Vikan


Vikan - 12.01.1961, Blaðsíða 24

Vikan - 12.01.1961, Blaðsíða 24
Okkar á milli ságt „Ein óhamingjusöm átján ára“. Ef þú ert alveg viss um að þú elskir Þröst þá áttu að skrifa honum eða komast einhvern- veginn í samband við hann. Þú verður að athuga það að það var þin ósk að upp úr slitnaði ykkar á milli, engin furða þótt hann yrði að lokum leiðnr á að ganga á eftir þér. þó skil ég vel hik þitt, sem á rætur sinar að rekja til afstöðu foreldra þinna, en það er ekki sanngjarnt né réttlátt að dæma Þröst og láta hann gjalda föður sins. Þvi miður sannast þarna máltækið —„Syndir feðranna koma nið- ur á börnunum". P Láttu nú hendur standa fram úr ermum, — reyndu að ná aftur sambandi við Þröst — ég efast ekki um að hann verður glaður, verlu svo góð við hann — og ykkur mun vel farnast. í þeirri von kveð ég þig og óska þér alls góðs. Aldís. GóSa Aldls. Ég er giftur maður og á eitt barn. Ég feröast mikið vegna vinnu minnar og nú hefi ég kynnst konu sem er mér allt. Hún er líka gift og á tvö börn, við höfum reynt að hætta að hittast, en okkur tekst það ekki. Nú iifum við aðeins fyrir þær fáu ham- ingjustundir sem við getum átt saman. Hvernig sem ég reyni get ég ekki sýnt konu minni þá ást sem hún ætlast til af mér, og verð að neyða mig til að sýna henni bliðu. Ætti ég að gera hreint fyrir mínum dyrum og fara af heimilinu? Ég ætti mjög erfitt með það. Viitu Aldís min, birta þetta bréf, því að það hljóta að vera fleiri menn i sama báti. Einn i erfiðleikum. Svar: Jú, jú, þetta er bæði gömul og ný saga, og eitthvert hugboð hefi ég um hvernig hún muni enda. Spá mín er sú ar fyrr eða seinna muntu fá nóg af „vinkonu“ þinni. Vegna þess hvað hjónabandið er sterkt munt þú snúa aftur til fjölskyldu þinnar sem alvörugefnari og lífsreyndari maður. Þessi þín „stóra ást“ mun þá standa þér fyrir hugskotssjónum sem stundargaman. Þess vegna skalt þú binda endi á þetta ævintýri núna, þó að þið takið það nærri ykkur, svo ekki hljótist meiri óham- ingja af fyrir tvær fjölskyldur. Innilegar kveðjur. Aldís. 2. verðlaunakrossgáta VIKUNNAR Vikan veitir eins og kunnugt er verðlaun fyrir rétta ráðningu á krossgátunni. Alltaf berast marg- ar lausnir. Sá sem vinninginn hefur hlotið fær verðlaunin, sem eru: 100 KRÓNUR. Veittur er þriggja vikna frestur til að skila lausnum. Skulu lausnir sendar í pósthólf 149, merkt „Krossgáta". Margar lausnir bárust á 49. krossgátu Vikunn- ar og var dregið úr réttum ráðningum. ÞORSTEINN BARÐASON, Skaftahlíð 11, Reykjavík, hlaut verðlaunin, 100 krónur og má vitja þeirra. á ritstjórnarskrifstofu Vikunnar, Skipholti 33. Lausn á 49. krossgátu er hér að neðan. = = s k r 1 ö d ý r i 6 = 6 = = s = k a i n = ö i = £ e .y m = = CX p 1 ri ii = a e a .1 u i i a = = Ti i 1 i ó 0 = U = <5 1 £ a n = = ð á V e i = e r a 1 1 a r i = k 6 e 1 i a = e ð i a = r í s 1 a ð a n a i <5 ð u r p 6 = a = ó k 1 = ó u e = = f r 0 s k u r a t a f a X á s = e = k = <5 f 1 n u = e = <5 t a m i n i m b a k = s 6 t a i =. i 6 g a = e a s a t 3 m a c u r = a ð = V a i t r a u e r i ð a s t a ð u r = = = = b á k n = i a = e i e t Hev glögg eruð þið. Hér eru tvær eins myndir, að því er virðist. En neðri rnyndin er frábrugðin þeirri efri í sjö atriðum. Reynið nú að finna þessi atriði, og verið ekki lengi. — Lausnin er á bls. 29. 24 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.