Vikan


Vikan - 04.12.1958, Síða 27

Vikan - 04.12.1958, Síða 27
Þeir misvitru sögöu: Mikil er bræðin „Horfðu reiður í 15 skipti.“ Vísir 26. nóv 1958. Nýjar forir „Ég tel rétt að vekja athygli á „Strokið um strengi." Þetta er yfirlætislaus bók, en hún hefur gott hjartalag og rækir það hlutverk að bera fornhelga ljóðhefð á borð fyrir annarlega tíð, sem í ákafri leit sinni að nýjum forum hættir til að vanmeta arf sinn.“ Vísir 26. nóv. 1958 Merkilegt rannsóknarefni — út af fyrir sig. „Hvað verður um minnkaskottin ?“ Alþýðublaðið 22. nóv. 1958 Landið á mörkum . . . Framh. af bls. 30 saín ríkisins, sumarhöll í útjaðri borgarinnar er notuð sem uppeldis- og menningarmiðstöð barna, þar sem 8000 börn og unglingar fá kennslu í allskonar listgreinum og íþróttum. Virtist mér þetta mjög merkileg stofnun og til fyrirmyndar. Enn eru aðrar konungshallir, sem eru hvíldar- heimili listamanna eða söfn. Það fólk, sem ég hitti, var mjög geðugt, gest- risið og menntað. Leiðsögumaður minn tal- aði t. d. 6 tungumál, auk rúmenskunnar. Fólkið virtist fullt af áhuga fyrir uppbyggingu lands- ins í efnahags og menningarmálum, án þess þó að vera á nokkurn hátt kreddubundið og ein- strengingslegt, að mér virtist. Enginn gerði til- raun til stjórnmálalegra áhrifa á mig eða að ota að mér nokkrum stjórnmálakenningum. Mér var boðið til þess að kynnast landi og þjóð, menn- ingu og listum, einkum leiklist. Þessu öllu hafði ég mikla ánsegju og gagn af að kynnast, svo og hinu vel menntaða og geðuga fólki, sem þessi mál hefur þar með höndum. Það var þvi með hlýhug til lands og þjóðar sem ég kvaddi kunn- ingja mína, sem tóku á móti mér þegar ég kom, og nú fylgdu mér á flugvöllinn, er ég fór. . Guðl. Rósinkranz. Uugmyndir verða til . . . Framhald af bls. 19. og bjó mig undir með löngu námi erlendis, það er að segja leiktjaldamálun, en þar sem ekki hefur reynzt þörf fyrir starfskrafta mína, hefi ég orðið að leita mér annarar atvinnu. — Er atvinnumennskan e. t. v. andstæð list- inni? — eÞssu er erfitt að svara. Vinur minn, sem er hljómlistarmaður að atvinnu sagði við mig fyrir skömmu: ,,Þú átt gott að hafa tónlistina sem tómstundaiðju", en ’ég vildi segja við hann: ,,Þú átt gott að geta helgað tónlistinni alla þína krafta". En ef til vill er það þannig að maður álítur jafnan bezt sem meður ekki hefur. — Er einhver ástæða fyrir því, að þú kaust þessa vinnu (skrifstofu) ? — Ástæðan fyrir því er einfaldiega sú að skrif- stofustörf var sú atvinnugrein sem ég stundaði áður en ég hóf nám í leiktjaldagerð. Lánið hefur leikið við mig í þeirri stofnun sem ég vinn í að því leyti að ég hefi mætt skilningi meðal starfsfélaga minna á þörf minni til að geta iðkað hugðarefni mín. Brýnið fyrir börnunum \ að fara varlega með <, eldinn Oft veldur lítill neisti stóru báli. ALIV3EI\ilMAR TRYGGINGAR H.F. Austurstræti 10 — Sími 17700 VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.