Vikan


Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 27

Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 27
Gúmmíbátarnir uppblásnir í Skála- felM. Þeir eigra að veita þreyttum ferða- löngum skjól, ef þeir neyðast til að nauðlenda í óbyggðum. og hermir þannig eftir þeim óhöppum, sem fyrir geta komið í sambandi við útbúnað vélarinnar, og þjálfar starfsbræður sína í því að gera vélrænt hið eina rétta undir slíkum kringumstæðum. Á HÚDDLAUSRI VÉLINNI. Það var norðan kuldagjóstur, þegar við klifruðum um borð, og það var kalt í vélinni. Skúli dró kort af Norður-Atlantshafi, svo fóru þeir saman yfir tékklistann — það er að segja athuguðu jau atriði, sem athuguð eru í sambandi við vélina áður en sett er í gang. Loks var allt til — og þó. — Mundirðu eftir húddinu? spurði Gunnar allt í einu. — Æ, nei, það er inni. Kallaðu í einhvern strákinn og láttu hann ná í það. Það fór um mig. Ætluðu mennirnir að fara að fljúga á húddlausri vélinni? Nei, húdd á flugvél hlaut að vera eitthvað annað en húdd á bíl. Gunnar kallaði til vallarstarfsmanns niðri á flugvelli og bað hann um að ná í húddið, sem átti að vera í neðstu skúffu í skápnum inni í gamla flugmannaherberginu. Þá gat það ekki verið mjög stórt, úr því það komst fyrir í skápskúffu. Það þvældist fyrir manninum að finna rétt herbergi og rétta skúffu, en með nákvæmri „navígasjón“ frá þeim Gunnari og Skúla tókst um síðir að finna húddið. Gunnar opnaði gluggann í stjórnklefanum, teygði út handlegginn og kom inn með eitthvað hvítt, sem líktist mest rafsuðuhjálmi. Það var húddið. Og það átti alls ekki að vera á flugvélina, heldur Gunnar. Þetta er sett á flugmennina, þegar þeir eiga að æfa blindflug, til þess að þeir geti ekki horft út, heldur aðeins flogið eftir mælum sínum. — Þetta er nýtt, sagði Skúli. Áður notuð- um við bara Moggann, settum hann fyrir gluggann. En þá var náttúrlega pólitík í því eins og öllu öðru. Jóhannes Snorrason sagði einu sinni, þegar við settum Moggann fyrir framan hann: — Þetta hefur margan manninn blindað. En ég sagði honum, að það væri ómögulegt að nota Tímann, því sæju allir í gegn um hann. Framhald á bls. 42 Þeir reistu snjóhús í Skálafelli, en þegar til kom, þótti betra að gista í bátunum. Hér gægjast þeir út úr snjó- húsinu Ólafur Zoega (t. v.) og Frosti Bjarnason. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.