Vikan


Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 31

Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 31
Dagbók frá Litla-Hrauni Framhald af bls. 28. mjög vænt um heimsókn þessara get á engan hátt imyndað mér hvað manna, þvi það eru ekki of margir sem muna eftir manni í gegnum þessi svallár, en þessir piltar mundu mig og mun ég ávallt minnast þess með þakklæti. Hér er nú rætt mjög um að margir fangar séu í þann veginn að fara og er ekki gott að vita hvað hæft er i þessu. 1 kvöld fékk ég póst- kort frá bróður mínum, en hann er um þessar mundir erlendis. 20 /8 Enginn viðburður verður hér öðrum fremri, til rösk- unar á hinu formfasta fangalífi. Hér eru stöðugt á kreiki sögur um losanir og náðanir. Algengt er og að menn telji sig hafa dreymt fyrir brottför þessa eða hins. Semsagt hér snýst allt um að fá lausn frá þessum stað. Ég hefi nú i dag setið við og spilað póker, og virðist mér sem einskonar poker alda gangi hér yfir. Menn spila upp á sígarettur og gefst það oft vel. Mér var í kvöld færður diskur fullur af ávöxtum og þeyttum rjóma, þetta var rausnargjöf frá þeim G.. og S .. 21/8 Ekkert, nema óvenju mikil leiðindi sóttu að mér í dag. Því hefi ég verið mjög í leiðu skapi. 22/8 1 dag bárust okkur þær fregnir, að brátt mundi J .. V.. verða látinn laus. Við sam- fangar hans getum ekki annað en glaðst með J.., því hann var hér hverjum manni hugljúfur og margan hátt hinn ágætasti félagi. Hinsvegar opnar þessi frétt augu manna fyrir öllum þeim ósóma og spillingu er svo mjög setur svip sinn á dómsmál og raunar margfalt fleiri i opinberu lífi. Það mun áreiðanlega einsdæmi að fangi skuli með slæmri hegðun geta fengið sér til handa fullkomið frelsi. Hér er því nú slegið föstu, að fram fari nú heljar mikil losun er standi í sambandi við útvíkkun landhelginnar. Mér var t. d. sagt í dag að fimmtán fangar mundu verða látnir lausir strax upp úr fyrsta september. Mér finnst nú sem einhver doði hljóti að hafa færst yfir framvindu málanna a. m. k. finnst mér það firnum sæta að ekki skuli ég frétta neitt um ástand eður horfur þessara brýnustu fram- faramála mínum. Ég bið og vona hið bezta og vænti að þá muni þessu skuggatímabili senn lokið. 23/8 Laugardagur er í dag, og fremur leiðinlegt veður, rigningarsuddi og stormur. Veðursins vegna var hér ekkert unnið. Dagur- inn leið að mestu við pókerspil og spjall. 24/8 1 dag er sunnudagur og bjart og fagurt veður. Mikið nokkuð var um heimsóknir í dag, ég fékk þó enga þeirra fremur en vant er. Hér er enn mjög rætt um stórfelldar losanir í sambandi við land- helgismálið. Ég þykist hafa góðar heimildir fyrir því að þá muni a. m. k. nokkrir fangar fá lausn. Hvort ég er þar á meðal veit ég ekki, en vona þó að svo sé. Enda þótt lausnarvon mín sé mjög veik, kvíði ég strax fyrir því að losna. Eg hefi ekki minnstu hug- mynd um hvað um mig verður. Von- andi rætist úr því með Guðs hjálp. 25/8 Afbragðs gott veður hefur verið hér í dag, og fangar allir við vinnu. Ég var mikið úti við í dag og naut hins fagra veðurs. Ekk- ert skeði hér í dag sem markvert get- ur talist. Ég er nú orðinn í meira Iagi langeygur um að nokkuð raun- hæft gerist í mínum málum. Ég er nú búinn að veri hér innilokaður í rúma fimm mánuði, og stöðugt hafa mér verið gefin vilyrði fyrir losun. Ég veldur slíkum seinagangi á málum mínum. Mér finnst a. m. k. réttara af fólki mínu að gera mér ekki vonir um losun án þess að hafa þar nokkra vissu fyrir. 28/8 Ekkert skeður hér, sífellt sömu döpru og vonlausu dagarnir. Ég er nú mjög uggandi vegna þess að nú er liðinn nærri mán- uður síðan ég hefi fengið bréf að heiman. Ég finn með sjálfum mér að ekki muni líða á löngu þar til ég missi stjórn á sjálfum mér. Þvi þolin- mæði mín er ekki takmarkalaus og hér er oft erfitt að sitja á sér horf- andi uppá hverskyns afglöp og órétt- læti er framið nær daglega. Veður er 1 dag fremur leiðinlegt rigningar- suddi. Og hafa fangarnir allir verið inni við í dag. 29/8 1 dag er hið fegursta veð- ur, hvítalogn og skafheið- ríkt. Enn er hér mjög rætt um að stórfelld lausn muni vera i aðsigi. Eng- in vissa er þó fyrir þessum sögum enda þótt ekki væri ósennilegt að rétt reyndist, því nú er nokkuð langt síðan maður hefur losnað héðan. Ég er þessa dagana i miður góðu sálar- ástandi, óvissa og veik von um lausn hafa mjög óheppileg áhrif á sálarlif mitt. Ég býst við að þrátt fyrir allar vonir og fyrirheit muni ég ekki losna héðan i bráð. Ég álít að nú sé mjög slæmur andi ríkjandi fanga á meðal og þætti mér ekki ósennilegt að draga kynni til nokkurra tíðinda ef ástandið helzt óbreytt. Það hlýtur að teljast stórmerkilegt að ekki skuli vera hér meira um árekstra en raun bera vitni, þvi hér er öll stjórn og starfræksla með einstökum endemishætti. 30/8 Mikil ólga hefur verið hér á meðal fanga í dag. Rétt um kl. átta kom hér upp eldur sem þó varð fljótlega slökktur. Ég fæ ekki skilið að lengra verði komist í hvers- kyns óstjórn hér á þessum stað, og finnst mér furðulegt að hið opinbera skuli láta mál þessi með öllu afskipta- laus. Það hlýtur að teljast í meira lagi varhugavert að hafa hér marga tugi ungra manna, sem ratað hafa út á þessa ógæfubraut í fullkomnu á- byrgðarleysi þar sem andi haturs og misyndis ræður ríkjum. Vissulega mim hér enginn maður breytast til hins betra, því vistin gefur sannarlega ekki tilefni til annars en haturs á samfélag- inu og þeim sem ábyrgð bera á allri þessai-i óstjórn sem hvergi mun eiga sér líka. Veður er í dag milt og gott. Taugar mínar og sálarlíf allt er í mol- um og veit ég ekki hve lengi ég held þetta út. 1/9 I dag fögnum við hér sem og allir Islendingar aðrir útfærslu landhelginnar. Dagur þessi var annars mjög ömurlegur fyrir fangana, því við vorum allir lokaðir inni. Og veit víst enginn hvers vegna gripið var til þeirrar ráðstöfunar. — Ólga er hér nú mikil á meðal fanga og má hér eftir búast við öllu því versta. Ég er mjög undrandi yfir því að mér skuli ekki enn hafa borist neinar fréttir að heiman. Ég er nú mjög slappur á taugum og á mjög erfitt með að valda penna, vegna þess hve skjálfhentur ég er. 4/9 Dagur þessi var mjög ánægjulegur fyrir mig, því bæði S . . og T . . hringdu hingað aust- ur og spurðu um líðan mina og hegðun og báðu mig um að vera rólegan því ég mundi losna mjög bráðlega. Þessar fréttir vekja hjá mér einlægan fögnuð, því ég hefi fengið mig fullsaddan á dvölinni hér og bíð því með ofvæni Framh. á bls. J/3 STOFNSETT 1919 K R I S T J A N SIGGEIRSSON VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.