Vikan - 05.01.1961, Page 17
Uj ‘\ýrj
i*
. .
1. Þið takið ferhyrnda servíettu.
2. Brjótið svo servíettuna í horn, þannig
að frá neðri og efri rönd sé um 2 cm bil.
3. Brjótið hornið, sem þá liggur ofan á,
einu sinni um. Látið brotið samt ekki ná
alveg niður að neðstu rönd.
4. Snúið servíettunni alveg við og brjótið
vinstra og hægra horn alveg að miðju.
5. Brjótið hliðarnar aftur að miðju á
saman hátt og þið gerðuð áðan.
6. Snúið servíettunni aftur við, þá snýr
hún eins og upphaflega.
1. Þið hafið ferkantaða servíettu fyrir
framan ykkur og brjótið vinstri og hægri
hlið inn að miðju.
2. Svo brjótið þið servíettuna saman um
miðjuna og látið brotnu hliðina snúa inn.
Þá er servíettan orðin að ræmu jafnstórri
öðrum helmingi í fyrsta broti.
3. Finnið, hvar miðjan er í ræmunni, og
brjótið hliðarhlutana að henni.
4. Endana, sem þá lafa niður, brjóíið þið
tvisvar um, þannig að þeir nemi við
neðstu röndina og þá brjótið þið þá upp á.
5. Takið um báða endana, beygið þá sam-
an og festið þá saman, þannig að þið
stingið hægri endanum í vinstri.
6. í miðjuna getið þið svo lagt brauðsnúð
eða nafnspjald.
Skemmtileg vetrartízka
en gömul
Fyrir utan loðhúfur og loðkraga, hefur myndast skemmtilegt smá-
atriði í sambandi við vetrartízkuna í ár. Það eru legghá stígvél með
hælum. Það er ekki svo ýkjalangt síðan hver einasta kona átti svona
stígvél, munurinn er bara sá að þessi eru ekki með rennilás, eins og
þá tíðkaðist. Aftur á móti hafðir á þeim hnappar eða eitthvað smá-
vegis og stundum er hællinn hafður í öðrum lit eða efni. Það þarf
ekki að taka það fram að hællinn er mjór, eða eins og nú tíðkast að
hafa hann. Stígvél þessi eru úr öllum efnum, rússkinni, leðri og gúmmí
og við viljum eindregið mæla með því að þetta sé skynsamleg tízka,
þar sem þetta er hlýtt og kemur í veg fyrir kuldabólgu á ökklunum
og því sérstaklega þarflegt fyrir þær sem ekki nota síðbuxur svo
neinu nemur.
VIKAN. 17