Vikan - 18.04.1963, Page 37
Alilir utan hættu, suður geíur.
£ K-D-G-8-5
^ A-D-6
0 K-D-4
* K-7
A 10-7-2
G-10-9-7-3
3
9-8-3-2
6-4
8-2
G-10-8-6
D-G-6-5-4
Suður
1 tígull
4 grönd
6 spaðar
A A-9-3
V K-5-4
❖ A-9-7-5-2
* A-10
Vestur Norður Austur
pass 2 spaðar pass
pass 5 tíglar pass
pass pass pass
Flest ykkar þekkja það, að spyrja
um ása með því að segja fjögur
grönd. Þessi sagnaðferð virðist vera
mjög auðveld í meðförum, en þó er
hún harkalega misnotuð af mörg-
um spilamanninum. Sagnaðferðin
er kennd við Bandaríkjamanninn
Easley Blackwood, sem er höfundur
hennar.
Áður en þið spyrjið á fjórum
gröndum, skuluð þið spyrja sjálfa
ykkur: Eftir að makker hefur gefið
upp ása sína, eruð þið þá viss um
að óhætt sé að segja slemmuna? Sé
svarið játandi, þá skuluð þið spyrja
á fjórum gröndum. En sé svarið
neitandi, þá skuluð þið segja ein-
hverja aðra sterka sögn, sem getur
fengið makker til þess að spyrja
sjálfan um ása.
í spilinu að ofan, varð suður mjög
æstur þegar norður sagði tvo spaða
á móti opnuninni. Hann spurði strax
á fjórum gröndum, en eftir að hafa
fengið þær upplýsingar, sem hann
óskaði eftir, var hann ekki í aðstöðu
til þess að nota sér þær. Allir ás-
arnir voru fyrir hendi, en alls kyns
efasemdir sóttu að suðri. „Var
trompliturinn þéttur?“ „Jafnvel þótt
norður eigi tígulkónginn, þá getur
hann átt tvö smáspil með honum“?
„Ef til vill er tapslagur í hjarta“?
Suður komst að lokum að þeirri
niðurstöðu, að jafnvel þótt norður
ætti þá kónga sem vantaði, þá gæti
hann ekki sagt alslemmu af neinu
öryggi. Hann spurði því ekki um
kónga, heldur sagði sex spaða beint.
Eftir útspilið lagði norður spilin
upp á sjö og hélt síðan fyrirlestur
yfir suðri. Aðalinnihald hans var,
að góða dómgreind þyrfti til þess
að ákveða hvor makkeranna ætti að
spyrja á fjórum gröndum. Þogar
hægt er að koma því við, á sá, sem
á þriðju fyrirstöðurnar, að spyrja.
Þriðjufyrirstöður eru náttúrulega
drottningar eða tvíspil.
Ef suður hefði aðeins hækkað
spaðasögn norðurs í þrjá, þá hefði
norður getað spurt. Eftir að hafa
fengið uppgefna þrjá ása og einn
kóng, þá getur norður talið þrettán
slagi og þar með sagt alslemmuna
af öryggi.
BJARNI RIDDARI.
Framhald af bls. 8.
sonur Rannveigar, konu Bjarna af
fyrra hjónabandi. Steindór þessi var
fæddur í Selvogi 1777. Lærði hann
síðar skipstjómarfræði í Kaup-
mannahöfn. Hann andaðist 22. des-
ember 1825.
Af þessu má ráða, að Steindór
hefur verið með fyrstu seinni alda
skipstjórum, er stýrðu skipum í
millilandasiglingum, eða um svipað
leyti og Símon í Dynjanda í Arnar-
firði. (Skútuöldin bls. 63 og 64.
Gils Guðmundsson).
Árið 1825 missti Bjarni konu sína.
Tók upp úr því að draga heldur úr
verzlunarrekstri hans. 1831 flyzt
hann til Kaupmannahafnar. Hann
andaðist þar sumarið 1833.
Ævisaga Bjarna riddara, er um
margt merkileg. Hún segir frá at-
vinnulífi. Hún er saga örvæntingar
og sigra, manndóms og atorku. Saga
um fegurð mannlífsins. Hver sér
ekki í anda hina gáfuðu konu, þeg-
ar hún kennir bónda sínum ólæsum
að draga til stafs? Úti grenjar vetr-
arstormurinn í blásnum melnum
sem gert hefur hann um aldir. f
moldarbænum lága dreymir menn
um nýja tíma og hugsjónir fæðast.
Um Bjarna hefur fremur fátt ver-
ið ritað. Minna en skyldi. Þó er til
töfrafögur lýsing, stutt, en af mann-
legri tlifinningu slegin saman, án
þess að gleyma því praktíska og
hversdagslega. Þessa lýsingu er að
finna í Skútuöld Gils Guðmunds-
sonar. Segir þar orðrétt:
Saga hans var ævintýri líkust.
Nokkuð til í því! ★
ÚTSÖLUSTAÐIR: Verzlunin Tíbrá, Laugavegi,
Tízkuskólinn, Laugavegi 133, Holtsapótek,
Langholtsvegi, Gjafa- og snyrtivörubúðin,
Bankasíræti, Tjarnarhárgreiðslan, Tjarnargötu,
Silfurbúðin, Vestmannaeyjum.
Heildv. ÞÖRHALLUR SIGURJÓNSSON H.F.,
Þingholtsstræti 11. — Símar 18450 & 20920.
vikan 16. tbi. — 27