði
skollið á. Áður en Emmerich réðst
í gerð 2012 sendi hann frá sér enn
eina risamyndina, 10.000 BC. Þótt
gagnrýnendur hafi ekki verið sér-
lega hrifnir af henni, eins og raun-
in hefur verið með margar myndir
hans, flykktist fólk á hana í bíó.
Enn ein stórslysamyndin
ROLAND EMMERICH Þýski leikstjórinn Roland Emmerich við tökur á stórslysamyndinni 2012 sem kemur í bíó á morgun.
HELSTU MYNDIR
EMMERICH:
2012 (2009)
10.000 BC (2008)
The Day After Tomorrow (2004)
The Patriot (2000)
Godzilla (1998)
Independence Day 2004
Stargate (1994)
Universal Soldier (1992)
Kvikmynd Einars Þórs Gunnlaugs-
sonar, Heiðin, verður sýnd í fimm
borgum í þremur heimsálfum í
nóvember og desember. Myndin
ferðast til Indlands þar sem hún
tekur þátt í Indian Internation-
al Film Festival í flokknum Male
Voice. Þetta verður í fyrsta sinn
sem íslensk mynd er sýnd á þess-
ari hátíð, sem verður haldin 15.
til 22. desember. Heiðin verður
einnig sýnd í Scandinavia House
í New York í desember. Þar verða
níu aðrar íslenskar myndir sýnd-
ar í tilefni af þrjátíu ára afmæli
Kvikmyndasjóðs Íslands. Að auki
verður Heiðin tekin til sýninga
á norrænum kvikmyndadögum í
Minneapolis í Bandaríkjunum 21.
til 23. nóvember ásamt myndunum
Skrapp út, Góðir gestir, Bræðra-
bylta og Síðasti bærinn í dalnum.
Sömuleiðis verður myndin sýnd í
Kulturhus í Berlín og í kvikmynda-
hátíð í Terni á Ítalíu þar sem
þemað er Fólk og trú.
Með aðalhlutverkin í Heiðinni,
sem var frumsýnd hérlendis í
fyrra, fara Gunnar Eyjólfsson,
Gísli Pétur Hinriksson, Jóhann
Sigurðarson og Ísgerður Gunn-
arsdóttir. Myndin hefur verið
sýnd á hinni alþjóðlegu A-hátíð
Shanghai International Film Festi-
val og hlotið lofsamlega dóma í
hinu virta kvikmyndariti Variety.
Leikstjórinn Einar Þór er um þess-
ar mundir að ljúka við gerð heim-
ildarmyndarinnar Norð Vestur,
sem segir m.a. frá snjóflóðunum
á Vestfjörðum 1995. Á næsta ári
mun hann taka sér stutt hlé frá
kvikmyndum og skrifa fyrir leik-
hús, en hann hefur fengið styrk úr
leikritunarsjóði Þjóðleikhússins til
að skrifa verkið Pinsilon.
Sýnd í fimm borg-
um og heimsálfum
HEIÐIN Kvikmyndin Heiðin verður sýnd í fimm borgum í þremur heimsálfum á
næstunni.
Jennifer Aniston mun leika á
móti stjörnunum úr The Hang-
over, Bradley Cooper og Zack
Gaifianakis, í rómantísku gaman-
myndinni You Are
Here. Leikstjóri
verður Matthew
Weiner, höfund-
ur sjónvarps-
þáttanna Mad
Men. Langt er í
að myndin fari á
hvíta tjaldið því
tökur hefjast
ekki fyrr en
2011.
Rómantísk
Aniston
JENNIFER ANISTON