Vikan - 04.12.1958, Page 22
. /7 1 da.g' hitti ég fólk sem
1 ■ ég þekki frá A . ., Var það
að fara í afmælisveizlu á Eyrarbakka,
ég mætti þeim af tilviljun einni. Veð-
ur er hér enn mjög gott og hygg ég
að dagurinn í dag hafi verið sá bezti
sem komið hefir á þessu sumri. Eg
hefi enn ekki fengið neinar fréttir og
fæ sennilega ekki í bráð. Ég er nú-
þegar farinn að hafa áhyggjur vegna
framtíðar minnar og veit satt að
segja ekki hvað um mig verður þegar
ég fer héðan. 'Mér finnst ég standa
svo sem mér væri fyrir beztu að fara
af landi burt, en i annan tíma get
ég varla til þess hugsað. Sem sagt
allt er á huldu um mína framtíð.
:oo_oo/iy Var í leiðu skapi og fór
sem minnst út úr klefa
mínum. Veður er fremur gott.
24/7 Veður er i dag mjög fag-
urt og menn hér flestir
í hinu bezta skapi. Ég er þó enn mjög
í slærríu ástandi, fannst svo sem oft
áður að vistin hér sé með öllu óþolandi.
Hér skeður sem fyrr fátt nema hvað
í dag kóm hér fangi sem gengið hafði
laus í nálega eina viku og hafði hann
á þeim tíma m. a. ferðast til
Noregs.
25/7 Veður er í dag fremur
leiðinlegt hvassviðri með
rigningarskúrum. Svo sem fyrr skeð-
ur hér fátt, ég frétti enn ekkert af
málum mínum enda þótt liðinn sé
nærri mánuður síðan pabbi kom hér
í heimsókn til mín og sagði mér að
þetta mundi allt lagast mjög fljót-
lega. Ég get þvi tæpast vonast eftir
lausn i bráð.
26/7 Sama veður og er allur
fangahópurinn inni við
vegna veðurs. Ég hefi í dag verið
í sæmilegu skapi og rætt
við samfanga mína um heima og
geyma, það er hið eina er hér getur
orðið manni til yndisauka, því það er
mjög fróðlegt að hlýða á frásagnir
hinna ýmsu fanga. Hér eru mertn,
sem margt hafa reynt. Ég hefi sið-
ustu dagana gert mér far um að reyna
að kynnast G . . morðingja frá G ..
og hefir mér tekist að komast að
ýmsu í sambandi við hann.
27 /7 1 dag er sunnudagur og
hið bezta veður. Nokkuð
var um heimsóknir í dag og kom hér
m. a. flokkur Fíladelfíumanna og
kvenna og var mér mikil ánægja að
komu þessa ágæta fólks. Þegar sam-
komu þess lauk komu tveir þessara
manna upp á klefa minn og báðu fyrir
mér og fjórum föngum öðrum. Mér
fannst að heimsókp og bænir þessa
indæla fólks hefðu mjög góð áhrif á
mig og vona ég að ég megi hér eftir
bera gæfu til þess að lifa í anda krist-^
indómsins, sjálfum mér og öðrum til
gleði og ánægju. Mig er nú mjög far-
ið að lengja eftir fréttum að heiman
og fæ ekki skilið hvað veldur þvi að
ég hefi ekkert frétt nú í hart nær
mánuð.
28/7 Veður er í dag afar fagurt
og má sjá fólk við hey-
vinnu hér allt um kring. Hingað kom
í dag hr. Arnulf Kyvik, forstöðumað-
■fc I tveim síðustu tölublöðum
hefur verið birt dagbók faiig-
ans frá Litla-Hrauni. Þar hef-
hann lýst lífinu á vinnuheim-
ilinu, eins og það kemur hin-
um innilokuðu fyrir sjónir.
Áður hafði afbrotaferill hans
verið rakinn að fangeisismúrn-
um.
Meðan hann dvaldi á Litia-
Hrauni og afplánaði dóm sinn,
hélt hann dagbók þá, sem
liér birtist. Þar íhugar þessi
ungi maður örlög sín og lýsir
þeirri baráttu, sem hann heyr
við sjálfan sig. Þessi dagbók
er einstæð heimild, mannlegt
plagg — document humaine —
sem hlýtur að vekja fólk til
heilabrota um þá hlið mann-
lifsins, sem snýr frá alfara-
vegi.
•y^- 1 þessu blaði birtir VIKAN
niðurlag dagbókarinnar. Öll-
um nöfnum hefur auðvitað
verið sleppt og einstaka kafi-
ar, sem ekki koma meginmáli
dagbókarinnar beinlínis við,
hafa verið felldir niður. Að
öðru leyti er dagbók fangans
birt eins og hann gekk frá
henni innan míira fangelsisins.
að verða þar á meðal og bið Drottinn
Jesúm um að svo megi verða. Hér
gerist mjög fátt, ávallt þetta sama
tugthúsþvaður, sem lítil uppbygging
er i.
31/7 1 dag fekk ég bréf og mynd
frá minni elskuðu J..;
þetta varð mér til mikillar gleði, og
sannfærir mig um mátt bænarinnar.
Mér líður þessa dagana mjög vel, nema
hvað mér leiðist að heyra ekkert að
heiman og fæ ég ekki skilið hvað vel-
ur. Veður hefir i dag verið mjög fag-
urt og menn hvarvetna uppteknir við
heyskap og önnur sumarstörf.
1/8 1 dag er mjög fagurt veð-
ur og er sálárástand mití!
mjög í samræmi við það, sem sagt gott.
Þessa dagana er hér mjög rætt um að
nokkrir fangar muni brátt losna og
hefi ég verið nefndur mjög títt í þvi
sambandi. Ég býst þó við að valt sé.
að treysta slíkum orðrómi, og læt þetta
því sem vind um eyru þjóta.
2/8 1 dag' dró hér til nokkurra
tíðinda. Er fara skyldi Út
til vinnu mættu tveir fangar í spari-
klæðum og neituðu verkstjórarnir þá
að fara til vinnu með þessa tvo menn.
Þessu lyktaði svo að úr varð hin mesta
rimma er dró til þess að níu fangar
voru settir í innilokun. Mér finnst að
þetta atvik sé ljósastur vottur þeirrar
Litla-Hrauni
ur Fíladelfíu á Selfossi. Hann kom
hér til þess að lesa með mér og fá-
einum öðrum úr Biblíunni. Hann
benti okkur á mikilvægi bænalífsins
og bað fyrir okkur, að við mættum
frelsast og hverfa þannig frá hinu
innantóma lífi drykkju- og afbrota-
mannsins. Ég býst fastlega við að
ég gangi í söfnuð þennan; ég finn
nú æ meir hversu mikill náðarkraftur
felst í samfélagi við Jesúm Krist. Ég
vona og bið um kraft til þess að geta
höndlað hina sönnu lífshamingju í sam-
félagi við Krist.
29/7 Ég hefi nú fyi'st fundið
það, hið innra með mér,
að ég á eindregið að snúa mér að
hinu ki'istna samfélagi. Ég hefi nú
um nokkurt skeið lesið reglulega í
Biblíunni og þannig fundið styrk og
innri gleði. Nú síðustu dagana hafa
ýmsir samfangar mínir hæðst að mér
vegna þess að ég hefi viðurkennt
frammi fyrir þeim að ég hefi einsett
mér að lifa framvegis í samfélagi við
Krist. Ég læt mér allt slíkt í léttu
rúmi liggja og bið þess eins að ég
megi verða staðfastur. Dagur þessi
leið sem aðrir í hinu fasta formi; ég
var mikið útivið og naut hins fagra
veðurs. Enn berast mér engar fréttir
Þriðji
að heiman, ég vona að þrátt fyrir svo
langt hlé á bréfaskriftum til mín, sé
allt þar heima í sem beztu lagi.
30/7 1 dag rigndi hér í fyrsta
sinn í langan tíma, veður
var þó einkar milt og gott. Eg frétti
í dag að innan skamms myndu nokkr-
ir fangar losna héðan. Ég get ekki að
því gert að ég vonast fastlega eftir
óstjórnar og fávisku er hér ræður
mestu um hið.daglega líf; hér er gerð-
ur úlfaldi úr mýflugu einungis til þess
að auka á úlfúð og illan hug á meðal
fanga. Enn berast mér engar fréttir
að heiman og er ég nú orðinn mjög
undrandi á öllu því og finn enga skýi'-
ingu þar á.
3_4/8 Helgi þessi er ein sú ömur-
legasta er ég minnist. Hér
var mikið um heimsóknir og fengu nær
allir fangar heimsókn að mér undan-
teknum. Dagskrá útvarpsins minnti
allt of mikið á liðna daga, til þess'að
ég gæti notið hennar sem skyldi. Ég
sendi í gær bréf til minnar elskuðu
J . . og vona að hún svari mér a. m. k,
því ég get tæplega búist við að hún
leggi í að heimsækja mig hingað öllu
og öllum ókunn. Hún er mér ímynd
hins sanna og fagra mannlífs, er að-
eins hin dýpsta ást megnar að skapa.
Ég bið og vona að nú mitt i mín-
um vesældóm fái ég að helga krafta
mina því marki að búa henni sæm-
andi framtíð.
g/8 1 dag er hvöss norðan átt
og fremur kalt í veðri,
enda þótt sól hafi skinið mestan hluta
dagsins. Hingað kom í dag nýr fangi,
ungur piltur úr Reykjavík, sem ég ekki
þekki. Hér skeður sem fyrr fátt um-
fram hið venjulega þvaður fanga í
milli.
I
6/8 Enn er hér norðan garður.
Ég frétti enn sem komið
er ekkert frá mínu fólki, og fæ ég
ekki skilið hvað veldur. Ég frétti í
dag að eldri bróðir hefði lent í ein-
hverju misjöfnu og þykir mér leitt
22
VIKAN