Vikan - 26.12.1963, Blaðsíða 32
S-Xý.:;.':
í
■I
w4zm?$. wMí Hii
< syv ✓✓
« /
y 4 r< i;> l £ Ý
Wfk 5*f*>
í.iWJVvCíf!"'
TIL AUKINS YNDISÞOKKA
GLÓBIJS h.f. Vatnsstíg 3, - sími 11555
02 — VIKAN 51.—52. tbl.
og, þor- aer&lcl ertix j^gitrtt
Þrjú skref til að auka og vernda ungleika húðarinnar — eingöngu
Yardley. — 1. Djúpt hreinsandi krem; 2. Frískandi andlitsvatn,
sem gefur húðinni unglegan blæ; 3. Næringarkrem, sem gerir
húðina heilbrigða og silkimjúka; Síðan — lítið í spegil og sjáið
hinn undraverða árangur.
Fyrir venjulega og þurra húð: Dry Skin Cleansing Cream.
Skin Freshner. Vitamin Skin Food.
Fyrir feita húð: Liquefying Cleansing Cream. Astringent Lotion.
Vitamin Skin Food.
YARDLEY
VI Ki
II
* _
i
'Y)UP\1&P
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
.5- •' i ■ •• t
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Persóna eða málefni sem þú hefur bundið vonir
þínar við, mun að líkindum valda þér vonbrigðum.
Þér mun reynast erfitt að hafa hemil á tilfinningum
þínum og ef til vill hyggja á hefndir. En ef þú
staldrar við og íhugar málið muntu eygja góða úrlausn.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Erfiðleikar koma skyndilega og óveent. Þú getur
sótt styrk og uppörvun til margra, en þú ert lík-
legastur til að treysta á sjálfan þig. Þegar þú hefur
yfirstígið þessa erfiðleika bíður þín betri og glæstari
tímar en fortíðin hefur haft upp á að bjóða.
Tviburamcrkið (22. maí — 21. júní):
Þú átt velgengni í vændum. Þú getur náð talsvert
langt — en það er aðeins komið undir því, hve hátt
þú setur markið og hversu samvizkusamur þú er í
störfum þínum og samskiptum við aðra. En eigirðu
engin mikilvæg markmið, verður minna úr framkvæmdum.
Krabbamcrkið (22. júní — 23. júlfj:
Það verður krafist af þér fórpar, sem lítið útlit er
fyrir að verði metin að verðleikum af þeim, sem
næst þér standa. En það sem meira virði er, er að
þettta mun færa þér persónujegan ávinning og
verða þér til mikils góðs síðar á lífsleiðinni.
_ Ljónsmerkið (24. júlf — 23. ágúst):
Þetta eru heillavænlegir tímar fyrir fólk fætt frá
1.—16. ágúst, sérstaklega allt sem varðar ást og
persónulegar tilfinningar. Óeigingirni og fórnfýsi
” í þágu ástvina og heimilis munu færa þér mikla
gleði og hamingju. Þú átt skemmtilega helgi í vændum.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. septembcr):
Þú þarft að vera á varðbergi gegn freistingu, sem
verður á vegi þínum í óvæntri mynd, svo þú munt
eigi eiga gott með að átta þig á henni í fyrstu. Ef þú
gætir þess. að missa ekki stjóm á sjálfum þér og
gætir vel athafna þinna, ætti þetta ekki að ná að skaða þig.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
ÞÚ getur náð glæsilegum árangri að afloknu miklu
starfi við einhverja fræðslustofnun. Gengi þitt
er að sjáifsögðu komið undir því, hversu gaum-
gæfilega þú rækir nám þitt og hve vel þér tekst
aðí bægja frá ýmsum truflandi áhrifum.
DrckamerkiS (24. október — 23. nóvember):
Gagngerð breyting á háttum þínum, gæti haft mikla
gæfu í för með sér fyrir þig, eða jafnvel reynzt
nauðsynleg. Bægðu frá þér hégómagirni og öllum
freistingum til andvaralausra athafna sem gætu
dregið dilk á eftir sér. Vandaðu vel undirbúning framkvæmda.
©Bogmannsmerkið (24. nóvembcr — 21. dcsember);
Þú þarft að vara þig á manni meðal kunningja
þinna, sem situr á svikráðum við þig og bíður aðeins
eftir tækifærinu til þess að klekkja á þér. Gættu
þín við smjaðri og því sem í fljótu bragði kann að
virðast göfugmannlegt boð og gæfuvegur þér til handa.
Gcitarmerkið (22. descmbcr — 20.. janúar):
HUM Það verður lögð fyrir þig nokkuð ströng prófraun,
Jp sem krefst óskertrar orku þinriar og þolgæði. Þú
skalt þvi forðast trufla.nii' og áþrif sem leitt gætu
til sóunar á kröfturn þínum. Ef þú forðast einnig
ofþreytu andlega og líkamlega, þá munt þú sigra.
Vatnsberamerkið (21, janúar — 19. febrúar):
Ef þér á að takast að koma áformum þínum og
óskum í framkvæmd þarftu hjálp einhvers, sem
gegnir hárri stöðu. Þú þarft að hafa nokkuð fyrir
því að fá þessa aðstoð. Persóna sem þú kynníst
brátt, á eftir að hafa mikil áhrif á framtíð þína, ef til vill
verður um ástarsamþand að ræða.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20, ma,rz);
©Gættu þess. að vera ekki of værukær og ánægður
með sjálfan þig. Þú át,t í hættu að festast í sama
farinu og verða þar til. Ef þér finnst þetta ekki
samræmast skapgerð þinni, verðurðu að beita hörku.
Þú hefur bæði tækifæri og getu til að taka framförum.
m