Vikan


Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 19

Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 19
ég vissi að það er ekki til verri glæpur á íslandi en að skrifa bækur svo ég sagði þeim, að mér hefði verið falið að telja pokana. Það létu þeir sér vel lika, en undruðust samvizkusemi mína í þessu embætti. Það er eins og þetta sé meir en litið innlegg í flatningsborðsdeilu þeirra Jónasar Árnasonar frá því í fyrra. Já, flatningsborðsdeilan. Þar voru nú báðir aðilar dálítið einstrengingslegir. Það er enginn leið að gefa upp neinar formúlur um svona nokkuð. Og fjarstætt er það nauðsynlegt fyrir rithöfund að stunda endilega r.jóróðra eða landbúnaðar- störf. Samband höfundarins \ið lífið cins og þeir kom- ast að orði finnst mér vera svo sjálfsagður hlutur. Það er ekki nokkur leið að sneiða hjá því — það er ails staðar. Auðvitað verður hver og einn að leysa þetta eftir sínu höfði. Við höfum átt höfunda úr öllum stéttum. Náttúrlega hefur bóndi t, d. betri aðstöðu til að skrifa en verkamaður, sem bund- inn er sínum skipulagða vinnutima. Hinn getur farið frá þegar ho'num býður svo við að horfa og látið það svo koma niður á sér með því að vinna frameftir r.æsta dag. Já, erum við ekki komnir þarna að annari spurningu, sem máli skiptir. Heldurðu að hin aukna skipulagning nútímans sé í andstöðu við listamanninn eða þvert á móti hægt að skipuleggja listamanninn í þágu þjóð- félagsins ? Listamaðurinn hlýtur alltaf að vera í eðli sínu upp á móti þjóðfélaginu — hann hlýtur fyrst og fremst að vera bundinn því, sem hann telur satt en ekki hinu, sem þjóðfélagið telur satt. Hann er í sjálfu sér einstak- lingshyggjumaður. Allar tilraunir til að skipuleggja hann eru dæmdar til að mistakast. Ég man ekki eftir því að neinn gagnrýnandinn hafi komið að þvi, að bók mín „Sá fordæmdi" er ekki fyrst og fremst sagnfræði heldur skrifuð gegn því pólitíska ofstæki sem nú er ríkjandi og samúðarleysinu. Því hver maður hefur eitthvað sér til ágætis þegar hann er skoðaður með vinsemd. Og talið berst aftur að stöðu rithöfundarins og snýst nú um listamanna- laun m. a. Hugmyndir verða til hvar sem er HVERNIG fer það saman að stunda skrifstofu- störf og tónsmíðar? eða leiktjaldamálun? Háir það þér ekki að þurfa að skenkja skrifstofunni kjarn- ann úr deginum ? — Þvi er til að svara, að um af minni innri þörf en útfærslu tjaldanna gæti ég ekki innt af hendi vegna atvinnu minnar annarsstað- ar. Meðal annarra orða, fyrst við erum að rabba um skipt- ingu starfs þessa sem á einsog ég hef áður tekið fram í öðru blaðaviðtali, að mig minnir, þá reyni ég aldrei að komponera. Hins- vegar detta í mig lagstúfar af og til og þá engu síður við daglegt staf heldur en annarsstaðar. Um leiktjaldamálningu er sama að segja að hug- myndirnar geta orðið til hvar sem maður er. Eigi maður hinsvegar að starfa við að mála ieiktjöld, ekki aðeins að skapa þau, á það ekki lengur samleið með annarri atvinnu. Til dæmis geri ég eftir vinnutimann í skrifstofunni oft frumdrög að leiktjöld- ensku er kallað Theatrical design, það er sköpun tjalda og Theatrical painting sem er útfærsla þeirra, þætti mér vænt um að þú eða les- endur Vikunnar gætu fundið orð sem næðu yfir þessi hugtök, þar sem við notum orðið leiktjaldamálun um hvorttveggja svo óskylt sem það er. — Mundir þú ekki heldur vilja helga þig alveg listinni eða hefurðu þetta lag á vegna tilbreytingarinnar ? — Að sjálfsögðu hefði ég helzt kosið að gefa mig óskiptan að því starfi sem ég í upphafi ætlaði mér Framhald á bls. 27. Líklega er enginn stétt önnur en rithöfundar sem mundi láta bjóða sér annað eins, segir Kristján. Hvað heldurðu til dæmis að verkamenn segðu ef þeir væru flokkaðir í gæðaflokka og hefðu mismunandi kaup eftir því. Það er afar erfitt að fá listamenn til að vinna saman um kjaramál sín — kannski eru þeir svona mikl- ir einstaklingshyggjumenn. Þú ert þá kannski á móti úthlutun listamannalauna yfirleitt ? Já, eiginlega. Að minnsta Ivosti í því formi sem nú er á. Eg er því fylgjandi að rithöfundar vinni fyrir sér með öðru en ritstörfum eins cg óg sagði í upphafi. Það verður alltaf fyllra líf. FERDABÓK ÞorvaldurThoroddsen Fyrsta bindi hinnar nýju útgáfu af Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen er komið út. Eins og allir vita ferðaðist t>. Th. um þvert og endilangt* landið á árunum 1882—1898 og rannsakaði hæði byggðir og óbyggðir. Á ferðum sínum ritaði hann ýtarlega dagbók og eftir dagbókum sínum ritaði hann síðar skýrslur og frásagnir' ,af ferðum sínum og birti jafnóðum í Andvara. Síðar, eftir að hann var hættur ferðum, tók hann Andvara-þætti sína til meðferðar og ritaði ferðabók í 4 stórum bindum, sem prentuð var I Kbh. á árunum 1913—15 í mjög litlu upplagi. Þessi ferðabók er stórmerkt rit og ein hin yfirgripsmesta lýsing á landi voru og þjóð, sem rituð hefur verið og er enn í fullu gildi. Auk Ferðabókarinnar ritaði í>. Th. mörg önnur stór og merkileg rit, svo sem Lýsingu Islands í 4 bindum, Landfræðissögu íslands einnig í 4 bindum. Auk þess ritaði hann á þýzku stórar bækur um Island auk fjölda smærri bóka og aragrúa ritgerða á ýmsum málum. í fyrsta bindi Ferðabókar sinnar segir í>. Th. frá ferðum sinum um Austurland 1882, um Suðurland 1883, Grímseyjar- för og ferð um ódáðahraun og Mývatnssveit 1884. Jón Eyþórsson veðurfræðingur hefur séð um hina nýju út- gáfu og unnið það verk af mikilli vandvirkni. — Bindið er rúmar 400 bls., bundið í svart og rautt rexin-band og kostar kr. 235.00. Bókin er send gegn póstkröfu hvert á land sem er án burðargjalds og póstkröfukostnaðar. Enginn bókamaður né bókasafn getur látið Ferðabók I»or- valdar Thoroddsens fara fram hjá sér. Sniibjornlíótissím&Cb.h.f VIKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.