Vikan - 14.02.1963, Page 25
UNGFRÚ ÍSIAND
Nú fer senn að líða að því að fegurðarkeppnin vinsæla
fari enn einu sinni af stað, og að sjálfsögðu mun Vikan
taka sinn drjúga þátt í henni og stuðla af mætti að því að
hún megi takast svo vel, sem kostur er.
Að þessu sinni verður tilhögun keppriinnar með örlítið
öðru sniði en áður hefur verið, en reynt er á hverju ári
að haga keppninni þannig að hún verði sem glæsilegust
og reynsla fyrri ára notuð til að framkvæmd hennar megi
verða sem bezt.
f fyrra voru birtar myndir af 10 stúl'kum, sem voru
nokkurs konar frambjóðendur til keppninnar, en sex þeirra
komu aðeins til úrslita. Þessu fylgdi sá ókostur að stúlk-
urnar fjórar, sem engin verðlaun hlutu, undu hag sínum
ekki svo vel sem skyldi, og þess vegna verður nú sá hátt-
ur hafður á, að dómnefndin velur sex stúlkur tii þátttöku,
og verða birtar myndir af þeim öilum í Vikunni. Þessar
sex stúikur verða allar í úrslitum mn verðlaunin — og fá
allar verðlaun, en þau eru sem hér segir:
1. verðiaun. Ferð til Kaliforníu og þátttaka í ,,Miss In-
ternational" fegurðarsamkeppninni þar. Síður kvöldkjóll.
$ 100 skotsilfur. Einnig ferð um Miðjarðarhaf með
skemmtiferðaskipinu Arkadia.
2. verðlaun. Ferð til Miami, Florída, og þátttaka í Miss
Universe fegurðarkeppninni. $ 100 skotsilfur. Einnig ferð
til Maliorca og þátttaka í fegurðarsamkeppni þar.
3. verðlaun. Ferð til Libanon og þátttaka í fegurðarsam-
kepprii þar.
4. verðlaun. Ferð tii London og þátttaka í Miss World
keppninni.
5. verðlaun. Ferð til Norðurlanda og þátttaka í Miss
Scandinavia keppninrii.
6. verðlaun. Ferð til Norðurlanda og þátttaka í Miss
Scandinavia keppninni.
Enda þótt fyrstu og önnur verðlaunin séu vitanlega eftir-
sóknarverðust, þá er auðsætt að hin verðiaunin f jögur eru
einnig mjög glæsileg, og er því til mikils að vinna fyrir þá
stúlku, sem fær að taka þátt í keppninni og ætti þetta að
verða til þess að hver sú stúlka, sem á þess kost, láti ekki
á sér standa til þátttöku.
Það skal ítrekað að allar þær sex stúlkur, sem verða
valdar til þátttöku, verða í úrslitum og fá verðlaun, en
aðrar koma aldrei fram opinberlega, né verða birtar af
þeim myndir.
Vikan beinir þeirri áskorun til lesenda sinna, að láta
Vikuna vita, ef þeir vilja benda á einhverja stúlku til
þátttöku, og helzt ef stúlkur, sem áhuga hafa á þvi, vildu
sjálfar hafa samband við Vikuna með því að fylla út seðil-
inn sem hér fylgir og senda til Vikunnar, P.O. Box 149.
Einnig er hægt að hringja til ritstjórnar Vikunnar í síma
35320.
TILLAGA um þátttakanda í fegurðarsamkeppninni 1963.
Nafn þátttakanda ......................................
Aldur....... Heimilisfang..............................
Sendandi ..............................................
Heimilisfang ....................... Sími .............