Vikan


Vikan - 18.04.1963, Side 4

Vikan - 18.04.1963, Side 4
tyeljið aðeins jjað bezta \nslocTc\jV UNDIRKJÓLAR kr. 275,00 — 34-9,50 NÁTTKJÓLAR kr. 275,00 — 525,00 undirfatnaður úr þykku nælon er bæði fallegur og svo sterkur, að hann er nær óslítandi. Tillitsleysi ... Póstur minn. Ég vinn við almenn þjónustustörf, en það er ekki það, sem er í frá- sögur færandi. Þeir, sem vinna við slík störf, vinna yfirleitt eðlilegan vinnudag, og oftast nær heldur bet- ur. Ég geri ráð fyrir því, ‘að það sé opinbert leyndarmál, að eftir lög- boðinn lokunartíma slæðast oft inn nokkrir viðskiptavinir, ef þeir bera sig nógu aumlega. Ég er ekki eig- andi þess þjónustufyrirtækis, sem ég vinn hjá og ég fæ borgað fyrir eðlilega langan vinnudag og sætti mig þess vegna ekki við ráp manna eftir lokunartíma. Og jafnvel þótt eigandanum sé e. t. v. hagnaður í því að hleypa inn nokkrum hræð- um eftir lokun þá veit ég að honum er meinilla við það — ekki af hræðslu við lagaverði og þvílíkt, heldur einfaldlega vegna þess, að hann vill komast heim til sinnar konu og barna eftir erfiðan vinnu- dag. Auðvitað þekkir hann flesta viðskiptavinina persónulega, og er því oft erfitt að meina þeim inn- göngu. En það sem ég vil segja er þetta: Viljið þið ekki, viðskiptavinir góðir, reyna að gera ykkur grein fyrir því, að þessi ýtni er ákaflega illa þokk- uð. Ég veit m. a. um mörg dæmi þess, að menn, sem neitað hefur verið um afgreiðslu kannski löngu eftir lokun, hafa móðgazt svo, að þeir hafa hætt að skipta við okkur, sagt, að við værum letingjar og örg- ustu frekjur. Því vil ég beina þeim tilmælum til viðskiptavina, að þeir reyni að meta frístundir þeirra, sem vinna að almennri þjónustu. Kær kveðja. Afgreiðslukona. Er það satt ... ? Póstur sæll. Er það satt, að klósettseturnar séu veggfóðraðar á Hótel Sögu? Anonni. Auglýsinga- kvikmyndir ... Kæri Póstur. Öllum má nú ofbjóða, jafnvel mér, rútíneruðum bíógesti. Ég á við þessar andskotans auglýsingakvik- myndir — ég veit ekki hvað oft ég er búinn að sjá sumar af þessum þrautleiðinlegu myndum í bíó. Mér er spurn: hversu langt geta kvik- myndahúsin gengið í þessum efn- um? Er það ekki skylda þeirra að auglýsa þær myndir fyrirfram, sem sýna á? Ég vil mælast til þess af þeim kvikmyndahúsum, sem tekið hafa upp þennan árans ósið, að þau auglýsi slíkt fyrirfram, byrji á því að sýna þennan ófögnuð, þannig að maður geti komið inn, þegar sjálf myndin byrjar. Auk þess held ég, að mjög sé vafasamt að ofgera bíó- gestum með þessum myndum — þá missa þær svo sannarlega auglýs- ingagildi sitt — okkar þjóðfélag er svo skelfing lítið. Ég segi fyrir mig: ég er búinn að fá mestu andstyggð á þeim vörum, sem mest eru aug- lýstar, og ég veit, að margir hafa sömu sögu að segja. Það má of mikið af öllu gera — ég veit ekki hvort er betra: of lítil auglýsing eða of mikil auglýsing — ég held jafnvel, að of lítil auglýsing sé heldur skárri fyr- ir framleiðandann. Kveðja. Jósómódó. Á hún að kjósa ... ? Póstur minn. Senn fara kosningar í hönd, og á ég þá að kjósa í fyrsta sinn. Því miður er ég vægast sagt afskaplega lítið pólitísk og hef sannast að segja ekki hundsvit á stjórnmálum yfir- leitt. Ég hef verið að ræða þetta mál við kærastann minn, sem er hápólitískur og heitur flokksmaður, og auðvitað vill hann, að ég kjósi hans flokk. En ég myndi blátt áfram skammast mín fyrir að nota at- kvæðið mitt, því að ég myndi alls ekki vita, hvað ég væri að kjósa. Og af þeirri litlu innsýn, sem ég hef inn í stjórnmál okkár, þá er ég hrædd um, að enginn flokkur sé fyllilega við mitt hæfi. Hvað segir þú um þetta mál, Póstur minn? Finnst þér ekki rétt- ast, að ég skili bara auðu? Ein í mesta vanda. --------Ef stjórnmálaflokkarnir ættu að vera fyllileg-a við hæfi manna, er hætt við að þeir væru jafnmargir og landsmenn allir. Þess vegna verða menn að reyna að gera upp á milli þessara meira og minna ófullkomnu flokka og kjósa svo þann skársta. Það er líka ábyrgðarhluti að beita ekki atkvæðisrétti sínum. — Og úr því að þetta er kærastanum þín- um svona mikið hjartans mál, finnst mér ekkert að því, að þú þóknist honum með því að kjósa flokkinn hans — einhvers hlýtur þú þó að meta skoðanir hans. Nema þá þú reynir að stofna nýjan flokk. Hver á að fægja ... ? Kæri Póstur. Maðurinn minn er alveg sjúkleg- ur bridge-áhugamaður og er alltaf í alls konar keppni og þess háttar, og þá fer auðvitað ekki hjá því, að hann kræki sér í alls kyns verð- laun. Oftast eru þessi verðlaun silf- urplettbikarar, og ég verð að segja — þótt gaman sé að sjá manninn sinn fá einhverja viðurkenningu — ^ — VIIÍAN 16. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.