Veðrið - 01.04.1975, Qupperneq 16

Veðrið - 01.04.1975, Qupperneq 16
3. myncl. Viða urðu miklar girðingarskemmdir. Myndin er tekin ejtir óveðrið og sýnir fallna og skekkta girðingu fyrir neðan Kelduland í Skagahreppi, A-Hún. LjósmBjörn Bergmann. AÐliIR íSINGARSKAÐAR. Víða á ísingarsvæðunum urðu allmiklar girðingaskemmdir, girðingarstaurar brotnuðu eða lögðust á liliðina og girðingar slitnuðu eða sliguðust. Þá urðu og nokkrar síma- og raflínuskemmdir víðar en þegar hefur verið greint frá, þótt ekki sé þeim, er þetta rita, kunnugt um ísingarmagn í þeim tilvikum. Skal nú vikið nokkuð nánar að þessu. Snœfellsnes. Við Axarhyrnu skammt norðvestur af Búðum á sunnanverðu Snæfellsnesi biluðu símalínur á tveimur stöðum og 3 símastaurar brotnuðu en 13 féllu. Um miðbik nessins brotnuðu 20 símastaurar við Hjarðarfell og Miðhraun í Mikla- holtshreppi, en 32 féllu. Skaðarnir urðu á línum, sem lágu þvert á norðaustan- áttina. Nokkrir skaðar munu einnig hafa orðið á raflínum. Isafjarðardjúp. Stórhríð og rnikil snjókoma var við ísafjarðardjúp dagana 27. og 28. október. Að sögn veðurathugunarmannsins í Æðey sliguðust girðingar og slitnuðu vegna 1 6 -- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.