Vikan - 05.10.1961, Side 18
Þessi fallega dragt er prjónuð úr sléttu prjóni og er tvílit. Pilsið
og jakkinn eru ljós, en peysan og jakkinn að innan eru dökk og
koma dökkar bryddingar út á boðunga jakkans.
Prjónuð föt eru mikið í tízku þetta árið og má segja að nú
nái peysutízkan hámarki. Og það eru ekKi eingöngu peysur sem
eru prjónaðar heldur einnig kápur, kjólar, dragtir, húfur og ótal
margt fleira. Prjónuð föt eru mjög klæðileg og þægileg og mega
allir vera ánægðir meðan þau eru í tízku og sérstaklega þar sem
auðvelt er að búa til sjálfur. Hérna á síöunni eru nokkrar myndir
af nýjustu prjónatízkunni í Prakklandi og eru hér allar tegundir
af prjóni, en það sem er samt alvinsælast núna er nokkurs konar
netprjón af mörgum gerðum. Mikið tíðkaðist í sumar að peysur
væru örlítið flegnar og stutterma, en vetrarpeysurnar eru þykkar
og grófar og langerma. Og eins og síðastliðinn vetur eru kragarnir
miklir og háir og mikið um húfur, sem eiga við þá.
SUóiopcysn
Hér er uppskrift af fallegri og ein-
faldri skólapeysu.
Efni 4—600 gr af grófu, spengdu
garni.
Einnig má vinda saman tvo liti af
fíngerðara garni eða jafnvel lopa. Ath.,
að litirnir fari vel saman.
Mynstur: sléttprjón, slétt frá réttu
og brtigðið frá röngu.
Brugðningur: 1 I. sl. og 1 1. br.; næsta
umferð þannig, að slétt prjónast yfir
slétt og brugðið yfir brugðið.
11 lykkjur prjónaðar 16 umf. slétt-
prjóni mælast 10 ciií.
Bakstykki:
Fitjið upp 56 1. á prjóná nr, 7, og
prj. 11 sl. og 11 br. 5 cm.
Prjónið síðan sléttprjón, þar til Stk.
mælist 35 cm.
Fellið þá af fyrir handvegi, 2 1. 2
sinnum, 1 1. einu sinni.
Prjónið áfram, þar til 20 cm mælast
frá handvegséirtöku. Fellið af fyrit' öxl-
um, 5 1. 1 byrjun næstu 6 umferða. Fell-
ið af 16 1., sem eftir eru, i einni umferð.
Framstykki: prjónast eins og bak-
stykki, þar til það mælist 35 cm. Fellið
þá af fyrir handvegum, og skiftið stykk-
inu um leið í tvo jafna hluta, og prjón-
ast annar lilutinn fyrst.
Takið úr 2 1. við hálsmálið í 4 bv.
umferð 8 sinnum. Á vinstra stykki
prjónast 5. og 6. siðustu lykkjurnar
saman, en á hægra stykki prjónast 4.
og 5. 1. sl. saman.
Ermar: Fitjið upp 26 1. og prjónið
5 cm brugðning, 1 1. sl. og 1 1. br.
Prjónið síðan sléttprjón. Aukið út 1 1.
hvorum megin á hverjum 6. og 8. hv.
prjóní 7 sinnum. Þá eru 42 1. á prjón-
inum.
Þegar ermin mælist 38 cm, er fellt af
báðum megin þannig: 2 1. 3 sinnum,
1 1. 8 siitnum. Lykkjurnar 14, sem eftir
erii felidar af i einni umferð.
Pre'ssið öll stk. mjög laust frá röngu.
S’aumið hægri axlarsaum saman.
Takið upp 75 1. i hálsmálið þannig
að draga garnið frá röngu á réttu með
prjóninum, en taka elcki upp lausa
lykkjuhelminga. I.átið lykkjurnar
verða jafnmargar á báðum helmingum,
annars gæti hálsmálið orðið skakkt.
Prjónið nú'þessar 75 1. 4 cm brugðn-
ing, prjónið 2 1. saman sitt hvorum
megin við miðlykkjuna, í annarri hv.
umferð. Fellið af.
Saumið saman hliðar, — axlar — og
ermasauma með aftursting. Saumið
ermarnar í.
Pressið laust frá röngu yfir saum-
ana, ef með þarf. ★
Þetta er falleg
rauð peysa
prjónuð með
sléttu prjóni.
Úrtakan í
handveginum
er sérstaklega
skemmtileg og
einnig stroffið.
1B VIKAK