Vikan - 02.04.1964, Page 8
Flugumferðastjórnin í Reykjavík gegnir
ábyrgðarmiklu starfi, og þar má aldrei
neinu skeika.
ingurinn sé 1014 millibar. Af öryggis-
ástæðum endurtekur hann alla til-
kynninguna, stefnur og tölur, en þeir
i Lundúnum staðfesta með aðeins
einu orði, „Roger“ — Móttekið, og
nú er flogið nákvæmlega eftir þeim
skipunum, sem gefnar hafa verið.
Flugstj'óranum er það ljóst, að radar-
augu eftirlitsstöðvanna fylgjast nú
með flugvélinni — og að honum
verður ekki þoluð minnsta óná-
kvæmni í sambandi við aðflugið.
Mínúlur liða og aðstoðarflugmað-
urinn ræðir stöðugt við starfsmenn-
ina í eftirlitsstöðvunum á enska
tungu. Tíminn líður flughratt, og
nú berst endanleg skipun á meðan
flugvélin lækkar sig í lofti:
BOAC 502 — Londono Approach
— turn right to heading 215 degrees
to intercept ILS localizer — report
when estabilized on localizer — run-
way 28 left — over....
Með þessari skipun er flugvélinni
leiðbeint að lækka flugið i hægri
g — VIKAN 14. tbl.
sveig yfir í nýja stefnu, 215
gráður í stefnu á ILS —
Instrument Systems-geislann,
sem leiðbeinir niður á lend-
ingarbrautina. Flugstjórinn á
svo að gera viðvart þegar
flugvélin er komin inn á
leiðsögugeislann. Hann tekur
að fylgjast með ILS-vísunnm
á tækjaborðinu og andartaki
síðar getur hann svo tilkynnt
„OK“, til merkis um að hann
sé reiðubúinn að taka á móti
næstu tilkynningu. Tíminn er
naumur, og skipanimar eru
því fáorðar. Flugvélin er nú
lágt yfir og á að taka stefnu
niður á lendingarbrautina.
Tilkynningin er svolátandi:
Boac 502 — London Approacli — You are cleared for an ILS-approach and landing
on 28 left — you are numher one in the traffic— call at the outer marker — over..
Þessi tilkynning þýðir að opin leið sé til aðflugs, og þotan sé fyrst í röðinni til
lendingar. Flugstjórinn beinir þotunni niður þennan ósýnilega svifgeisla. í næstu
andrá deplar viðvörunarljósið í stjórnklefanum vegna ytri merkjavitans og flugmað-
urinn tilkynnir: — London Approach — 502 —Outer Marker inbound — over. .