Vikan


Vikan - 18.04.1963, Page 10

Vikan - 18.04.1963, Page 10
Hérna komum við svo með fermingarkjólinn, sem er sér- staklega fallegur. Þú getur auðvitað saumað hann sjálf þar sem Sniðaþjónusta Vik- unnar sníður hann fyrir þig og merkir fyrir öllum saum- um og föllum. Blússan er í 5 stykkjum, einu að framan, sem myndar tungu niður að mitti, tveimur hliðarstykkjum sem ná alveg út að rennilás í baki og 2 stykkjum í baki, slaufan er sett hjá tungunni. Og svo eru litlar ermar og rúnnað háls- mál, þessi blússa er mjög klæðileg, svo er pilsið fellt á ská að framan með djúpu falli í miðjunni og fellt að aftan, það er í einu stykki að framan og tveimur að aftan. Efni er hægt að fá í 5 gerð- um af efni. ,,Rayon-acetate“ mynztrað, til í 6 skærum lit- um og tveimur gerðum, kost- ar kr. 696,00. Silkirifs einlitt í 7 skærum litum og kostar kjóllinn kr. 454,00. ,,Organdy“ fóðrað með tafti í 2 litum kostar kr. 394,00 og poplíni í alls konar mynztri og fal- legum litum og kostar kr. Framhald á bls. 38. SEÐILLINN ER Á BLS. 52. Vikunnar ------------------\ Þriðja ferð til fjarlægra landa í leit að framandi réttuni h'V' • i ", 1 fe ÍTALÍA. Ravioli. Deig: 150 gr hveiti, svolítið salt, 10 gr smjör eða smjörlíki, 1 egg, 1 eggjarauða. — Farsið: 250 gr hakkað soðið nautakjöt, 100 gr spínat, 25 gr hakkaður laukur, 15 gr smjör eða smjörlíki, 25 gr rifinn sterkur ostur, salt, pipar og 1 egg. Deigið hnoðað vel saman og látið standa á köldum stað í nokkra tíma. Flatt þunnt út og gerðir litlir ferhyrningar, ca. 5 cm á hvern kant. —■ Farsið er búið til úr hakkaða nautakjötinu og spínatinu, sem hefur staðið stutta stund í sjóðandi vatni og síðan hakkað, söxuðum lauknum, smjörlíki, osti, salti, pipar og eggi. Lagt með skeið á hvern ferhyrning, og brotið saman utan um deigið. Soðið í léttsöltuðu vatni við lítinn hita í ca. 10 mín. Borið fram með tómatsósu. UNGVERJALAND. Ungversk lifur. 400 gr sneidd lifur, hveiti, salt, 50 gr smjörlíki, safi úr % sítrónu, 1 tsk. paprika, ca. 2% dl súr rjómi. Lifrin skorin í sneiðar og velt upp úr hveiti og salti, brúnuð í feitinni, paprikunni stráð yfir og súra rjómanum hellt yfir. Soðið í nokkrar mínútur. Grænt salat og kartöflur borið með. K f N A . Vorrúllur eða kínverskar pönnukökur. 125 gr hveiti, 2 egg, Vi 1 mjólk, 1 dl vatn, Vi tsk. salt, 1 tsk. lyfti- duft, smjörlíki. Öllu hrært saman og bakað í smjörlíkinu á pönnu eins og pönnu- kökur, en þær eiga að vera mjög þunnar og um fram allt mjög ljósar, því seinna verða þær steiktar aftur. Inn í þær má nota margs konar fyllingu, t. d. þessa: 2 dl soðið selleri, skorið í smástykki, 1 dl finsaxaðir sveppir, 1- 1 Va matsk. smáhakkaður sultaður engifer, 100 gr reykt skinka, skorin í smástykki. — Líka má nota alls konar kjöt, kjúklinga og fisk, en það þarf þá að kryddast vel og gott er að jafna það upp með kínverskri soyu. Austurlenzka kryddið, „þriðja kryddið“, gefur einnig framandi og kínverskt bragð af öllum réttum. Fylilngin er lögð með skeið á hverja köku, og annað hvort er þeim rúllað upp eða lagðar saman eins og umslag, en gott er að líma saman samskeytin með eggjahvítu. Síðan eru þær steiktar í olíu í potti og lagðar á þykkan pappír svo að feitin renni af þeim. Ef nota á þær daginn eftir eða seinna um kvöldið má steikja þær enn einu sinni í olíunni í pottinum, og er það sú rétta kínverska aðferð. Þá verða rúllurnar að vera mjög ljóssteiktar í bæði fyrri skiptin. SPÁNN. Ris a la Valencia. 4 púrrur, 2 laukar, einn hvítlaukshluti, 2 litlir kjúklingar eða 1 Framhald á bls. 55. 10 VIKAN 16. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.