Veðrið - 01.04.1975, Síða 19

Veðrið - 01.04.1975, Síða 19
ANNAÐ TJÓN í ÓVEÐRINU Föstudaginn 27. október fuku þrfr af átta íbúðarskálum starfsmanna, sem unnu við virkjunarframkvæmdir við Mjólkár, en skálarnir stóðu í Borgar- hvilft í Borgarfjalli í um 200 metra hæð yfir sjó. Skálarnir Jtrír gjöreyðilögð- ust og einn þeirra lagðist ofan á bíl og eyðilagði hann með öllu. Maður var hætt kominn í einum skálanum, en honum tókst að komast út áður en skálinn fór um koll og brotnaði. Sama dag hrannaðist upp krapastífla við inntaksmannvirki Búrfellsvirkjunar í blindbyl og skafrenningi, en ár allar voru opnar upp til jökla. Lagðist krapinn þungt á varnargarð og rauf í hann um 20 metra breitt skarð. Minnkaði þá rafmagnsframleiðsla Búrfellsvirkjunar mjög um tíma og draga varð úr fram- leiðslu álversins í Straumsvík. TJÓNAMAT Örðugt er að meta til fulls tjón það, er varð í óveðri þessu, enda sumpart um óbeint tjón að ræða. Beint tjón vegna bilana á símalínum og nauðsynlegra við- gerða mun samkvæmt blaðafregnum hafa numið um 10 milljónum króna. Tjón á rafmagnslínum mun hafa orðið litlu minna eða sem svarar 8 til 10 milljónum króna og er þá stuðst við upplýsingar frá Guðjóni Guðmundssyni skrifstofu- stjóra Rafmagnsveitna ríkisins. Ótalið er þá beint tjón af vega- og gatna- skemmdum, viðgerðarkostnaður við stíflugarð, tjón á húsum, girðingum, bif- reiðum og búpeningi. Þá er og ótalið sölutjón á rafmagni, ýmiss konar fram- leiðslutjón og síðast en ekki síst margháttuð óþægindi almennings. Sumt af þessu er örðugt að meta til fjár, en ljóst er þó, að lieildarupphæð beinna tjóna verður naumast metin lægra en nokkuð á fjórða tug milljóna króna. Jóhann Pétursson. veðuratliugunarmaður, Hornbjargsvita: Fáein orð um glitský og misjafna hegðan veðurguðsins Um kl. 10.30 hinn þrítugasta des. 1974 rofaði til í suðaustri og birtust þá þrír rauðir bólsturlaga flekkir, (í lítilli hæð héðan að sjá upp af Siglufjarðarfjöllun- um) er allir áttu rætur í undirflekk með sama lit. Skjótlega tóku þeir breyt- ingum í hvítglært og svignuðu jafnframt í toppinn til hafs eins og væru þeir VEÐRIÐ --- 1 9

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.