Veðrið - 01.04.1975, Side 30

Veðrið - 01.04.1975, Side 30
Janúar. Mánuðurinn var fremur mildur en umhleypingasamur. Víðast var haglaust eða haglítið vegna svella og snjóa, einkum þó framan af. Oftast voru lægðir í nálægð við landið og þá lielst suðvestur undan en sjaldan fyrir norðan land. Austan og suðaustan átt var ríkjandi, en lítið um norðanátt. Loftvog stóð óvenju lágt og mikið var um þrumuveður, en þetta tvennt fer oft saman á veturna'' Febrúar. Fyrri helming mánaðarins ríkti norðaustan átt með frosti. Fyrstu vikuna var oftast kaldi og aðeins él fyrir norðan, en síðan fór að bæta í vindinn og snjókoman að verða samfelldari. Var stórhríðarveður nyrðra dagana 9.—12. og urðu allir vegir ófærir. Sums staðar féllu snjóflóð og stórfelldar skemmdir urðu á síma- og rafmagnslínum. Slitnuðu línurnar niður vegna ísingar og veðurofsa, en staurar brotnuðu í hundraðatali. Eftir þetta fór veður batnandi og var komið stillt og bjart veður um allt land þ. 16. Djúp lægð stöðvaðist á Grænlandshafi þ. 17. Hlýnaði þá vel og breytli mjög um veðurlag. Var eftir þetta umhleypinga- samt og skiptust mjög á SA-átt með rigningu eða slyddu og suðvestan éljaloft. Hitinn í febrúar var nálægt meðallagi, en tíð verður að teljast óhagstæð. Á norðanverðu landinu var snjóþungt og mikil svellalög þegar á leið. Úrkomu- magnið fyrir norðan var óvenju mikið. Á Akureyri t.d. hefur aldrei mælst jafn mikil úrkoma í febrúar. Mars. Hlý suðlæg átt var einkennandi fyrir þennan marsmánuð ef undan er skilinn svalari vikutími með næturfrosti upp úr miðjum mánuði. Norðan og austan lands var liægviðrasamt og úrkomulítið og talin einmuna góð tíð. Sunnan og vestan lands var talsverð úrkoma en hlýtt. Nokkuð stormasamt var á Suður- landi. Var þó alls staðar talið gott tíðarfar. í lok mars var komin gróðurnál í tún um allt land og sums staðar syðra voru þau orðin græn yfir að líta. Klaki var orðinn lítill í ræktuðu landi og horfinn á blettum. HITI, °C (í svigum fyrir neðan meðallagið 1931—1960). Okt. Nóv. Des. Jan. Febr. Mars Reykjavík ............. 4.8 4-1.3 4-3.6 0.9 4-0.3 3.7 (4.9) (2.6) (0.9) (4-0.4) (4-0.1) (1.5) Akureyri .............. 3.0 4-5.0 4-6.0 0.4 4-1.2 3.6 (3.6) (1.3) (4-0.5) (4-1-5) (4-I.6) (4-0.3) Höfn .................. 4.2 4-2.3 4-3.3 2.3 0.9 4.4 Hólar ................ (4.9) (2.7) (1.2) (0.3) (0.0) (1.5) ÚRKOMA, mm (7 svigum fyrir neðan meðallagið 1931—1960). Okt. Nóv. DES. Jan. Febr. Mars Reykjavík .......... 137 75 42 73 72 134 (97) (85) (81) (90) (65) (65) 30 --- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.