Vikan - 04.12.1958, Side 9
5
GOTNESK
h t/1/ f/ i n t/ u rl is t
Ar 13. öld er talið að gotneski stillinn hafi lif-
að sitt fegursta. Þá voru reistar eða hafist
handa um byggingu á hinum glæsilegu kirkj-
um Chatres, Rouen, Reims, Amiens og Köln.
Notre Dame í Paris var reist á árunum 1163-1235.
Flestar þessar kirkjur voru margar aldri í smíð-
um, enda eru þær hin mestu mannvirki, jafnvel
á nútímamælikvarða hvað stærð snertir.
Til dæmis má nefna dómkirkjuna í Amiens,
sem er 125 metrar á lengd og um 40 metrar undir
loft.
Turnarnir voru oft um eða yfir 100 metra
háir. Turnar Stefánskirkjunnar i Vín og dóm-
kirkjuturnarnir í Ulm (130—160 m) voru öldum
saman hæstu byggingar í heimi — allt þangað
til Eiffelturninn og Empire State byggingin komu
til skjalanna.
Þó eru það ekki stærðin sem mesta athygli
vekur. Kirkjurnar eru ætíð skreyttar hinum
fullkomnustu listaverkum, og má með réttu segja,
að þar séu guðspjöll höggvin í stein, einkum
utandyra.
Ekki má heldur gleyma steindu gluggunum,
oft geypistórum og gerðum af slíkum hagleik
og listfengi að leitun er á öðru eins.
Til gamans má geta þess, að hringmyndaði
glugginn sem sést hér á hlið Notre-Dame er
rúmlega 13 metrar í þvermál. Flatarmál hans
er því á borð við meðal-íbúðarhús eftir því sem
við eigum að venjast.
Gotnesku kirkjurnar eru listaverk, hvort sem
litið er á heildina, eða einstök smáatriði.
Hundruð höggmynda prýða margar hverjar,
guðsmyndir og dýrlingamyndir, auk ótal við-
burða úr Gamla- og Nýjatestamentinu.
3
EF litið er á þau tæknilegu vandamál, sem
leysa þurfti oft og tíðum í sambandi við
byggingar af slíkri stærð er ekki hægt
annað en að dázt og undrast.
Oft varð að reisa þessi bákn á óheppilegum
jarðvegi, en þeirra tíma verkfræðingar og húsa-
meistarar sáu ráð við öllu og er tíminn til vitnis
um það. Byggingar þessar hafa staðist umrót
aldanna og tímans tönn betur en margar aðrar.
Árið 1944 féll öflug sprengja niður í gegnum
þak dómkirkjunnar í Rouen og sprakk á kirkju-
gólfinu. Þakið eyðilagðist að mestu og einnig
gluggarnir sem settir höfðu verið til bráða-
birgða (áður hafði hinum ómetanlegu steindu
gluggum verið komið í örugga geymslu.)
Hinar haglega gerðu súlur og styrktarbogar
stóðust hverja raun og fyrir ári síðan var svo
lokið við viðgerðir á kirkjunni og hún tekin í
notkun á ný.
Sömu sögu er að segja um margar af hinum
glæsilegustu gotnesku kirkjum, t. d. Stefáns-
Kirkjuna í Vín, sem varð mjög hart úti.
Það má og teljast guðsmildi, að ekki hefur
meira verið eyðilagt af kirkjum í öllum þeim
hildarleikjum, sem háðir hafa verið síðan þær
voru reistar.
Það er öldungis ómögulegt að gera grein fyrir
öllum þeim dásemdum sem gotnesk list hefur upp
á að bjóða í stuttri blaðagrein en ég vildi leyfa
mér að benda öllum þeim sem fara utan — og
það fer nú mjög i vöxt að leita uppi eitthvert
af þessum dásamlegu listaverkum, sem eru gotn-
esku kirkjurnar. — Það er ætíð hollt að skoða
fagra hluti og unun að njóta þeirra, og eru það
beztu jólaóskir lesendum VIKUNNAR til handa,
að þeir fái tækifæri til þess fyrr eða síðar.