Vikan - 12.01.1961, Blaðsíða 2
„Eg gæti verið þrítug“
Kæra Vika.
Ég er 19 ára, en systir mín 15, það er
hennar vegna, sem ég skrifa þér. Hún er
vægast sagt mjög erfið. Hún er svo mikið
úti á kvöldin og nóttunni. Mér þýðir ekkert
að tala um fyrir henni, Hún segir bara:
„Ekki varst þú betri“. Og það er satt. Þegar
ég var á liennar aldri, var ég ekki betri.
Ég lenti í ýmsu, sem ég óska nú af alhug,
að hún lendi ekki í. Nú er ég búin að sjá,
hvað mikla vitleysu ég hef gert. Ég olli
móður okkar (sem er ekkja) svo miklu hugar-
angri og kvöl, og nú, þegar systir mín ætlar
að verða alveg eins, er mamma alveg að gefast
upp. Ég vakti svo mikið á nóttunni í alls
Ungírú Yndisfríð
Hér kemur ungfrú Yndisfríð, yndislegri
en nokkru sinni áður og léttklædd að vanda.
Hún er alltaf að týna einhverju, blessunin
og þá finnst henni auðveldast að snúa sér
til ykkar, lesendur góðir, enda hafið þið
alltaf brugðist vel við. Nú hefur hún týnt
naglatakki sínu, en samt fullyrðir hún, að
það sé einhvers staðar í blaðinu. Ef þið viljið
hjálpa henni, þá fyllið út seðilinn hér að
neðan og sendið til Vikunnar. pósthólf 149.
Ungfrú Yndisfríð dregur úr réttum lausn-
um og veitir verðlaun: Carabella-náttföt
að þessu sinni.
Naglalakkið er á bls.......
Nafn
Heimilisfang
2 VIKAN