Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 12.01.1961, Qupperneq 16

Vikan - 12.01.1961, Qupperneq 16
BANDARÍSKI TÍZKUKOLLURINN. Stórar rúllur í toppinn og hliðarnar til að skapa fyllingu, spennur aftast og í hliðarhár. KISUKOLLURINN. Greiðslan er gerð svona mjúk með því að vefja „tissue“ um lokkana, þegar sett er í. Mjúka ýfingin aftast á koll- inum stafar af því, að greitt er aftan frá og upp. Þessi ýfing gefur of kringluleitu eða of ferköntuðu andliti mikið jafnvægi. « Hárið 1961 » Nú á hárið að Vera stutt, en samt alls ekki drengjakollur. Krullur eru algjörlega úr sög- unni og sömuleiðis „túberingar“ að miklu leyti. Samt á að setja í hárið, en þannig, að hárið virðist slétt á eftir eða með mjúkum bylgj- um. Gardínugreiðslan er farin veg allrar ver- aldar, og nú er liver einasta kona með hálftopp, greiddan eftir vild, en oftast út í aðra hliðina. Hárið kemur hvorki út né inn í hliðunum, held- ur er það greitt fram í lokka og þá oftast einn lokk í hvorri hlið. Hárgreiðslan er því mjög svipuð þvi, sem hún var um 1920, — slétt, stutt hár, greitt fram í veiðilokka. Rétt er að taka það fram, að ekki er nóg að klippa sig stutt, setja spennur í hliðarnar og fara að sofa. Nei, ekki aldeilis, það kostar mikla fyrirhöfn og góða klippingu að gera hárið svo slétt og á- ferðarfallegt sem tízkan krefst. Og rúllurnar eru ekki horfnar af sjónarsviðinu, þið gerið svo vel og setjið í allt hárið, en þannig, að það virðist slétt. Já, hvernig á að fara að því? Hér sjáið þið nokkrar nýtízku-hárgreiðslur og einn- ig skýringarmyndir við, þannig að þið sjáið hvernig setja á i sig til að fá fram þessa hár- greiðslur. Framhald á bls. 29. S V U N T A HÉR kemur falleg sVunta fyrir iitiar teípur. Efni: ca. 60 sm. af 80 sm. breiðu poplinefni i fallegum litum, sem fara vel við svuntuefnið. Byrjið á að strika ferninga á pappir, hvern ferning 5x5 sm., teiknið síðan sniðið inná eftir skýringarmyndinni. Klippið sniðið út og sniðið svuntuna eftir þeim með 1 sm. í saumfar. Saumið nú svuntuna þannig, fyrst hliðarstykk- in við framstykki, frá mitti og niður. Síðan hliðarstykki, sem koma að aftaif földuð, þá rykk- ingarþræðir saumaðir i hliðarstykki og rykkt saman eftir smekk. Saumið strengbandið 6x60 sm á stærð, við svuntuna, það sem út af gengur verða svuntuböndin, sem hnýtast saman í slaufu. Faldið nú smekkinn að ofan og leggið legging- arbandið yfir saumana að framan, hliðarnar á smekknum og yfir höfuðið, þræðið bandið vel niður og stingið tæpt í brún í saumavél. Faldið svuntuna að neðan. 16 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.