Vikan


Vikan - 12.01.1961, Side 20

Vikan - 12.01.1961, Side 20
Nú er fjör í flestum félögum, hverju nafni sem þau nefnast. En allt of margir unglingar eru ekki í neinu félagi og fara þvi á mis við Þá ánægju, sem gott félagslíf veitir mönnum. Það er ólíkt skemmtilegra og ódýrara, að starfa í skákfélagi, íþróttafélagi eða öðru, heldur en að vera á rúntinum hverja kvöldstund. Því leggur Æskan og lífið til, að þú gangir í einhvern félagsskap og takir raunhæfan þátt i störfum hans. Svo er annað. Lang- flestir strákar eru lakir í dansinum. Það er hreinasti óþarfi að kunna ekki að dansa venjulegustu samkvæmis- dansa, þegar fullt er af prýðisgóðum dansskólum. Það er sitthvað að kunna ekki argentínskan tangó, en út yfir tekur, þegar piltar sextán ára til tví- tugs geta ekki slysalaust dansað venjulegan tangó. Hér er „tjúttaö“ af fuTlum kraftx. skemmtikraftar Margir muna vafalaust eftir Munn- hörputríói Ingþórs Haraldssonar sem lék hér á skemmtistöðum fyrir nokkr- um árum. Ingþór byrjaði eins og margir að leika á dansæfingum og kom fyrst opinberlega fram í Reykja- vík í Bláu stjörnunni 1949. Næstu ár á eftir lék hann með ýmsum hljóm- ÞórSur, Ingþór, Torfi. sveitum svo sem Svavari Gests og K.K. og svo Stjörnukabarettinum. í Bláu stjörnunni lék Sigmundur Lúðvíksson undir á gitar, enn fremur lék Karl Lilliendahl á gítar með hon- um svo og Haraldur Baldursson. Vet- urinn 1953 til 54 var Ingþór með tríó og léku þá með honum þeir bræðurnir Halldór og Torfi Guðbjartssynir. Og veturinn þar á eftir léku þeir ein- göngu á Keflavíkurflugvelli, nema einu sinni í Reykjavík. 1955 hættu þeir að vinna á vellinum og datt þá trróið niður. Nú er Ingþór búinn að stofna ann- að trió og leika þeir með honum þeir Torfi Baldursson og Þórður B. Haf- iiðason. Við höfðum tal af Ingþóri og hér kemur svo hvað okkur fór á milli. — Það er nokkuð langt siðan að þú hefur leikið opinberlega Ingþór? — Já, það eru liklegast ein fimm ár, eða síðan tríóið hætti 1955. — Voruð þið búnir að æfa lengi, áð- ur en þið byrjuðuð að koma fram? — Við höfum æft eina tvo mánuði og gekk það vonum framar. Ég bjóst varla við að geta tekið til starfa fyrr en eftir áramót, — En nú er þetta sem sagt komið á rekspöl. Býstu við að geta haldið svona skemmtiatriði gangandi lengi? — Nei, það er varla við því að bú- ast. Það verður sjálfsagt þennan vet- ur, en það gefur auga leið, að hér er alltof fátt fólk. Úti væri hægt að ferðast borg úr borg og vera jafnvel með sömu dagskrána alls staðar. En breyting á lögum krefst svo mikillar vinnu, að þvi verður varla við kom- ið með stuttu millibili. — Þeir Torfi og Þórður hafa leik- ið í hljómsveitum, er ekki svo? — Jú, Torfi hefur t. d. leikið á git- ar í Þjóðleikhúskjallaranum og Þórð- ur verið trommuleikari. Við fáum að taka af þeim nokkrar myndir og auk þess leika þeir fyrir okkur nokkur lög. Fannst okkur þeim hafa tekizt vel með val á lögum og gaman að hlusta á þá. Enda eru munnhörpur skemmtileg hljóðfæri, þegar vel er spilað. Annars sagði Ingþór að munnhörpur teldust ekki hljóðfæri á tollskrá, heldur leikföng og þótti okkur það nokkuð fyndið. Svona var það líka í Englandi þegar Benny Goodman var í hljómleikaför þar. Gítaristinn fékk ekki atvinnu- leyfi, svo hann lék á munnhörpu, af því að það var ekki hljóðfæri og gerði þó mikla lukku. __ __ __ Vonandi gerir tríó Jóns lukku lika. textinn Það var hérna fyrir nokkrum ár- um, að krakkarnir í einum barna- skólanum fyrir norðan voru beðnir að nefna tvo mestu mestu Islendinga í fortíð og nútíð. Og þessir menn voru þeir Gunnar á Hlíðarenda og Haukur Morthens. Þegar Brynleifur heitinn Tobíasson menntaskólakennari heyrði þetta á hann að hafa sagt: — Na, Haukur Morthensen dúllusöngvari. — og hló mikinn. Ekki varð þetta þó til þess að Hauki hrakaði, heldur hefur vegur hans vaxið meðal vor og Haukur. mörgum finnst einhver bezti skemmti- kraftur sem völ er á. Hérna er svo textinn um hann Gústa i Hruna og er hann orðinn um átján ára gamail. GÚSTI í HRUNA. Þaö var sungiö um hann Gústa í Hruna i revíunni Halló, Ameríka áriö 191/2, og nú, átján árum síöar, hefur Haukur Morthens sungiö um hann Gústa á hljómplötu. Hann Gústi í Hruna með harmonikuna hann er sem funi sá sveinn. Hann spilaði valsa með spriklandi galsa og i splæs var hann alis ekki seinn. Og enga ég veit um þar vestur i sveitum, sem vildi honum neita um dans. Þær unnu honum einum, þó oft væri í meinum, og læddust í leynum til hans. Það var karl, sem kunni að kyssa, drekka og slást. Klammarii hann kom af stað, _ hvar sem hægt var að uppdrlfa það. Það var karl, sem kunni að kyssa, drekka og slást. Enda sagði hann oft: Það er ánægjan mín: ástir, slagsmál og vín. Þó væri hann ei ríkur, hann var engum líkur, það var enginn slíkur sem hann. Með lokkana sína, svo ljósa og fína, mig langaði að krýna þann mann. I Keflavik reri hann, á hvern mann þar sneri hann; sá kunni að bera sinn skjöld. Að stúlkunum smaug hann, að strákunum laug hann og slóst svo hvert laugardagskvöld.. 1 ■ ] ! ' i í | Það var nú karl, o. s. frv. Hann Gústi í Hruna lét hestana bruna með hófana dunandi slag, var fullur í réttum með fettum og brettum og fannst þá svo létt um sinn hag:. Vingleði ann hann, en vinnuna kann hann, á veturna spann hann með glans. Á sumrin hann heyjar úm engi og eyjar, þá eru allar meyjarnar hans. Það var nú karl, o. s. frv. Forsíðan Þið sjáið, að Bakkabræður eru enn á ferð á forsíðunni og að þessu sinni eru þeir að stumra yfir merinni og fannst það helzt ráð að bera á hana grjót svo hún ekki fyki. Segir í sögunni: „Eftir það fauk hún hvorki, né stóð upp framar.“ Halldór Pétursson teiknaði myndina. Ragnar Bjarnason í þungum þönkum. 20 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.