Vikan


Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 4

Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 4
$ERUM TISSULAIRE V pst'í"' - : 1 1 .mkSfr. | j| N ungr otið^ANQASTER SNYRTIVÖRUR DAGKREM NÆRINGARKREM ANDLITSM J ÓLK ANDLITSKREM BODY MILK MAKE-UP STEINPÚÐUR LAUST PÚÐUR VARALITIR VARALITABLÝANTAR AUGNPOKAKREM AUGNHÁRALITUR AUGNSKUGGAR AUGNABRÚNABLÝANTAR KINNALITIR Ö. VALDIMARSSON & HIRST H.F., GOÐHEIMUM 6, REYKJAVÍK. Vandamál... Elsku Póstur minn. Þannig er mál með vexti, að við tfum þrjár vinkonur, og við höf- um alltaf verið saman, en nú þol- um við ekki þá þriðju, af því að hún er orðin svo leiðinleg. Og nú snúum við tvær okkur til þín, Póst- ur góður, og biðjum þig að ráða fram úr þessu vandamáli okkar, hvort við eigum að segja henni það eða ekki. Vertu nú sæll, elsku Póstur minn. Tvær elskulegar vinkonur. -------Svona vinátta verður aldrei sönn vinátta nema hún sé gagnkvæm. Ég skil ekki í öðru en vandamálið leysist af sjálfu sér. Hún iná vera skyni skropp- in, þessi (ó)vinkona ykkar, ef hún finnur ekki anda köldu frá ykkur, þótt þið beinlínis spark- ið henni ekki. Þess vegna held ég, að það sé mesti óþarfi að vera að lýsa því yfir við hana, að hún sé ekki lengur í náðinni — hún hlýtur að finna það. Stundvísi... Póstur minn. Ég er að eðlisfari stundvís kona og á því bágt með að umbera ó- stundvisi hjá öðrum. Ég fer með' reglulegu millibili í hárlagningu eins og flestar konur, og fæ ég þá ákveðinn ednlivern tíma, sem ég á að mæta á. Ííg er alltaf mætt stundvislega, en það hefur aðeins komið fyrir tvisvar sinnum, að ég hafi komizt að á réttum tíma — aðeins tvisvar sinnum. Og ég hef reynt á fleiri hárgreiðslustof- um. Og ekki efast ég um, að aðrir,| liafi sömu sögu að segja af aimarsE k.onar þjónustu, enda er éa ekki|« með' þessu að ráðasl sérslaklega á| hárgreiðslustofur, heldur óstund-'* vísi. Ég hef fært þetta í mál við; forráðakonur hárgreiðslustofanna, en svarið er alltaf það saina: Ef sú, sem kemur of seint, væri látin biða, þangað til tími vinnst til að sinna henni, myndi hún móðgast og hætta að skipta við stofuna. En mér finnst þetta samt eina réttlætið. Hvert er álit þitt á bessu? Hubbí. -------Þessi viðbára forráða- kvennanna er fyrir neðan allar hellur og á ekkert skylt við góða þjónustu. Auðvitað á ekki að verðlauna þá óstundvísu með því að bíða eftir þ'eim. Ef ALLAR hárgreiðslustofur tækju upp þá reglu að láta þær konur, sem koma of seint, bíða, þar til tími gefst til að sinna þeim, myndi árangurinn ekki verða sá, að stofurnar töpuðu „kúnnum“ heldur myndi það verða til þess að temja konunum stundvísi. Og ég tek líka undir með þér: þetta á auðvitað alls ekki sérstaklega við um hárgreiðslustofur — óstundvísi, í hvaða mynd, sem hún er, er alltaf hvimleiður löst- ur, sem nær einungis að þ'rífast, vegna þcss að fólk er allt of um- burðarlynt gagnvart þessum lesti. Gras... Póstur sæll. Geturðu sagt mér eittlivaS um orðið grasekkjumaður? Dódó. --------Áður fyrr voru gras- ekkjur nefndar þær ungmeyjar, sem flekaðar höfðu verið og síð- an yfirgefnar, og þá einkum þær, sem flekaðar voru úti í náttúr- unni. Nú á döguin er talað um grasekkjur, þegar eiginmaður- inn fer að heiman um stundar- sakir og sömuleiðis grasekkju- nienn, seni sagt karlmenn, sem konulausir eru um stundarsakir. Osturinn „svitnar“ Kæri Póstur. Við borðum mikið ost heima hjá mér. N'ú erum við ekki enn búin að fá ísskápinn okkar og verðum því að geyma hann inni í eldhús- skáp eða þá úli á altani. Nú er mis- hcitt í veðri, og oft á sumrin get- ur orðið svo lieitt úti, að osturinn fer að svitna. Og þegar ég geymi hann inni í skáp, vill hann einnig svitna. Mér var kennt ráð við þessu svitabaði fyrir skemmstu, en jiað hefur sko aldeilis ekki dugað: jiað var að' vefja ostinn inn í loftþéttar umbúðir. Kannt þú nokkuð ráð við osta- svita, Póstur minn? fsskápslaus. --------Ekki annað en það að geyma ostinn á köldum stað. IMjólkurfita hefir svo lágt bræðslumark, að hún getur bráðnað við háan stofuhita. : Þess vegna þýðir ekki að setja i ostinn í loftþéttar umbúðir, nema ! þær séu hitaeinangrandi. Kæra Vika. Ég á nýlegan híl og því miður er alltaf eitthvert ólag á ganginum í honum. Ég er búinn að fara á nokluir bílaverkstæði og þeir hafa fiktað eitthvað i vélinni, en það hefur verið árangurslaust, eða jafn- vel versnað. Hvað á ég eiginlega að gera? Er virkilega hvergi hægt að fá híl stilltan i þessu bilaíándi? Halldór Jónsson. --------Þú hefur ekki fylgzt nógu vel nieð, Halldór. í Bíla- skoðuninni á Skúlagötunni get- urðu fcngið framkvæmdar hvers konar stillingar á vélinni, mælda þjöpnun og eldsneytisnýtingu, stillt framhjól og leiðrétt kveikju. Það er gert með fullkomnum tækjum og hefur gefizt mjög vel. Armæða... Ég hef oft verið rétt að því kom- inn að skrifa einhverju blaðinu smábréf um eftirfarandi, en alltaf guggnað á því, þangað til núna. Ég get naumast sagt, að ég sé

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.