Vikan - 18.04.1963, Page 48
I----------
SIMCA 1000
mín í nótt og ég ætla að hugsa um
lúg.
Innilegu'stu ástarkveðjur, elskan
mín.
Sylvia.
★ Fjögra dyra, 5 manna.
★ Með sérstökum fjaðraútbúnaði fyrir hvert hjól.
★ Vélin 50 hestöfl, vatnskæld, staðsett afturí.
★ Gírkassi fjögra gíra, allir „synkroniseraðir", fyrsti gír einnig.
★ Miðstöðin mjög góð, tekur loftið inn að framan.
★ SIMCA 1000 er alveg rykþéttur.
★ SIMCA 1000 er einkar þægilegur í akstri, og lítið verður vart
við holótta vegi.
★ SIMCA 1000 eyðir aðeins 7 benzínlítrum á 100 km.
★ Kjörorð SIMCA-verksm. er: SIMCA 1000 er stór aðeins að
innan.
★ Hagsýnt fólk velur SIMCA og ekur í SIMCA.
★ SIMCA 1000 kostar um kr. 124.500,00.
Simca-umboðið
Brautarholti 22, Reykjavík. — Sími 17379.
Hvað fæsfl f Rín?
★
★
★
★
★
★
★
★
RÍN - Njálsgötu 23
Þar fást rafmagnsgítarar
frá WANDRE.
Þar fást rafmagnsgítarar
frá HÖFNER.
Þar fást spánskir gítarar
frá CARMELO CATARIA.
Þar fást saxofónar og
trompetar frá ORSI.
Þar fást klarinettar frá
VOSS.
Þar fást harmonikur frá
ZERO-SETTE, ítalíu.
Þar fást harmonikur frá
WELTMEISTER.
Þar fást mandolin og banjo
frá MUSIMA.
★ Þar fást píanó
frá BR0DRENE
CASPERSEN og
FEUERBACH.
VIÐ höfum úrvalið
VIÐ höfum 20 ára reynzlu
VIÐ pöntum hljóðfærin fyrir
yður.
Mikil verðlækkun á hljóðfærum í næsta
mánuði.
Sendum í póstkröfu um allt land.
SKJAL X.
Hagþornagötu 17.
Elskan mín, þú segir að við getum
ekki haldið þessu áfram þannig, ég
veit það, en hvað getum við gert?
Ég get ekki farið frá Georg eins og
éig hef sagt þér. Ég get ekki einu
sinni farið frá honum þín vegna,
ástin, ekki á méðan Pétur er svona
ungur. Og við myndum svelta í hel
innan hálfs mánaðar, ef ég yfirgæfi
hann. Það er eins hræðilegt fyrir
mig eins og þig, elskan, að þurfa
að búa með manni, sem ég hata
svona mikið.
Ilann var svo svínslegur við mig
í gær. Mér fannst ég geta stungið
hann með þessum spjótum hans. Þau
voru á veggnum við hliðina á mér,
en auðvitað gerði ég það ekki. Ég
er ekki irsk og ek.ki eins skapbráð
og sumir fallegir rnenn, sem ég þeklii
. . . ég á við einn fallegur maður,
clskan, því að ég þekki aðeins einn.
Ástin mín, komdu bráðum og
kysstu mig, svo að ég geti gleymt
sorgum mínum. Ég veit ekki, hvað
við getum gert, en þegar þú kyssir
mig, er mér alveg sama, og ef til vill
'kemur eitthvað það fyrir, sem kipp-
ir öllu i iag. En ef hann slær mig
aftur, þá veit ég ekki, hvað ég á
að gera, elskan. Ég gæti stungið hann
með öðru spjótinu hans, ég gæti vel
gert það. En ég má ekki hugsa uin
hluti eins og það, finnst þér það,
elskan? Þú brennir auðvitað öllum
bréfunum mínum, elskan, er það
ekki? Ég gleymi alltaf að spyrja
þig þegar þú ert hérna . . . við höf-
um svo margt að segja hvort öðru
. . . burtséð frá þvi.
Ástarkveðjur,
Sylvia.
SKJAL XI.
Elskan mín.
Fullvissaðu þig um áð þú gerir
allt eins og ég segi þér. Ég flýtti mér
svo milcið við að koma þér út úr
húsinu, að ég er ekki viss um að
þú hafir skilið það. Þú mátt ekkert
vita um þetta, auðvitað. Þú hefur
aldrei komið hingað, nerna i þau
skipti, sem Georg hefur beðið þig
að koma vegna viðskiptanna. Ég
ætla að segja að ég hafi gert það,
auðvitað. Þú hefur aldrei komið
hingað, nema í þau skipti, sem Georg
hefur beðið þig að koma vegna við-
skiptanna. Ég ætla að segja að ég
hafi gert það. Af slysni. Ég ætla að
segja að óg hafi verið að reyna að
festta spjótið uppi á veggnum og að
það hafi dottið niður og hitt hann.
Þegar ég hef farið út og Iátið þetta
bréf í póst, ætla ég að koma hing-
að aftur og öskra á hjálp.
Þú færð bréfið í kvöld, áður en
nokkur getur sagt nokkuð við þig
um þetta. Og þú verður örugglega
að brenna þessu bréfi eins og öll-
um hinum. Ég er alls ekkert hrædd
þó að hann liggi á borðstofugólfinu
núna, ástin min. Elcki einu sinni
við opin augun og blóðið allt í
kring.
Þegar allt er komið í röð og reglu
aftur, getum við gift okluir i ró og
næði, ef þú vilt mig ennþá, minn
ástkæri. Núna verð ég að liætta,
elsk,an, þvi að Pétur mun fara að
vakna af hádegisvefninum sínum og
ég verð að hafa lokið þessu og und-
irbúið allt áður en það verður. Yertu
sæll, elskan mín, ég ásaka þig alls
ekki fyrir þetta, og ég er fegin að
þú gerðir þetta. Georg fékk aðeins
það, sem hann átti skilið. Við mun-
um verða svo hamingjusöm saman.
Þin heittelskandi,
Sýlvia.
Stúlkan, sem var öðruvísi.
Framhald af bls. 13.
hann kom til að kaupa benzín. Hann
var mikið eldri en hún, og bíllinn
hans var sportbíll af allra hrað-
gengustu gerð.
Hann var vanur að fara með hana
á kappakstursbrautirnar og þar sat
hún sjálfsagt klukkutímum saman
og horfði á hann þjóta í ótal hringi
á rauðum bílnum ...
Fannst henni gaman að horfa á
þetta? Var hún dauðhrædd um að
eitthvað gæti komið fyrir hann?
Eða leiddist henni það? Elskaði hún
hann, vildi hún að hann hætti kapp-
akstri, vildi hún giftast honum?
Eða hélt hún ef til vill, eins og
þessi hraðaelskandi vinur hennar,
að dauðinn kæmi aðeins til einhvers
annars fólks ...
Hann stóð þarna í brennandi sól-
skininu og hugsaði um þennan vin
hennar, ríkan og merkilegan með
sig — og hann hugsaði um sjálfan
sig. Nítján ára og handlangari á
bifreiðaverkstæði. Heima næstum
hvert kvöld hjá litlu systkinum sín-
um, meðan mamma var á sjúkra-
húsinu. Og hann hataði hraða meira
en allt annað síðan bíll hafði ekið
á föður hans með þeim afleiðing-
um að hann dó.
Morguninn ætlaði aldrei að líða
og hitinn var kæfandi. Ströndin
fylltist af fólki, en hvergi sá hann
Tessu.
Þegar leið á morguninn kom kapp-
akstursmaðurinn í bílnum, með
tvær stúlkur í framsætinu. Hvorug
þeirra var Tessa. Hann keypti
benzín og ók svo burt með svo mikl-
um hraða, að mölin þeyttist í báðar
áttir undan hjólunum og stúlkurnar
veinuðu tilgerðarlega af hræðslu.
Voru þau ósátt? Eða hafði hún
kannski frekar kosið að eyða deg-
inum ein í friði og ró?
Hún var öðruvísi en hin, sem
hlógu hátt og gátu ekki verið án há-
værrar hljómlistar, sem mamma
hans gat ekki sofið fyrir á daginn.
— Tess — vertu svolítið rösk!
hafði hann oft heyrt þau hrópa, en
hún flýtti sér aldrei. Hún lét þau
bíða.
Hann fór að borða klukkan tólf
og gekk eftir sólbakaðri aðalgötunni
að litla kaffibarnum — og þar sá
— VIKAN 16. tbl.