Fréttablaðið - 20.11.2009, Page 31
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
AUÐUR FYRR OG NÚ er yfirheiti útgáfuteitis
sem fram fer í Þjóðminjasafninu klukkan 13 á laug-
ardag. Þar verður fagnað útkomu sögulegu skáld-
sögunnar Auðar eftir Vilborgu Davíðsdóttir en í
bókinni fjallar hún um ævi landnemans Auðar
djúpúðgu. Dagskráin er öllum opin.
Samuel Kamran Gill hefur mikla
ánægju af eldamennsku. Hann fær
útrás fyrir henni á hverjum degi
enda er hann yfirmatreiðslumað-
ur á Tandoori, nýjum indverskum
veitingastað í Skeifunni 11. Hann
er ættaður frá Austur-Pakistan við
landamæri Indlands og er indversk
matargerð því í blóð borin.
„Ég flutti til Íslands fyrir ellefu
árum og á íslenska konu og þrjú
börn. Það fjórða er síðan vænt-
anlegt í dag en konan mín verður
sett af stað í býtið,“ segir Samuel.
Á Tandoori eldar hann kjúklinga-,
lambakjöts-, fiski- og grænmetis-
rétti en á staðnum er lögð áhersla
á náttúrulegar eldunaraðferðir og
framandi keim ásamt því sem lagt
er upp úr lágu verði. Staðurinn
var opnaður fyrir viku og hefur
Samuel varla haft undan síðan.
„Viðtökurnar hafa verið framar
vonum.“ vera@frettabladid.is
Fæst við framandi keim
Samuel Kamran Gill stendur yfir pottunum á nýja indverska veitingastaðnum Tandoori og hefur ánægju
af. Hann mun þó taka sér frí frá störfum í dag enda á hann von á sínu fjórða barni.
Á Tandoori er bæði hægt að borða á staðnum og taka með sér. Sé borðað á staðnum er hægt að ráða styrkleika matarins og
kemur það Samuel á óvart hversu margir velja sterkt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1 kg beinlaus kjúklingur (skorinn í
strimla)
2 stk. laukur
4 stk. hvítlauksrif
2 msk. rifinn engifer
3 stk. tómatar
1½ tsk. salt
½ tsk. madras curry
½ tsk. turmeric
¼ tsk. garam masala
¼ tsk. kúmenduft
½ tsk. kóríander
½ bolli vatn
Matarolía
Laukurinn smátt skorinn og steiktur
í hæfilegri olíu þar til hann er
gullinbrúnn. Hvítlaukur rifinn ásamt
engiferrót og tómötum og maukað
saman í matvinnsluvél. Maukinu
síðan bætt saman við laukinn
á pönnunni. Látið malla í tvær
mínútur. Þá er kryddinu bætt út í og
látið malla í tvær mínútur í viðbót.
Hálfum bolla af vatni bætt út í og
suðan látin koma upp. Að síðustu er
kjúklingurinn settur út í og rétturinn
látinn sjóða í 12-15 mínútur. Hrærið
reglulega í pottinum. Borið fram
með basmati-hrísgrjónum og fersku
salati.
KJÚKLINGUR PUNJABI
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Snitzel
samloka
Kaffi tería Perlunnar á 4. hæð
Snitzel samloka með súrsuðum rauðlauk,
fersku káli og piparrótarsósu
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 19. nóvember
Tilboð mán.-þri. 6.890 kr. — Verð: 7.890 kr.
Villibráðarhlaðborðinu lýkur 18. nóvember
Tilboð mán.-þri. 7.290 kr. — Verð: 8.290 kr.
Aðeins
790 kr.