Vikan


Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 12

Vikan - 24.01.1963, Blaðsíða 12
MALVERKA ÞJOFARNIR Þeir höfðu oft komizt í hann krappan í andspyrnuhreyfing- unni, en nú þyrsti þá í ný ævintýri og þess vegna höfðu þeir stolið málverkum. Og þá kom Refurinn. - Smásaga eftir Paul Gallico. - Steinunn S. Briem þýddi. Pierre Roquebrun ofursti kom út úr húsi sínu á Rivieraströndinni einn bjartan, sólríkan morg- un og gekk niður götuna áleiðis til fornminjaverzl- unar sinnar, sem stóð við veginn milli Feneyja og Grasse í eins kílómetra fjarlægð frá þorpinu La Tourette. Margvíslegar hugsanir bærðust í hugskoti hans, meðan hann var að opna bakdyrnar á glæsilegri búðinni, rór og ánægður: það voru Sévres skraut- kerin tvö, sem hann þurfti að lokka út úr ekkju í St. Paul, Lúðvíks þrettánda saltkerið, sem hann átti að senda til London, og svo var hann ekki alveg viss um, hvort útskorna Kristsmyndin frá 13. öld, sem honum hafði verið boðin, væri ósvikin. Hann opnaði framdyrnar og tók upp morgun- blaðið sitt, Nice Matin. Og samstundis gleymdi hann öliu öðru, því að á forsíðunni blöstu við risastórar fyrirsagnir yfir frásögn af nýjasta mál- verkaráninu, sem var hið þriðja í röðinni af þjófn- uðum á heimsfrægum myndum í eigu auðkýfinga. Áður hafði málverkum eftir E1 Greco og Van Dyck verið stolið úr sveitasetri svissnesks iðju- hölds á Cap d‘ Antibes; eigandinn átti unga konu og virtist kynlega tregur til að ræða nokkuð um 12 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.