Vikan


Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 5

Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 5
SIRA JAKOB JOIMSSOIM: Friða rh öfð i ngi n n . • - 1 þjónar friðarins ,,Dýrð sje Chiði i upphceöum, og friður á jörðu með þeim mönnum, er liann hefir velþóknun á“. (Lúk. 2, 14) Friðarverðlaun. Belgiski munkurinn Georges Pire hefir fengið friðarverðlaun Nóbels. Næstur á undan hon- um fjekk Albert Schweitser þessi verðlaun. Annar er kaþ- ólskur munkur, hinn frjáls- lyndur, lútherskur guðfræðing- ur og læknir. Annar hefir látið sjer annt um flóttamenn í Evr- ópu, hinn um svertingja í Afr- íku, auk þess sem hann hefir látið mjög til sin heyra, í þeim tilgangi að vara þjóðirnar við atóm-styrjöld. Báðir eru þeir framkvæmdamenn, í þágu friðar á jörðunni. Báðir finna þeir hvöt hjá sjer til að þjóna hinum þjáðu, og byggja upp heilbrigt mannlíf á jörðu hjer. Friðarhöfðinginn. Hver hefir haft áhrif á þessa menn ? f einu orði sagt: KRIST- UR. Hann er uppsprettan, sem þeir hafa ausið af. Því verð- ur ekki á móti mælt, að það er kenning Krists og eftirdæmi, sem hefir knúið þessa menn til að vera þjóna friðarins. Hann er friðarhöfðinginn, sem kallar þá til starfsins. Eins og ljósið fær næringu sína af kertinu, þannig hefir sá logi kærleikans, er brennur í brjósti slíkra manna, fengið sína næringu frá friðar- höfðingjanum, Jesú frá Naza- ret. Hvaða friðarverðlaun fær Jesús frá Nazaret? Sjálfsagt þykir þeim Pire og Schweitser og öðnnn slíkum mönnum vænt um þá viðurkenn- ingu, sem felst í friðarverðlaun- unum. En vænna þykir þeim vafalaust um, að eiga samherja víðsvegar um heiminn, sem vinna í sama anda og þeir. Veit- ing friðarverðlaunanna og há- tíðahöld í því sambandi eru hins vegar eðlilegur þakklætisvottur af mannanna hálfu. En er þá ekki rökrjett og eðlilegt að votta honum heiður og þökk, sem hefir gert þessa menn að því, sem þeir eru. — Væri það ekki undarlegur hugsimarhátt- ur, ef vjer vildum heiðra þjóna friðarins, en ljetum eins og friðarhöfðinginn væri ekki til? Sem betur fer hugsar hinn kristni heimm’ ekki þannig. Fæðingarhátíð Krists, jólin, og aðrai' kristnar hátíðir og helg- ar eiga rót sína að rekja til þess, að lærisveinar. hans og vinir vilja heiðra starf hans. Friðarhátíðia. Jóla-hátíðin á einnig annan tilgang en þann að minnast þess, að Jesús fæddist á jörð- ina. Hún er einnig haldin til þess, að fleiri og fleiri geti orð- ið fyrir áhrifum af honum, — því að sá er munurinn á honum og þjónum hans, að hann starf- ar ekki aðeins um nokkurra ára bil á jörðinni, heldur svarar bænum mannanna öld eftir öM. Þjónarnir verðskulda þökk, en hann sjálfur tilbeiðslu, því að hann er guðdómleg vera með guðlegu valdi og kærleika. Sum- ir tala um jólin með fyrirlitn- ingu, og segja, að jólin sjeu eitthvað allt annað en þau eiga að vera. En hver getur bannað þjer að eiga sönn jól, ef þú vilt ? Þú ert frjáls að því að fara til messu, lesa jólaguðspjallið, biðjast fyrir, og þú er frjáls að því að gleðja aðra. Hvað sem menn segja, hafa heilög jól alltaf áhrif á þá, sem taka þátt í þeim. Jólin eru eins og dýr- indis ljósakróna, sem ghtrar af gulli og gimsteinum, en það, sem gefur henni gildi sitt, er þó ekki skrautið og viðhöfnin, heldur ljósið, sem í henni skín, En það ljós er áhrif Krists sjálfs, — hin sömu áhrif og friðarvinirnir höfðu orðið fyrir. Þjónn friðarins Til eru styrjaldir, sem ekki eru heimsstyrjaldir. Allsstaðar eru árekstrar, á heimilum, inn- an stjetta, meðal samstarfs- manna og nágranna. Það er því allstaðar þörf fyrir þjóna frið- arins og kærleikans. Ef þú á annað borð vilt velja þjer það hlutskifti að vera í hópi þeirra, sem vinna að friði, hvað er þá eðlilegra, en að þú leitir þeirra áhrifa, sem Pire og Schweitser urðu fyrir. Það er ekki víst, að þú fáir önnur friðarverðlaun en þau, sem fólgin eru í þjón- ustunni sjálfri, en þau eiga að nægja þjer. Gerðu það að bæn þinni á þessum jólum, að frið- arhöfðinginn hafi þau áhrif á hugsun þína og breytni, að einnig þú verðir friðarins þjónn — á þínum stað. GLEÐILEG JÓL! VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.