Vikan


Vikan - 12.01.1961, Blaðsíða 14

Vikan - 12.01.1961, Blaðsíða 14
José Riba hljómsveitarstjóri er fimur í fingrunum við fleira en hljóðfæraleik: Þennan stól smiðaði hann án þess að hafa áður spreytt sig á húsgagnasmíði. Riba býr uppi á fjórðu hæð, og þaðan er útsýni yfir allan bæinn hið innra. A svölunum hefur hann útbúið eins konar stofu með sérstökum húsgögnum. Þeir menn eru öfundsverðir, sem geta smíðað sjálfir, segir fólk. Það er ekki vandi fyrir þá að eiga fallegt heimili. Það kostar ekki svo mikið efnið, en ef kaupa á smið til að smíða hlutinn eða kaupa liann fullbúinn í búð, þá verður annað uppi á teningnum. — Það er að vísu fólginn nokkur sannleiksneisti i þessum skoðunum, en þeir, sem geta sjálfir, eru bara miklu fleiri en halda mælti. Oftast vantar viljann til framkvæmda, en liann dregur, sem kunnugt er, hálft hlass, ef ckki meira. Alvarlegra vandamál er aðstaða til smíðanna og verkfærakostur. Til þess að búa til einfalda hluti þarf þó ekki fjölskrúðug verkfæri, og reynslan mun sýna, að menn hafa oftast einhver ráð með húspláss til einfaldra smíða, ef vilji er fyrir hendi. Við höfum heimsótt mann, sem nýlega hefur lokið við að koma sér upp ibúð í sambýlishúsi og lagt stóran skerf til innréttingar hennar sjálfur. Hann hefur auk þess smíðað húsgögn eftir þörfum. Þessi maður er José Riba, kunnur maður úr skemmtanalífi Reykjavíkur sem hljómsveitarstjóri á ýmsum skemmtistöðum undanfarin tíu ár. Hann er Spápverji að ætt og uppruna, kom hingað til lands 1933, náði sér i konu og fluttist síðan aftur til Spánar. Þar stundaði liann hljóðfæraleik fram til 1950, að hann fluttist alkominn með fjölskyldu sína til íslands og hefur nú numið land við Kleppsveg. Riba sagðist að vísu hafa verið í eins konar iðnskóla á Spáni og fékk þar nasasjón af smíði, en hann telur, að hann hafi staðið í sömu sporum og hver annar byrjandi, þegar hann fékk þá hugmynd að smiða sjálfur eldliúsinnréttinguna. Hann byrjaði auðvitað á því að teikna hana, og Framh. á bls. 32. AÐ VILJA ÞAÐ ER AÐ GETA Armstólana í miðri stofunni hefur Riba sjálfur smíðað og sömu- leiðis stólinn við glugg- ann. Sófaborðið er að nokkru hans verk; hann notaði sem uppistöðu gamalt, spænskt borð- stofuborð. Uús »g húsbúnaður — Ég teiknaði eldhúsinnréttinguna, og svo hugsaði ég og hugsaði, þar til hárið fór að t detta af höfðinu. — Og nú er eldhúsinn- réttingin komin upp og er hin fegursta.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.