Vikan


Vikan - 18.04.1963, Blaðsíða 55

Vikan - 18.04.1963, Blaðsíða 55
í leit að framandi réttum. Framhald af hls. 10. stór, 200 gr flesk, 3 tómatar eða tómatsósa, 3 dl hrísgrjón, 6% dl vatn, salt, saffran, humar, 2—300 gr rækjur og ýmis önnur skel- og krabbadýr, sem völ er á, olívuolía, persilja, soðin paprika. Saxið púrruna, laukinn og persilj- una, skerið fleskið og kjúklingana í smábita. Steikið það saman í 10— 15 mín. í heitri olíu. Bætið tómöt- unum í eftir að þeir hafa verið skornir í bita og þegar þeir eru léttsteiktir er vatninu bætt í. Þegar suðan er komin upp eru hrísgrjónin sett í. Allt saltað og látið sjóða í 20 mín. Svo eru öll hin efnin sett í (saffran til þess að hrísgrjónin verði gul), og suðan látin koma upp. Salti og papriku bætt í eftir smekk. Sett í skál og skreytt með persilju og soðinni papriku. HAWAII. Svínakótelettur. 8 kótelettur brúnaðar á pönnu, settar í eldfast fat og búin til sósa úr: 2 bollar púðursykur, % bolli ósætur ananassafi, Va bolli hunang, 2 tesk. þurrt sinnep, 6 negulnaglar, 12 heil corianderfræ, ca. 3 matsk. settar á hverja kótelettu og bakað loklaust í meðalheitum ofni í 114 klukkustund, og því sem eftir er af sósunni hellt yfir öðru hverju. Með þessu eru bornir sykraðir ban- anar: 6 banönum velt upp úr sítrónu- safa úr flösku. 2 matsk. smjör brætt á pönnu og Vi bolla af hunangi bætt í og bananarnir steiktir þar til þeir eru heitir og með eins og glassúr að utan. Það tekur nokkrar mínútur. BRASILIA. Cousccous. 2 matsk. feiti (svínafeiti eða smjör), 2 matsk. saxaður laukur, 1 hvítlaukslauf, 2 matsk. söxuð pers- ilja, 4 tómatar, 1 bolli rækjur, 5 boll- ar maismjöl, 1 tsk. salt, 2 matsk. söxuð pétursselja, 1 bolli grænar baunir, Vi pund soðin fiskflök, 3 harðsoðin egg skorin í hálft, 1 lítil dós sardínur og síað af þeim vatnið, 1 tómat skorinn í báta. Bræðið feitina á pönnu og sjóðið laukinn þar í, þar til hann er meyr. Bætið hvítlauknum, pétursseljunni og tómötunum í og látið malla þar til allt er meyrt, þætið rækjunum í og takið síðan hvítlaukinn úr pönn- unni. Blandið saman maismjölinu og saltinu og hrærið út með vatninu og sósunni af pönnunni, eftir að allt hefur verið síað úr henni og geymt. Deigið verður stíft og þykkt. Bætið persiljunni í. Smyrjið form, en ekki mjög mikið, raðið rækjun- um, hálfu eggjunum, tómatbátun- um og sardínunum fallega á botn- inn og hliðarnar. Fyllið síðan mótið með því að leggja til skiptis deig og blöndu af rækjunum og öðru af pönnunni og soðnum fiskflökunum og baununum. Lokið forminu með málmpappír og gufusjóðið í potti þar sem vatnið nær upp á hálft formið í 1—IV2 tíma. Losað úr form- inu á fat þegar það er borið fram. TTKKLAND. Dcmatsdolma. 10 stórir tómatar, 3 matsk. feiti til að steikja úr, 1 fínsaxaður lauk- ur, 2 matsk. hrísgrjón, 2 hg hakkað nautakjöt, salt, pipar, 1 hg sveppir. Skerið ofan af tómötunum, en látið lokið vera fast á einum stað. Takið innan úr tómötunum með skeið. Hitið pönnu og brúnið smjörið svolítið og bætið lauknum, hrís- grjónunum, skornum sveppunum og innihaldinu úr tómötunum á pönn- una og látið það malla þar til hrís- grjónin eru meyr. Bætið kjötsoði í ef hrísgrjónin verða of þurr. Setjið hakkað nautakjöt saman við og kryddið með salti og pipar. Fyllið tómatana með þessu og setjið þá í pott eða pönnu með þéttu loki og látið standa á mjög litlum hita í u. þ. b. hálftíma. ENGLAND. Lancashire Hot-Pot. 4 lambakótelettur, 2 lambsnýru, 2 hg buffsneiðar, 2 stórir laukar, smjör, % kg kartöflur, salt, pipar, kjötsoð. Flysjið laukana og skerið í sneið- ar. Setjið þá fyrst á pönnu til að brúnast, síðan kóteletturnar, nýrun og buffið, en nýrun og buffkjötið á að vera skorið í smástykki. Setj- ið allt í eldfast mót og kryddið inn á milli laganna, en neðst á að leggja kartöflur. Sjóðið kjötsoð á pönnunni og hellið í formið og bætið meiru soði á, þannig að formið sé fullt að þremur fjórðu af soði. Setjið þétt lok á og sjóðið í 1V-2 tíma í meðal- heitum ofni, en síðasta hálftímann formið að vera loklaust, svo að kartöflurnar verði ljósbrúnar. FRAKKLAND. Petits Fours Martiniquas. Þetta er ábætir úr: 2 egg, 30 gr hakkaðar möndlur, 1 dl sykur, 2 s’éttfullar matsk. hveiti, ljóst romm, svolítill vanillusykur, 75 gr blokk- súkkulaði, 50 gr sykraður appelsínu- börkur, sem lagður hefur verið í ljóst romm, 2 matsk. rjómi. Hrærið eggjarauður og sykur þar til það er hvítt og freyðandi, bætið 25 gr bráðnu blokksúkkulaði í. Þeytið hvíturnar þar til þær eru vel stífar og setjið þær varlega saman við, síðan möndlurnar og hveitið og gerið það einnig varlega, svo að loftið fari ekki úr hvítunum. Oft er eggjahvítunum bætt síðast í deig, en hér verður það of þykkt, ef það er gert. Setjið deigið í smápappírs- form eða vel smurð venjuleg lítil forwi. Bakið í meðalheitum ofni í ca. 10 mín. ef pappírsform eru not- uð en 15 mín annars. Þegar kakan er bökuð er hún ekki alveg þurr, heldur svolítið rök. Fylling: Bræðið það sem eftir er af súkkulaðinu í vatnsbaði, bætið í rjómanum, van- illusykrinum, 1 matsk. ljósu rommi og appelsínuberkinum, sem hefur legið í rommi. Skerið lok af kökunni og smyrjið fyllingunni á neðra lagið, setjið lokið á og skreytið með sult- uðum appelsínuberki. -k Kœlitœki fyrir kaupmenn og kaup- félög, ýmsar gerðir og stœrðir. — Leitið upplýsinga um uerð og greiðsluskilmála. H.F. RAFTÆKJA VERKSMIÐJAN HAFNARFIRÐI Simar: 50022 - 50023 - 50322 Frystikistur, 2 stœrðir 150 l og 300 l.— fyrir heimili, uerzlanir og ueitingahús. VIKAN 16. tbl. 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.