Vikan


Vikan - 19.10.1961, Blaðsíða 22

Vikan - 19.10.1961, Blaðsíða 22
The Shadows Það byrjaði allt á kaffihúsi í London. Þá kom Cliff Richard sem ennþá var óþekktur söngvari, þar fram í skemmtiþætti ásamt þremur gítarleikurum og einum trommuleikara. Cliff átti að fara í söngferðalag um England, en hljómlistarmennirnir sem áttu að fara með honum vildu ekki fara. Þess vegna fengu fjórir úr kaffihúsinu tækifæri, og Þeir kunnu að notfæra sér það, þvi ferðin varð stórkostleg sigurför. Hljómplötufélagið Columbia gerði samning við þá og sjónvarsstjórnandinn Jack Good fékk þá til að koma reglulega fram í sjónvarpinu. Þessir ungu piltar, sem höfðu séræft sig í rockhljómlist kölluðu sig The Drifters í fyrstu. Nafnið var Þó ekki sjaldgæfara en það að skömmu seinna fóru að koma út í Bandaríkjunum plötur með söngvurum, sem kölluðu sig The Drifters. Þess vegna ákváðu hinir ensku Drifters að skipta um nafn og kölluðu sig The Shadows, skuggana. Nú ætlum við að kynna meðlimina í The Shadows hvern fyrir sig: Jet Harris er 22 ára og fæddur í London. Þegar hann var búinn í skóla, byrjaði hann að læra málmsmíði, en jafnframt þvi lærði hann á gítar. Jet hefur mjög gaman af kappakstri og langar mjög til að taka einhvern tíma þátt í kappaksturskeppninni í Monte Carlo. Hann hefur einnig reynt fyrir sér sem rithöfundur og ásamt Royston Ellis skrifaði hann bókina „Driftin," sem seidist í 30.00 eintökum, og er það ekki merkilegt, þegar tekið er tillit til þess, að hún fjallar um Cliff Richard. Hank Marvin er 20 ára og ættaður frá Newcastle. Hann var nýbúinn í skóla þegar hann fékk stöðu í hljómsveit. Hank á stórt og glæsilegt vopnasafn. Hann hefur samið mörg af lögunum, sem The Shadows spila. Eitt af þeim, „Midnight Rock“ var samið ásamt skólafélaga. Bruce Welch er 22 ára og ættaður frá bænum Bognor. Bruce og Hank fóru saman til London í atvinnuleit sem hljómlistarmenn. Það gekk mjög erfið- lega og Bruce segir, að þeir hafi oft verið svo hungraðir, að þeir hafi orðið að liggja í rúminu til að reyna ekki á sig. Trommuleikarinn og hljómsveitarstjórinn, Tony Meehan er frá London. Hann er ekki nema 19 ára og Því yngsti meðlimur hljómsveitarinnar. Hann varð að sækja um leyfi hjá skólayfirvöldunum, til að skrifa undir fyrsta samning sinn, Þvi hann var aðeins 15 ára, þegar honum voru boðin 25 pund á viku (3000 kr. ísl.) fyrir að ferðast um með skemmtiþætti. The Shadows eru mjög vinsælir og ekki aðeins vegna þess að Þeir spila undir hjá Cliff Richard. Þeir geta einnig staðið á eigin fótum og það sýnir fjöldi af plötum, sem gefnar eru út af Columbia félaginu, með nöfnum eins og t. d.: Feelin'Fine, Saturday Dance, Lonesome Fella, Man of Mystery og Bongo Blues. 22 VIKAN Gömul hugmynd !^J\t^cy_yU f- 'ífe' Siw ferðast auðvitað mikið, í þetta skipti er hún að fara til Hamborgar, Genéve, Amsterdam* París, Kaupmannahafnar, Stockholms, allt á einni viku. Það er ekki að undra þó hún segi öðru hverju við sjálfa sig: Það vildi ég að ég væri gift, ætti þrjú börn og sæti bara heima í stofu. VIKAN 23 UM&U'á ki" Islendingar hafa enn einu sinni eignazt nýjan Norðurlandaskákmeist- ara! Ingi R. Jóhannsson bar sigur úr býtum á Skákmóti Norðurlanda, sem að þessu sinni var haldið hér á landi, hlaut 7% vinning af 8 mögulegum, gerði einungis eitt jafntefli, við Jón Pálsson, sem varð þriðji en annar varð Jón Þorsteinsson. E'kki gátu þeir að þessu sinni heiðrað þetta skákmót með nærveru sinni Þeir félagar Friðrik Ólafsson og Bent Larsen og ekki heldur t. d. Stáhlberg eða Svein Johannessen fyrrverandi Norður- landameistari, en þessir menn hefðu sett annan og meiri svip á þetta mót heldur en raun varð á. Ingi er vel að þessum sigri sínum kominn, en vonandi fær hann meiri og verðugri mótspyrnu næst þegar hann þarf að verja titilinn eftir 2 ár, en þá verður teflt i Odense í Dan- mörku. Eftirfarandi staða kom upp i skák þeirra Inga — K. Gannholm, Sví- Þjóð. Tveir appelsínukassar eru settir ofan á hvorn annan og hengi sett utan um þá. Þessa uppskrift á ódýru húsgagni í herbergi ungu stúikunnar þekkja víst flestir, en hvers vegna ekki að bæta nokkrum auka- atriðum við, Þannig að húsgagnið verði reglulegt snyrtiborð? Það þarf ekki mikið til. Dökkmálaður stallurinn má vera úr fjölum, sem standa þá lóðréttar. Stallurinn á að vera minni um sig en appelsínu kassarnir, svo þeir komi dálitið út yfir. Nú geíur hengið skýlt án þess að strjúkast við gplfið. Hengið er fest á flata trélista að oían, sem þaktir eru efni. Á hliðunum erJ þeir negldir í kassana, en þeir tveir bifar, sem eru á framhliðinni eru festir með hjörum á horn- unum, svo hægt sé að opna borðið, án þess að færa hengið til. Venjulegur járn- krókur lokar báð- um helmingunum. Innan á hengið (það má ekki vera úr of þunnu efni) eru saumuð nokk- ur hólf, í þeim er gott að geyma smámuni, sem annars týnast eða flækjast um allt. Á listanum er svo sérsttaklega plast- fóðrað hólf, sem notað er undir alls kyns úrgang eins og notaðar andlits- þurrkur og fleira. Sams konar hólf undir baðmull er einnig gagnlegt. Tréplata eða bara sterk pappaplata þakin contactpapp- ír gegnir hlutverki borðplötu. ABCDE FGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson. Kgl, Dc!2, Hbl, Hfl, Re5, Bg2, Bf4, peð a4, b4, c5, d4, e2, ‘f2, g3, h2. Svart: Karl E. Gannholm, Svíþjóð ,i Kg8, Dd8, Ila8, Hf8, Bd7, Be7, Re4, peð a6, b7, c6, d5, eG, f5, g4, h7. Svartur hefur teflt hina svokölluðu Grjótgarðs-vörn: d5—e6—f5— og c6, en Gannholm notaði þessa uppbygg- ingu jöfnum höndum bæði á svart og hvitt. Ingi hefur aftur á móti miklu eðlilegra ta.fl; hann hefur sterkan riddara á miðborðinu sem ekki verður hrakinn burtu með peði, andstætt svarta riddaranum, hann hefur rýmri peðastöðu og betur staðsetta menn. En það er ekki öllum jafnvel gefið og Inga að notfæra sér slíka yfir- burði á jafn einfaldan og snotran hátt. Ingi á leik og lék: 1. BxReJf! dxek 2. Dd2 Bf6 3. Rclt Be8 //. Rd6 Dd7 5. b5 axb 6. axb Be7 7. bxc6 Dxc6 8. Be5 BxR 9. Dg5 Bg6 10. cxd6 Hff 11. Hf—cl Dak 12. Hxb7H HxH 13. Df6 Da7 H. Hc7! Gefið. Þessi ungi piltur þarna á mynd- inni er ekki nema 20 ára, en á Rolls Royce bíl og þrjá unglingaklúbba með tilheyrandi danshljómsveitum. Harrn stofnaði fyrsta unglingaklúbb sinn þegar hann var 17 ára í leigu- húsnæði i London. Frain til þess var hann á bílaverkstæði í London að iæia vélvirkjun. Næsta klúbb stofnaði hann þegar hann var átján ára og nú liefur hann stofnað þann þriðja. Allir eru klúbbarnir eiin- göngu fyrir unglinga. Faðir hans, sem er símaverkfræðingur liætti vinnu sinid til að geta aðstoðað son sinn. Meðlimir klúbbanna eru sam- tals 15.000. Aðgangseyrir er sjö kr. og eitthvað aukalega fyrir að dansa. Þessi framtakssami ungi inaður heit- ir Brian Bentley og síðasta uppá- tæki hans er að gefa út plötur með lögum eftir sjálfan sig. Hann bæði syngur og spilar á píanó, trompet og saxofón. Á myndinni rétt sést í Brian fyrir aðdáendum. Vinsælasta dægurlagasöngkonan í Svíþjóð sem stendur heitir Siw Malm- kvist. Og það er ekki nóg með það hún er þar að auki á toppnum í Danmörku, Noregi og Þýzkalandi. Hún kom fyrst fram sem söngkona árið 1953 og vann þá söngkeppni, sem sænska útvarpið hélt í heimabæ hbnnar Landkrona. Skömmu seinna sigraði hún einnig í landskeppninni í Malmö og nú var hjól- ið byrjað að snúast. Við útvarpssam- keppni í Stockholm hlaut hún fyrstu verðlaun og söng skömmu síðar inn á fyrstu plötu sina hjá félaginu Metron- ome. Það kom ekki til mála að fara aftur heim til Landkrona. Hinir þekktu söng- stjórar, Arne Domnerus og Gharlie Norman komu auga á liæfileika hennar og næsta árið á eftir ferðaðist þessi 17 ára stúlka um alla Svíþjóð og alls staðar var hún jafnvinsæl. Þetta var mikil frægð, en licnni fylgdu þreytandi ferðalög og erfið vinna. Og einn dag- inn lokaði hún augunum og hoppaði út úr lestinni. Rétt eins og hún hafði stigið inn i hana i'yrir ári siðan. Mót- mæli og hótanir hafði hún að engu. Hún var búin að fá nóg. Stuttu seinna var hún komin um 600 km. burt frá Stokkholmi og bjó í hinum lappneska bæ, Umeá. Hún vann á skrifstofu í litlu fyrirtæki, vann sér inn einn fjórða af því, sem hún hafði gert sem söngkona og hún var hamingjusöm. Aðeins fáeinar manneskjur vissu hvar hún var. Meðal þeirra var hinn ungi forstjóri Metronome, ToTsten Ekberg. Torsten vissi að aðeins ein söngkona var til eins og Siw, en aftur á móti voru nokkrar milljónir af skrifstofustúlkum eins og henni. Nokkrum máinuðum eftir að hún kom til Umea hringdi hann og bauð henni fínan samning, ef liún kfeemi aftur til Stockholms. Siw neitaði henni leið ágætlega þarna í kuldanum og snjónum og þar að auki var hlýtt á milli hennar og ungs pilts í bænum. Hún vildi ekkert með Ekberg hafa að gera og hans freistandi tilboð. Viku seinna hringdi hann aftur og sama svar. En Ek- Siw elskar dýr og dag nokkurn stakk hún af á milli tveggja flugferða og fór í dýra- garðinn. Þessi Iitli bangsi var alveg ómót- stæðilegur og Siw varð að fá hann út úr búrinu. berg var ekki einn af þeim, sem gefast upp þegar blæs á móti. Hann hafði e-kki til einskis stofnað heimsfrægt plötufé- lag aðeins 19 ára, ekið um á hjóli í snjónum til að selja fyrstu plöturnar sinar og komið þvi inn i fólkið mieð mikilli þolinmæði að það væri hjá Metronome, sem eitthvað skeði. Hann var maður sem vissi nákvæmlega hvað hann vildi. M.a. vildi hann gera Siw Malmkvist að alþjó'ð- legri söngstjörnu. í tvö ár hélt hann áfram sínum reglulegu símahringingum. Og svo dag nokkurn, í því að hann ætlaði að leggja tólið á kom frá Siw: Allt í lagi, ég kem til Stockholms á morgun . . . Ekberg missti tólið á gólfið. Siw var loksins orðin þreytt á ritvélinni og kuldanum. Og þau persónuleglu bönd, sem höfðu bundið hana við Uméá voru löngu slitin. f staðinn beið hennar álitlegur samningur og lúxusíbúð í Stockhólmi og hún gat heldur ekki án söngsins verið þegar til kastanna kom. Svo byrjaði hún i annað skipti á framabraUtinni. Endurkoma liennar var það stórkostlegasta í sænska skemmtanalífinu. Hún varð undir eins hin ókrýnda drottning dægurlagasöngsins. Á næstu mánuðum sýndi hún óvenjulega mikla hæfileika og kom jafnvel hinum ánægða framkvæmdastjóra sínum á óvart með því að læra að syngja á lireinni dönsku, norsku, ensku og þýzku, þannig að enginn gat heyrt að liún var útlendingur. Með því ruddi hún braut að hinni alþjóðlegu frægð sinni. Kaupmannahöfn hefur smátt og smátt orðið miðstöð í hinni umfangsmiklu starfsemi hennar í Evrópu. Þar finnst henni hún eiga heima. Siw hefur leikið i fleiri kvikmyndum og vinsældir hennar fara stöðugt vaxandi þó halda mætti að þær gætu ekki verið meiri. Nýlega varð hún að hætta að syngja vegna áreynslu, hún veiktist i hálsinum, en það var aðeins um tima, nú er hún byrjuð af fullum krafti aftur. Siw Malmkvist

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.