Vikan


Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 31

Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 31
HVAÐ UNGUR NEMUR n * ii 4 'biipnar © Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©.Hrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Þessi vika verður fremur tilbreytingarlítil, bótt ýmislegt bendi til þess, að sunnudagurinn bjóði upp á alls kyns nýstárleg ævintýri. Maður, sem vill þér vel, er að reyna að ná sambandi við þig, en það virðist genga eitthvað erfiðlega. Talan 8 skiptir unglinga afar miklu. NautsmerJciÖ (21. apr.—21. mai): Föstudagurinn er langmerkasti dagur vikunnar, en þá gerist eitthvað, sem skiptir framtíð þína afar miklu, þótt það komi reyndar ekki í ljós fyrr en I næstu eða þar næstu viku. Þér tekst með kænsku að venja einn bezta vin þinn af ljótum ósið. Farðu varlega með peninga um helgina. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Sakir ein- hvers misskilnings, verður þú, nauðugur viljugur, að taka að þér verkefni, sem þér er ekkert um. Endir þessa máls mun samt verða sá, að þú færð aukinn áhuga á málinu, og í lokin verðurðu bara feginn því, að þú fékkst að glíma við þetta. Vertu ekki svona óþolinmóður. Það flýtir sízt fyrir. Krabbamerkið (22. júni—23. júlí); Þú munt lenda í einhverjum deiium við persónu, sem þú metur ekki ýkjamikils. Láttu það álit þitt Þó ekki í ljós fyrir alla muni. Ef þú ert skynsamur og hegðar þér af kurteisi, munt þú ekki þurfa að skammast þín fyrir endalok þessa máls. Þú áttir von á ejnhverju um helgina, en einhver bið verður á Því að það verði. Ljónsmerkið (24. júlí—24. ág.): Þú þarft að leysa verkefni nokkurt, sem þér finnst í rauninni harla auðvelt viðfangs, en gallinn er bara sá, að þú nærð ekki að ljúka þessu verkefni á tilsettum tíma nema þú kveðjir þér einhvern til aðstoðar. Vertu nú ekki of stoltur til þess að biðja um hjálp. Heillatala 4. ©Meyjarmerkið (24. ág.—23. sept.): Líkur eru á því, að trúgirni þín verði til þess að þú gerir eitthvað, sem þú átt eftir að sjá mikið eftir. Það hefur borið allt of mikið á þessu i fari þínu: þú trúir fólki, sem þú metur mikils, í blindni, og verður það til þess, að þú skapar þér ekki neinar sjálf- stæðar skoðanir. Heillatala 11. . _ Vogarmerkið (24. sept.-—23. okt.): Þú munt þurfa að velja milli tveggja kosta í vikunni, og í fljótu bragði virðist hvorugur góður. En ef þú hugsar þig um vandlega, áður en þú ákveður þig, muntu komast að raun um, að annar kosturinn er sínu betri. Þú verður óvenjumikið heima við í vikunni, og er það vel. Heillalitur rautt. Drekamerkiö (24. okt.—23. nóv.): Nýjungagirni þín verður til þess, að þú gerir eitthvað, sem þú munt sjá mikið eftir síðar. Amor verður talsvert á ferðinni í vikunni, en láttu samt ekki blekkjast af skotum hans, nema þú hafir umgeng- izt viðkomandi í a. m. k. mánuð. Laugardagurinn er lang- bezti dagur vikunnar fyrir kvenþjóðina. Bog^nannsmerkið (23. nóv.—21. des): Á vinnu- stað gerist margt markvert, og eru líkur á því, að Þú vaxir þar í áliti hjá þér æðri mönnum, enda *I* áttu vel fyrir því. Þú færð einkennilega persónu í heimsókn eitt kvöldið, en þótt einkennilegt megi virðast, muntu komast að því, að Þið eigið margt sameigin- legt. Heillalitur blágrænt. Geitarmerkið (22. des—20. jan.); Líkur eru á afar skemmtilegri viku, og ber þar sunnudaginn þó langhæst. Þá muntu koma innan um margt fólk, og líkur eru á því, að þar verðir þú mið- punkturinn í einhverju. Það er þó eins og þú vantreystir sjálfum þér þessa dagana, en engin ástæða er til þess, nema síður sé. Vatnsberamerkið (21. jan.-—19. feb.): Þú skalt fara varlega með peningana í vikunni, þvl að í næstu viku mun ýmislegt koma fyrir, sem verð- ur til þess, að Þú verður að eyða miklum pening- um. Þú fékkst skemmtilega hugmynd fyrir nokkrum vikum, og nú virðist loksins vera kominn tími til að hrinda henni I framkvæmd. Fiskamerkið (20. feb.—20. marz): Það virðist ýmislegt benda til, að þessi vika verði ein sú skemmtilegasta, sem þú lifir fyrripart þessa árs. Þó virðist bera einhvern skugga á alla sæluna á fimmtudagskvöld, en það er ekki svo alvarlegt, að þú takir það nærri þér. Vinur þinn einn sýnir þér, að þú hefur vanmetið hann nokkuð. m IOUNNARSKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.