Veðrið - 01.04.1975, Side 10

Veðrið - 01.04.1975, Side 10
nes. Á Vesturlandi teygði bilana- og ísingarsvæðið sig um Snæfellsnes suður í Hvalfjörð og á Kjalarnes, og á Suðurlandi urðu skaðar í Grímsnesi, Mýrdal, Meðallandi og allt austur í Oræfi .Var því um mjög óvenjulegt útbreiðslusvæði að ræða. Alls munu hafa brotnað rúmlega 500 símastaurar, en 360 fallið til við- bótar. Slitnuðu símalínur á samtals 87 km línuleið. Um 200 raflínustaurar munu og hafa brotnað og mikill fjöldi að auki fallið eða skekkst. VEÐURLÝSING Aðdragandi veðursins var sá, að þann 25. október hafði myndast ný lægðar- bylgja á kuldaskilum lægðar, sem var á austurleið fyrir sunnan land. Fór nýja lægðin dýpkandi, enda barst kalt loft í háloftum að bakhlið hennar. Loft- þrýstingur í lægðarmiðju lækkaði um nálægt 25 mb þennan sólarhring og lægðin hreyfðist hægt austnorðaustur á bóginn. Næstu tvo daga, 26. og 27. október, var lægðarmiðjan enn fyrir sunnan land og þokaðist norður. Á meðfylgjandi veðurkorti frá kl. 06 föstudaginn 27. október er lægðar- miðjan tæpa 800 km suður af Dyrhólaey og loltþrýstingur þar innan við 975 mb. Hitaskil voru skammt suðaustur af landinu og breið tunga af hlýju og Veðurkort jöstudaginn 27. október 1972 kl. 06. 1 0 -- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.