Veðrið - 01.04.1975, Qupperneq 27

Veðrið - 01.04.1975, Qupperneq 27
2. mynd. Daglegar hitabreytingar í 500 og 1500 m lueð, jan.—mars 1974. hún þá yfir Bretlandseyjar og Norðurlönd í hálfa aðra viku. Á liinn bóginn staðnæmdist liæð yfir Grænlandi, svo að loftið, sem nú streymdi að, var frá hafíssvæðinu milfi Jan Mayen og Norðaustur-Grænlands. Upp úr miðjum mánuðinum skiptir alveg um tíðarfar. í stað lægðarsvæðisins, sem verið hafði yfir Bretlandseyjum, sest |)ar nú að háþrýstisvæði. En að íslandi sækja lægðir suðvestan um Grænlaudshaf liver af annarri. Þegar þær nálgast, sveifla þær lilýju lofti til norðurs á undan sér, en í kjölfar þeirra kemur suðvestan áttin, út- synningurinn, og með honum koma kuldadalir fram á liitaritinu. Eru þeir mjög áberandi fjórir talsins, seinni hluta mánaðarins. Hitaritin fyrir mars bera allt annað og mildara svipmót en mánuðinn á undan, enda var þetta með af-hlýjustu marsmánuðum á þessari öld. Við jörð, og einnig að meðaltali í neðstu 2000 metrunum, var liitinn 1.4 stigum hærri en í meðallagi. Hlýjast að tiltölu var i 500 metra hæð, 2.0 stig yfir meðallagi. Fyrstu tvo dagana var norðaustlæg átt. Að öðru leyti mátti heita að suðlægir vindar væru einráðir þennan mánuð. Hlýindin má best dæma af því, að í 500 metra hæð frá sjó var lengstum frostlaust og hitinn þar oft 3 til 4 stig, enda varð meðalhiti mánaðarins þar 1.3 stig, en 3.6 við jörð. Einkennandi fyrir mán- uðinn var, að liáþrýstisvæði lá nær alltaf yfir Norðurlöndum, en lægðir héldu sig alllangt suður og suðvestur af íslandi. Hingað til lands kom því aðallega loft langt sunnan af hafi, en þó einnig stundum suðaustan frá Bretlandseyjum og Norðursjó. VEÐRIÐ --- 27

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.