Veðrið - 01.04.1975, Side 29

Veðrið - 01.04.1975, Side 29
áratuginn þar á undan var 623. Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart. Hún er í samræmi við það, að jöklar rýrna nú mun minna en um miðja öldina, og sumir hafa jafnvel gengið fram á síðustu árum. Hlákur árið 1973. — Gráðudagar. j F M A M J J A S O N D Við jörð 96 23 83 112 146 224 298 301 246 145 39 27 500 m 58 11 51 52 40 118 193 201 169 87 19 13 1000 m 16 4 16 42 14 44 131 112 96 32 4 4 1500 m 5 2 5 15 6 13 89 52 65 20 2 4 2000 m 1 1 1 2 3 14 37 29 21 7 4 1 Knútur Knudsen: Haustið og veturinn 1973-1974 Október. Hlýjar suðlægar áttir voru ríkjandi fyrstu vikuna og eins eftir 20. Þann tíma var úrkomulítið á Norður- og Austurlandi, en vætutíð sunnan og vest- an lands. Á milli var svo tímabil með norðlægri átt og frosti, föl fyrir norðan, en björtu veðri sunnan til. í heildina var hagstæð tíð um allt land en einna lélegust á Vesturlandi. Snjór var hvergi á láglendi í mánaðarlok og jörð var enn þíð. Nóvember. Strax í byrjun mánaðarins kólnaði og hélst sá kuldi að heita má óslitið fram í mánaðarlok. í Reykjavík hefur nóvember aðeins tvisvar á öldinni verið kaldari, 1919 og 1930. Annars staðar á landinu var tiltölulegalega kaldara en í Reykjavík. Á Akureyri hefur aðeins einn nóvember verið kaldari, en það var 1910. Norðlæg átt var ríkjandi og oftast var frost. Um meiri liluta landsins var alhvít jörð flesta daga mánaðarins, haglítið og víða var fé tekið á gjöf fyrir miðjan mánuð. Tíðarfarið í heild var óhagstætt en áfallalaust. Desember. Ef eitthvað er þá var desember enn kaldari að tiltölu en nóv- ember. Bæði í Reykjavík og á Akureyri var þetta kaldasti desember sem af er öldinni. Tíðarfarið var mjög óliagstætt að öllu leyti. Umhleypingar voru miklir, norðlægar áttir yfirgnæfandi og oft var livasst. Á norðan og austanverðu landinu var snjójjungt og slæm færð. Snenuna í mánuðinum fórust tveir litlir bátar við Austurland og einn maður með hvorum. VEÐRIÐ --- 29

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.