Veðrið - 01.04.1975, Qupperneq 17

Veðrið - 01.04.1975, Qupperneq 17
ísingar, en síma- og raflínur stóðust veðrið á Snæfjallaströnd. A£ blaðafregnum má ráða, að isingartjón hafi orðið á símalínum þessa daga við ísafjarðardjúp, en ekki var nánar greint frá skaðanum. Eyjafjörður. Að kvöldi þ. 27. urðu talsverðir ísingarskaðar á raflínum í Ólafsfirði í norð- austan stormi með slyddu og snjókomu. Hlóðst mikil ísing á allar línur, sem liggja þvert á fjörðinn. Háspennulínan að Þverá slitnaði niður og 5 staurar hölluðust mikið, sömuleiðis slitnaði linan að Kvíabekk og 7 staurar hölluðust. í háspennulínunni að Þóroddsstöðum fóru 5 staurar á hliðina og 2 staurar brotnuðu í linunni að Hlíð og Burstarbrekku. í lágspennulínu að Garði og Skeggja- brekku brotnuðu 2 staurar og línan að Kálfsárkoti slitnaði. Á Kleifum slitnuðu línur á stóru svæði og 3 staurar brotnuðu. 1 Ólafsfirði varð einnig nokkurt tjón á símalínum. 1 blaðafregnum kom frarn, að talsverðar símaskemmdir urðu innar í Eyjafirði, einkum á leiðinni til Grenivíkur, en þar mun símalínan hafa lagst niður á um tveggja kílómetra kafla. Örœfi. Þann 27. október bilaði símalína milli Svínafells og Skaftafells og 4 staurar brotnuðu. Mikið sligaðist af girðingum í Skaftafelli. Mýrdalssandur og Meðalland. Samkvæmt blaðafregnum brotnuðu 10 símastaurar á Mýrdalssandi og í Meðal- landi. Grimsnes. í veðurskýrslu frá írafossi er greint frá að aftakaveður ltafi verið rneiri hluta sólarhringsins 27. október, snjókoma, skafrenningur og síðan rigning. Í veðrinu skekklust 4 eða 5 símastaurar við Sogsfossa, en símasamband rofnaði Jjó ekki. Nokkrar truflanir urðu hins vegar á raflínu að Selfossi og varð að staga einn staur, svo að hann legðist ekki á hliðina undan veðrinu. Nokkrar truflanir urðu á Sogslíuu 2, en ekki voru þær alvarlegs eðlis, og hvergi varð straumlaust á orkuveitusvæðinu nema á Selfossi um hríð . FÉ OG HROSS FENNIR. Nokkuð fennti og fórst af fé á Snæfellsnesi og í Árnes- og Rangárvalla- sýslum dagana 27.-28. október. Greindu veðurathugunarmenn svo frá: Hjarðarfell á Snœfellsnesi: Vitað er að hér hafa 10 kindur farist í bylnum 27.-28. október og fáeinar að Hrísdal liér í sveit. Þá fórust um eða yfir 30 kindur að Hallkellsstaðahlíð í Hnappadal. Ekki er vitað um meiri fjárskaða hér um slóðir. VEÐRIÐ -- 17

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.