Vikan - 05.10.1961, Síða 14
Elskar mig, — elskar mig ekki ...
— Það er ekki gott að vita. Hann
getur áreiðanlega fullvissað þig
um, að hann geti ekki lifað án þín,
að þú gerir hann alveg viti sínu
fjær, — en meinar hann það? Þú
vilt gjarnan trúa þessu, en geturðu
treyst orðum hans, eða leynist efi
í hjarta þínu? Notaðu tækifærið,
og svaraðu nokkrum nærgöngulum
spurningum, alveg eins og þú mund'-
ir spyrja baldursbrána samkvæmt
gamalli þjóðtrú: Elskar mig, —
elskar mig ekki ...
Þennan spurningaleik höfum viB
gert úr garði sem nokkurs konar spil,
og geta spilendur verið eins margir
og verkast vill. Þetta er mjög einfalt
og blátt áfram. Teiknið upp á b.að
19 karlá i röð. Merkið þá með töiu-
stöfunum, og byrjið á nr. 1. Hver
spilandi fær lítinn tening, sem flutt-
ur er eftir köflunum. Reglurnar eru
aðeins þær, að fyrir fram verður
maður að lofa að hugsa sig vel um
fyrir hverja spurningu og svara hrem-
skilnislega. Óskhyggja er bönnuð.
1. Hefur hann sagt, að hann elski
Þig?
Ef svo er, þá máttu flytja þig á nr.
3. Ef svo er ekki, verðurðu að vera
kyrr á sama stað.
2. Hefurðu heilsað upp á fjölskyldu
hans?
Já. Þú mátt færa Þig um einn reit.
— Nei. Kyrr á sama stað.
3. Fer hann með þig hvert sem er
og kynnir Þig vinum sínum?
Já. Flyttu þig um einn reit. — Nei.
Kyrr á sama stað.
4. Segir hann þér frá framtiðar-
áætlunum sínum, og reynir hann að
koma þér fyrir 1 þeim?
Já. Flyttu þig um tvo reiti. — Nei.
Færðu þig um einn reit aftur á bak.
5. Ertu viss um, að Þú sért honum
meira virði en vinir hans og jafnvel
fjölskylda?
Já. Flyttu þig áfram um tvo reiti.
— Nei. Vertu kyrr.
6. Vill hann vera með þér hvern
einasta dag?
Já. Flyttu þig um einn reit. — Nei.
Flyttu þig um einn reit aftur á bak.
7. Hefur hann áhuga á erfiðleikum
þínum, ef þeir eru einhverjir?
Já. Flyttu þig um einn reit. —
Nei. Flyttu þig um einn reit til baka.
8. Gortar hann af Þér eða sambandi
þínu við annað fólk?
Já. Flyttu þig fram um tvo reiti.
— Nei. Flyttu þig um einn reit til
baka.
9. Talar hann mikið um fyrri ást-
arsigra sína?
•Tá. Kyrr þar sem þú ert.
Nei. Flyttu þig um einn reit.
10. Geturðu hiklaust sagt það, að
Elskar
mig
elskar
mig ekki
hann fari öðruvisi og betur með þig
en nokkra aðra manneskju?
Já. Flyttu þig um tvo reiti. — Nei.
Kyrr á sama stað.
11. Gefur hann í skyn, að Þú sért
sú eina, að með Þér vilji hann eyða
lifinu?
Já. Flyttu þig um tvo reiti. — Nei.
Kyrr á sama stað.
12. Þegar þið eruð saman í boði,
er hann þá fjörugur og skemmtileg-
ur án þess að þurfa nokkuð að hafa
fyrir þvi, og á hann auðvelt með að
hlusta á og tala við aðra?
Já. Flyttu þig um tvo reiti. — Nei.
Flyttu þig um einn reit aftur á bak.
13. Leiðist þér hann nokkurn
tíma?
Já. Flyttu þig um tvo reiti til baka.
— Nei. Kyrr á sama stað.
14. Reynir hann að finna Það bezta
í þér, og hefur hann áhuga á Þér
sem manneskju?
Já. Flyttu þig um einn reit. — Nei.
Kyrr á sama stað.
15. Er hann leyndardómsfullur?
Ef svo er, þá vertu kyrr á sama
stað. Ef hann er opinskár, þá flyttu
þig um einn reit.
Það er enginn vafi á því, að kirkju-
klukkurnar hljóma bráðlega í eyrum
þér, ef þú ert við fimmtándu spurn-
ingu komin á reit nr. 18. Það lítur
út fyrir, að þið eigið mjög vel saman.
Ef þú ert við fimmtándu spurningu
komin á 15. eða 16. reit, er þetta
áreiðanlega réttur piltur, sem þú ert
með. Þú ert bara ekki örugg með
sjálfa þig. Taktu hlutunum rólega,
og láttu tímann leysa úr þessu.
Ef þú ert við fimmtándu spurn-
ingu á 12. reit eða þar í nálægð, er
ólíklegt, að hann sé mjög hrifinn af
þér. Hugsaðu þig vel um, áður en
þú tekur nokkra ákvörðun.
Ef þú ert fyrir neðan 12. reit: Þú
heldur kannski, að þú sért ástfangin
af honum, en hann er að minnsta
kosti ekki ástfanginn af Þér. -Ar
;a
HLAUPAG
SELUF
Algeng sjón á Melavellinum fyrir 12 árum: Óskar Jónsson
kemur í mark í 1500 m. hlaupi ca. 60—80 metrum á undan
keppinautunum.
Fyrir rúmum áratug var ísland stórveldi á vettvangi frjálsra
iþrótta, eða allt að því. Þá voru hér í einu fjórir eða fimm
menn, sem hlaupa hundrað metrana vel undir ellefu sekúndum
og áhugi fyrir þessum málum var þá miklu meiri en nú er að
þvi er virðist. Blöðin kyntu undir áhuganum og iþrottasi'our
og jafnvel fréttadálkar blaðanna gerðu þá miklu meiri mat úr
einstökum afreksmönnum, en nú tíðkast. Það er líka að mörgu
leyti eðlilegt. Áhuginn dofnar, þegar getan minnkar.
Nú eru þeir menn sem gerðu garðinn frægan fyrir tíu árum,
flestir hættir þátttöku í æfingum og keppni og aðrir komnir í
staðinn. Af einhverjum ástæðum virðast íþróttamenn halda
öltu skemur út hér en erlendis og þess eru mörg dæmi, að
Grunnteikning af einni íbúðanna í Álftairtýri, sem Óskar bygg1-
ir og selur fokheldar.
r jjl! ' W
c :
f' . XX1. xzS lítXY
j :
14 VIKAN