Vikan - 12.01.1961, Blaðsíða 17
FRANSKI ÞYRILKOLLURINN. Nýtízkulegur LOÐHÚFUKOLLURINN. Meðalstórar rúllur
og franskur. Notið meðalstórar rúllur og settar í allt hárið frá hvirflinum nema rétt
spennur eins og sýnt er á myndum. Burstið í neðstu hárin hjá hálsinum.
vel og svo til hliðar.
YEIÐIKOLluRINN. Þið hafið tvær minni
rúllur fremst, hlið við hlið, en stórar aftur
úr og í hliðunum. Spennurnar, sem þið setj-
ið £ neðst í hliðarnar og aftan á hálsinn,
verða að vera stórar og dálítið mikið í þeim,
svo að hárið falli mjúklega að höfðinu.
SKJALDMEYJARKOLLURINN. — Þessa
sléttu og nýtízkulegu greiðslu fáið þið með
því að setja fjórar stórar rúllur ofan á höf-
uðið og síðan spennur þar fyrir neðan og
látið þær snúa að andlitinu. Ef hárið er sjálf-
liðað, er nóg að festa hliðarlokkinn með
hárlakki.
SAMKVÆMISKOLLURINN. Setjið stóru rúll-
urnar eins og sýnt er á myndinni og stórar
spennur í hliðarnar og neðst á hálsinn. Topp-
urinn helzt betur í skorðum, ef þið sprautið
hárlakki lauslega yfir.
SNJÓKÚLUKOLLURINN. í þessari greiðslu,
er sagt, að allur árangur vetrartízkunnar sé.
Stórar rúllur eru settar í fremstu röð frá
vinstri til hægri og nokkrar fyrir aftan.
Neðst í hárið eru settar spennur. Vefjið ör-
litlu „tissue“ um lokkana, svo að þeir þorni
fljótar.
VIKAN. 17