Vikan


Vikan - 18.04.1963, Side 2

Vikan - 18.04.1963, Side 2
LAND- -ROVER Alltaff ffölgar Volkswagen ÍHtfwM iVr HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F. Laugavegi 170 — Sími 11275. 2 — VIKAN 16. tbl. í fullri alvöru: ENN RÍÐA HETJIiR UM HÉRUÐ í fornsögum vorum eru víða dregnar upp glæsilegar myndir í orði af reið goða og annarra höfð- ingja með fríðu föruneyti um héruð landsins. Er lýst reiðtygjum þeirra, litklæðum, vopnum og verjum og hvergi sparað skrúðið, enda hafa þetta eflaust verið hinir garpsleg- ustu menn í söðli, þeirra fylgjarar hinir fræknlegustu menn og fákarnir hnarreistir og fjörólmir. Fjórða hvert ár ríða enn hetjur um héruð landsins með fríðu föru- neyti. Garpslegir menn, en ekki fer þó mikið fyrir vopnum þeirra eða verjum, þar eð hvort tveggja er inn byggt, en hin skæðustu vopn og ör- uggustu hlífar eins fyrir það. Þau munu frekast sömu málmættar og sverð þau, sem geirmerktir vógust á í Valhöll forðum, því að allir rísa þeir upp er orrustu lýkur, sem fyrir þeim falla — sumir jafnvel enn sprækari á eftir. Þá eru fákarnir og reiðtygin ekki neitt hres — gljáfágaðir kadiljákar, gullbjúikkar og jagúarar, króm- skreyttir, ólmir af fjöri og renni- vakrir. Eða söðlarnir ■—• bólstraðar nælonsessur, dúnmjúkar undir bossa og dillandi við hverja hreyf- ingu gæðinganna. „Pa ridestellet skal storfolk kendes“, segir Ibsen gamli í Gaut — já, það má nú segja, maður. Og svo er það föruneytið. Þar hefur á orðið nokkur breyt- ing, sem eiginlega er ekki gott að koma orðum að — að minnsta kosti ekki ef maður vill komast hjá að móðga viðkomandi. Garparnir gömlu völdu sér til fylgdar þá helzt, sem þeir treystu bezt, til að standa við hlið sér ef til átaka drægi, beita sverði og bera fyrir skjöld, ef með þurfti. Þessir garpar, sem nú halda um héruð, virðast velja menn sér til fylgdar með tilliti til þess, að þeir dragi athyglina frá átökunum og þeim sjálfum, með .. . hvað á mað- ur að segja svo enginn móðgist — með alls konar leikaralátum, að ekki sé sterkara að orði kveðið. Þar með er alls ekki sagt að þessir fylgjarar séu nein fífl, heldur ein- ungis að þeir láti eins og fífl, en eins og allir vita er það list fyrir sig og ekki á neinna fífla færi. í hvaða tilgangi hetjurnar velja sér slíka fylgjara... jú, það væri óneitanlega skemmtilegt rannsókn- arefni. Kannski er hann sá, að á- Framhald á bls. 41.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.