Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 12
Julie haföi ekki grunað áhrifavald þess um-
hverfis, sem hún hafði einu sinni valið sér og
unnað. Blóðið svall í æðum hennar og hún fékk
nið fyrir eyrun. Ekillinn spurði hana, hvort hún
vildi láta aka sér heim seinna. Áður en hún
hafnaði því boði, varð henni litið upp í glugga
á neðstu hæðinni. Seinni maður hennar hafði
gengið út að glugganum, þegar hann heyrði
hávaðann 1 bilnum. Hann hallaði sér út um glugg-
ann og hrópaði til ekilsins: — Klukkan tvö!
— Klukkan tvö, endurtók hún með sjálfri sér
og ekillinn var vanur að híma einhversstaðar ná-
lægt húsinu til klukkan f jögur nema ef Herbert
þurfti að skjótast út til aö finna einhverja af
vinstúlkum sinum. Þá tók hann venjulega leigu-
bíl. Hún hljóp upp þrepin og þaut inn í forsalinn,
án þess hún vissi af. Um leið og hún steig yfir
þröskuldinn, lagði að vitum hennar lykt af ilm-
vötnum. Hún hrökk við. Það var lyktin af ilm-
vötnum Mariannes. — Of mikið af ilmvötnum,
of mikið af peningum, of mikið af demöntum.
Of mikið hár. . . Hún varð óþolinmóð. Dyrnar
lokuðust. Það voru dyrnar á hennar eigin her-
bergi. Þjónn gekk á undan henni. Hún ætlaðist
til þess, að hann ópnaði dyrnar að vinnustofunni
við hlið herbergis Espivants, en hann bað hana
að bíða í Iitlu herbergi, sem hún mundi ekki eftir.
Hún heyrði málróm Espivants einhversstaðar
handan við þunna veggi og stundarkorn gleymdi
hún sér. Það var eins og hana væri að dreyma.
Þjónninn kom aftur og hún fór með honum.
— Hvar í dauðanum sefur Herbert? hugsaði
*hún og taldi dyrnar, sem þau fóru fram hjá:
— Mitt herbergi.. . hans herbergi.. . Allt í einu
stanzaði hún og varð örvæntingarfull á svipinn.
— Ég gleymdi að hafa skóskipti! Hana langaði
mest til að flýja af hólmi. Svo jafnaði hún sig.
— Þegar alls er gætt, skiptir það engu máli.
Hann er kominn inn í sjúkrastofuna. En hvað
það var skrýtið! Þjónninn hvarf og hún gekk inn,
bar höfuðið hátt og brosti ofurlítið. Hún heyrði
rödd Herberts frá símanum.
— Svo að ég varð að leggjast svo lágt að
senda eftir þér? Það hvarflaði ekki að þér að
koma og vita, hvernig mér liði?
Málrómur hans var unglegur og glaðlegur. Hún
leit niður og sá Herbert í rúminu. Ó, sagði hún
við sjálfa sig. Hann er dauðans matur. Julie fann
lykt af eter og varð illa við.
—- Herbert, sagði hún. — Hvað á þessi úlfa-
þytur í blöðunum að þýða? Og er það mín vegna,
sem þú ert í þessum ljósgráu silkináttfötum ?
Herbert rétti honum höndina. Hún virtist vera
þrútin. Hann benti henni að setjast í armstól,
sem stóð rétt hjá rúminu.
— Langar þig að reykja? spurði hann. — Þú
mátt það mín vegna.
— En hvað um þig?
— Ekki núna, vina mín. Mig langar ekki.
Herbert bjó ennþá yfir sínum fornu persónu-
leg^u töfrum, sem höfðu ennþá áhrif á Julie og
hún beit sig í tungubroddinn til að refsa sjálfri
sér fyrir það.
— Ertu búin að borða hádegisverð? Borðaðu
eitthvað með mér. Bara mér til samlætis.
— Mér til samlætis. Alltaf er hann sjálfum sér
líkur, hugsaði Julie.
— En . . . sagði hún og sneri sér að dyrunum.
— Ég mun borða einsamall. Marianne sefur í
ilag. Hún vakti í alla nótt, þó að engin þörf væri
4 því.
— Aðeins ávexti þá .. . Á þessum degi er é'g
rön að borða ávexti.
— Ágætt, vina mín! Þá ætla ég að hringja.
Enginn mun ónáða okkur, þegar búið er að bera
inn matinn. Ég ætla að segja þér frá þessu leið-
inlega veikindakasti mínu, ef þú vilt hlusta á
það. En ef til vill mun þér leiðast það.
Julie fann á mildi raddar hans, að hann hafði
enn þá ánægju af að særa hana.
— Nei, sagði hún kuldalega.
Hjúkrunarmaður kom inn. Hann var í hvítum
slopp. Á eftir honum kom einkaritarinn með
hlaða af símskeytum. Espivant tók til máls,
áður en hinn síðarnefndi gat komið upp orði.
— Nei, nei, Coustrex. Ekki núna. Þegar alls
er gætt þá er ég veikur, sagði hann og hló við.
Ég mun ef til vill lesa bréfin min í kvöld ...
Hann studdi niður höndunum og reis upp í
rúminu. Hjúkrunarmaðurinn flýtti sér að koma
honum til hjálpar, því að sýnilegt var, að þetta
kostaði hann mikla áreynslu.
— En hvað þetta er hlægilega mjótt rúm, sagði
Julie. — Þetta er eins og vinnukonurúm.
Hjúkrunarmaðurinn starði ávítunaraugnaráði
á hana um leið og hann fór út.
— Þei, þei, hvíslaði Espivant. — Þetta er allt
m*ð ráði gert. Þetta er allt með ráði gert. Þett.a
*r sjálfsvarnarrúmtð mltt.
F O R N A R
Þau voru enn að hlæja, þegar tveimur borðum,
hlöðnum ávöxtum, var ýtt inn til þeirra. Á þeim
voru allskyns ávextir, vatn með ísi í og kampa-
vín. Nasirnar á Julie þöndust út, þegar hún fann
ilminn af kaffinu. Þama skorti ekkert á.
— Hver bað um þetta svínslæri, Herbert?
Hvorugt okkar langar í það.
ofurlitla stund. Hafðu engar áhyggjur af mér.
Þarftu ekki að taka inn neitt meðal?
Espivant, sem yar með ferskju í hendinni, lagði
hana aftur á diskinn og tók handfylli af kirsi-
berjum og hélt þeim uppi við ljósið.
— Sjáðu! Þau eru hérumbil gagnsæ. Það er
nærri því hægt að sjá steinana innan í þeim.
Espivant bandaði kæruleysislega frá sér með
hendinni.
— Marianne, býst ég við. Er það nokkuð fleira,
sem þig langar i?
— Nei, þakka þér fyrir. Svo að Marianne veit
þá, að ég . . . ?
— Hvað ertu að þvaðra um? Góða vertu mér
ekki til leiðinda!
Sólargeisli skein á silfurborðbúnaðinn. Her-
bert valdi sér beztu ferskjuna og lét hana hvíla í
lófa sínum.
—■ En hvað hún er falleg, sagði hann og and-
varpaði. — Fáðu þér hina. Drekkurðu enn þá kaffi
með ávöxtunum?
Júlia minntist nú gamalla daga í sambúð
þeirra. Hún roðnaði og til þess að öðlast styrk
sinn aftur, drakk hún eitt glas af kampavíni.
— En hvað það er fallegt að horfa á þetta
borð, sagði hún. — Má ég virða það fyrir mér
Hvað hef ég í raun og veru átt um dagana? Það,
sem ég skil við, er ekki meira virði en þetta.
Hann lagði berin frá sér og bandaði hendi
við borðinu. Hin hávaxna, ljóshærða kona, sem
sat á stólnum missti samt ekki gleði sína við
þessi orð. Hún var hamingjusöm eins og vespa
í sólskini. Hún þurrkaði sér um varirnar og
gretti sig ofurlítið um leið, eins og hún var vön.
— Skilja við? Hvað áttu við?
Espivant hallaði sér að henni. Þegar hann
kom fram úr skugganum, sá hún greinilega
framan í hann. Liturinn á enni hans var föl-
grænn og einnig á gagnaugunum. Dökkir baug-
ar voru kringum brún augun. Hann hafði átt
of margar ástkonur um dagana. Af því komu
baugarnir.
— Égá skammt eftir, Youlka, sagði hann með
uppgerðarkæti. — Nei, lofaðu mér að tala. Helltu
kaffinu í bollana. Já, ég má drekka kaffi. Ertu
12
VIKAN