Vikan - 04.12.1958, Blaðsíða 32
SMARETTIR
á jólaborðið
....VIÐ BIRTUM hér eingöngu smárétti, deserta, salöt o.
fl. „minni háttar rétti." Það er gert vegna þess, að flest-
ar húsmœður vita, hvernig á að steikja kótelettur eða
brasa rjúpur. Þær eru hins vegar færri, sem kunna að
búa til ljúffenga smárétti og gera þeir þó sitt til að að-
alrétturinn smakkist vel. Auk þess er mikil prýði að
góðu salati og smáréttum á jólaborðinu og yfirleitt eru
þeir fljótlagaðir, Mörgum þykir einnig gott að hafa
kaldar sósur með mat, hvort sem það eru kjúklingar
eða hangikjöt sem á borðum er.
Vonandi er, að sem flestar húsmæður geti notfært sér
eitthvað af þeim uppskriftum, sem birtast á siðunni,
enda óhætt, að mæla með þeim.
SALÖT
Eggja- og sardínusalat.
1 salathöfuð
2 harðsoðin egg
1 dós sardínur
pipar
borðedik
salt
Skerið salatið niður, svo og
eggin. Setjið í skál. Hrærið
edik, mataroliu salt og pip-
ar saman og hellið yfir.
Gott er að hafa ristað brauð
með.
Jarðarberja- og banana-
salat.
300—400 g jarðarber
2 bananar
50 g brúnaðir hnetukjarn-
ar, safi af y2 sítrónu
(sykur)
Skerið banana og jarðar-
ber í lítil stykki. Blandið
hnetukjörnum saman við,
hellið safanum yfir. Hrær-
ið. Salatið smakkast enn
betur, ef dálitlu af líkjör
er hellt yfir, áður en það
er borið fram.
Ananasspælegg.
Setjið ananasskífurnar á
fat, leggið ferskjur ofan á
(hvelfda hliðin snúi upp).
Þeytið rjóma og setjið
Mayonnaise.
1 eggjarauða
1 tesk. sinnep
y3 tesk. salt, pipar
paprika
2|/2—3 inatarolía
1—1 /2 matsk. sítrónusafi
Graslauksmayonnaise.
Mjög gott með soðnum lax
'Blandið mayonnaise saman
rjómann í kringum ferskj-
urnar, svo að hann hylji
ananasinn. Einnig má
dreifa hökkuðum möndlum
á rjómann.
Hrærið rauðuna með krydd-
inu. Bætið matarolíunni
smám saman í og hrærið
vandlega á meðan. Blandið
sítrónusafanum síðast sam-
an við.
við 100 g þeyttum rjóma
og hrærið ca. 2 matsk. gras-
lauk saman við.
Remouladesósa.
1 skammtur mayonnaáse
(sjá sósuuppskrift 1.)
2 matsk. kapers
1 matsk. hökkuð söltuð
agúrka
1—2 kryddsíldar
Blandið öllu saman og
hrærið vel. Ef vill má
blanda saman við einni mat-
sk. af rjóma.
Tyrolersósa.
Sérlega góð með kjúkling-
um.
1 skammtur mayonnaise
2—3 matsk. tómatsafi
graslaukur, 1—2 matsk.
/2 matsk. hökkuð stein-
selja (1 tómatur).
Hrærið mayonnasið ásamt
tómatsafanum. Bætið stein-
selju og graslauk út í og ef
vill mætti skera einn tómat
niður í skífur og hræra
saman við.
Kartöflumauk.
1 y3—2 kg soðnar kartöfl.
1—2 laukar
2 dl matarolía
<4 dl borðedik
salt, pipar
graslaukur
Skerið laukana niður í smá
bita og kartöflurnar sömu-
leiðis. Hrærið saman. Þeyt-
ið matarolíu og borðedik og
hellið yfir. Sáldrið gras-
lauk yfir eftir smekk.
I Tartalettur.
smjörlUfi
hveiti
kjötsoð
gulrætur
grænar baunir
nokkrir kjötbitar
aspargusbitar
Bakið smjörlíki og hvelti
upp og þynnið með soðinu.
Hrærið gulræturnar og
baunir út í. Látið hitna vel.
Fyllið þá tartaletturnar með
maukinu og setjið einn eða
tvo aspargusbita efst.
Kaldar sósur með kjöt- og fiskréttum
Sex nyjar bækur
fyrir aðeins 150 krónur.
20% afsláttur at vcrði ullra aukabóka útfcáfunnar.
Félagsbækur vorar . og flestar aðrar útgáfubækur eru
kómnar út og hafa verið sendar umboðsmönnum um
iand allt.
Fyrir árgjaldlð. 160 kr. miðað við bækurnar óbundn-
ar, íá félagsmenn að þessu sinni sex bækur. Fjórar
þeirra eru ákveðnar af útgáfunni, og nær valfrelsið
ekki til þelrra. Eru það Almanakið, Andvari, Vestur-
Asfa og Norður-Afríka og Islenzk ljóð 1944—1953!
Til viðbótar er yður heimilt að velja tvær af eftirtöld-
um fimm bókum:
Tvennir tímar, skáldsaga eftir Knut Hamsun. Hannes
Sigfússon þýddi.
Hestar, litámyndabók af íslenzkum hestum. Texti eftlr
dr. Brodda Jóhannesson.
Spæbjörn Galti, ný söguleg skáldsaga eftir Sigurjón
Jónsson rithöfund.
Eyjan góða, myndskreytt ferðabók frá Suðurhafseyj-
um eftir Bengt Danielsson.
Undrahcimur dýranna, eftir Mauric Burton. Alþýðlegt
fræðslu- og skemmtirit um náttúrufræðileg efni. Bók
þessi kom út hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs 1966,
en var þá meðal aukabóka.
Þær framantalinua valfrjálsu bóka, sem þér fáið ekki
fyrir félagsgjaldið, getið þér fengiö keyptar hjá um-
boðsmanni meðan upplag endist á mjög hagstæðu verði,
kr. 40.00 bókina óbundin, kr. 76.00 i bandi.
Vér leyfum oss' að minna yður á, að félagsmenn fá 20%
afslátt af öllum aukabókum útgáfunnar.
Meðal aukabóka eru að þessu sinni:
Andvökur St. G. IV. og siðasta bindi.
Saga Islendinga, IX. bindi, síðari hluti, eftir Magnús
J ónsson.
Frá óbyggðnm, ferðasögur eftir Pálma Hannesson.
Þjóðhátíðin 1874, eftir Brynleif Tobiasson.
Höfundur Njálu, eftir Barða Guðmundsson.
Veröld scm var, sjálfsævisaga Stefans Zweig.
Islenzku handritin, eftir Bjarna M. Gíslason.
Ævintýrl dagsins, þulur og barnaljóð eftir Erlu.
Kennslubók í skák, eftir Friðrik Ólafsson og Ingvar
Ásmundsson.
Tvö leiltrit, eftir Loft Guðmundsson.
Hús Bernörðu Alba, leikrit eftir Fr. Garcia Lorca.
Nýir félagsmenn hvar sem er á landinu geta einnig
klippt út úr blaðinu og sent oss eftirfarandi pöntunar-
seðll útfylltan:
....a.................................................
Ég undirrit...... gerist hér með félagsmaður 1
Bókaútgáfu Menningarsjóðs og þjóðvinafélagsins og
æski að fá sendar félagsbækumar 1968.
Óbundnar (verð kr. 150.00) 1 bandi (verð kr. 260).
Setjið kross framan við það, er þér œskið.
Sem kjörbækur vel ég eftirtaldar tvær bækur:
Bókaútgáfa menningarsjóðs
og þjóðvinafélagsins
32
VIKAN