Veðrið - 01.04.1975, Side 11

Veðrið - 01.04.1975, Side 11
röku haflofti þar fyrir sunnan. Teygðist liún inn yfir landið úr suðaustri hátt í lofti. Vindur var víðast norðaustlægur og kl. níu að morgni þ. 27. var skollið á rok við suðausturströndina. Rigning var þá um suðaustanvert landið og hiti 2—7 stig, en snjókoma eða slydda í öðrum landshlutum og hiti þar nálægt frost- marki á láglendi. Urkoma liélst um allt land að kalla fram á morgun laugar- dagsins 28. október, og víða var stórfellt úrfelli, einkurn um austanvert landið. Skiiin voru nú orðin að hiýjum samskilum og bárust þau inn yfir landið úr suðaustri, en í háloftum var sem fyrr hlý tunga af röku lofti, sem streymdi norðvestur á bóginn upp yfir tiltölulega svalara loft í neðri loftlögum. Mun þar og í hægri hreyfingu skilanna að leita orsaka hinnar miklu úrkomu. Norðan við skilin var vindátt yfirleitt norðaustlæg við jörð, en sunnan þeirra var aust- læg átt ríkjandi. Víða var hvassviðri eða stormur, en veðurhæð var þó talsvert breytileg. Stormur var á 20 veðurstöðvum þ. 27. og á 12 þeirra voru 10 vindstig eða meira. Þ. 28. var stormur á 13 veðurstöðvum, en meiri veðurhæð á 8 þeirra. Eins og sjá má á meðfylgjandi korti frá kl. 6 að morgni þ. 28. var miðja lægð- arinnar þá rúma 200 km suður af Hjörleifshöfða og samskil lágu yfir landinu frá Faxaflóa austur um innsveitir Norðurlands. Stormur og bleytuhríð var þá VEÐRIÐ -- 1 1

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.