Vikan - 18.04.1963, Side 9
SMÁSAGA
EFTIR
C. S.
FORSTER
SKRIFLEG SÖNNUNARGÓGN
SKJAL I.
Hagþornagötu 17.
Iíæri herra Lacy.
EiginmaÖur minn biður mig að
skrifa yður og segja að hann
yrði rnjög þakklátur, ef þér gæt-
uð komið við hjá honum á leið
yðar til skrifstofunnar í fyrra-
málið og haft með yður öll skjöl
vegna sölunnar á Síkishólagötu
72. Honum líður betur i hand-
leggnum, en hann getur auðvitað
ekki ekið bílnum sinum ennþá,
og læknirinn segir, að það sé
vissara fyrir hann að reyna ekki
of mikið á sig, enn sem komið
er.
Virðingarfyllst,
S. L. Hart.
SKJAL II.
Hagþornagötu 17.
Kæri herra Lacy,
Eiginmaður minn myndi gjarn-
an óska að þér kæmuð aftur í
fyrramálið, þar sem hann liefur
ýmis fyrirmæli að gefa yður vegna
uppboðsins á morgun. Hann mun
verða fær um að stýra sölunni sjálf-
ur, en eins og ég hýst við að hann
hafi þegar sagt yður er lionum það
erfiðleiik.um bundið áð fara út á
morgnana. Þá þarf hann að biða
eftir að rakarinn komi að raka liann
og svo framvegis.
Virðingarfyllst,
S. L. Hart.
SKJAL III.
Hagþornagötu 17.
Kæri herra Lacy.
í þessu tilviki er það ekki við-
skiptabréf, sem skrifað er fyrir hönd
eiginmanns míns, heldur bréf frá
mér persónulega. Auðvitað getið
■þér gizkað á urn hvað það er. Ég
ætla að biðjast afsökunar á atburði
þeim, sem gerðist hérna á heimil-
inu í gær. Það var mjög vingjarn-
legt af yður að skerast í leikinn, en
þér megið aldrei gera það oftar. Þar
sem þér liafið unnið fyrir manninn
niinn í fimm eða sex ár, ættuð þér
að vita, live sk.apbráður li«»nn er og
iive oft hann segir hluti, sem hann
í rauninni ætlar sér alls ekki að
segja. í gær var þetta eðlilega erfið-
ara fyrir hann, af því að honum
finnst hann vera svo lijálparvana
með handlegginn í fatla. Hann hefur
orðið að vera svo lengi innan dyra,
og það bitnar allt á skapinu í hon-
um.
En nú mun honum bráðlega batna
í handleiggnum aftur, og þegar hann
getur farið að vera meira á ferli og
líta eftir viðskiptunum sjálfur, verð-
ur hann skapbetri. Ég varð mjög
óttaslegin, þegar þér skáruzt i leik-
inn, ég óttaðist að þér mynduð missa
atvinnuna, og það er ekki svo gott
að fá vinnu nú á dögum. Þér verðið
mjög varkár framvegis, er það ekki?
Mig skiptir þetta svo litlu máli, af
því að ég er vön þessu, og þér þurf-
ið ekki að liafa áhyggjur af mér.
Það er allt í lagi, þó að ég hafi
áhyggjur yðar vegna, af því að ég
er eldri en þér. Ég vil að þér
lofið mér því að gera ekkert, sem
gctur komið lionum til að reið-
est yður.
Yðar einlæg,
Sylvia Hart.
SKJAL IV.
Hagþornagötu 17.
Kæri herra Lacy.
Það var mjög fallegt af yður
að skrifa mér þetta vingjarnlega
bréf, cn ég er hrædd um að þér
megið aldrei skrifa mér aftur.
Eiginmaður minn vissi að það
kom bréf til mín i morgun, og
vildi fá að vita frá hverjum það
var og um hvað það var, alveg
eins og hann alltaf vill fá að vita
um bréfin mín. Ég leyfði honum
ekki að sjá það, þó að það hafi
verið mjög erfitt að komast hjá
því.
Að sjálfsögðu var ekkert í því,
sem þér hefðuð ekki átt að skrifa,
Framliald á bls. 44
VIKAN 16. tbl.
J
9