Vikan - 02.04.1964, Síða 14
Blaðað I liusateiknincgum
Það má segja, að menn hafi ekki þurft að bíða vorsins í þetta
skipti til þess að geta hafið byggingaframkvæmdir. Byggingar
virðast hafa gengið sinn vanagang, líkt og sumar væri, í allan vet-
ur. Það er ef til vill fremur af venju en nauðsyn, að margir byrja
að byggja á vorin. Ef að líkum lætur, þá liggja þeir núna á kafi
í teikningum, annaðhvort búnir að taka ákvörðun eða hálfvolg-
ir og finnst margt koma til greina. Nú viljum við reyna að hjálpa
uppá sakirnar með smávegis innleggi í málið. Við höfum verið
að fletta bókum, sem danskar teiknistofur sendu frá sér á síð-
asia ári með svokölluðum „týpuhúsum'1. Þetta eru fremur ein-
föld hús í sniðum og ættu að geta verið ódýr miðað við ýmislegt
annað. Að vísu er hér um misjafnlega stór hús að ræða og veru-
legur munur á því minnsta og því stærsta.
Einbýlishús á einni hæð eftir arkitektana Erik Andersen og Preben Hanberg.
Þeir kalla þetta „vinkiltýpu" og segja, a8 húsið henti vel fyrir fjölskyldu með
þrjú börn. Stofan í þessu húsi ætti að geta orðið framúrskarandi skemmti-
leg og veldur þar form hennar. Hluta hennar er hægt að loka af, ef
þörf þykir á og þar gæti orðið prýðilegt vinnuherbergi. Takið eftir, hvernig
arininn er byggður inn í miðju stofunnar til aðskilnaðar ó milli dagstofu
og borðstofu. Sumum þykir það galli, að koma beint inn í borðstofu úr
forstofunni, en hér er þó borðstofan mjög rúmgóð. Kyndingarklefi er í
kjallara. Lítið salerni er út af fyrir sig ó við hlið eldhússins ó svefnher-
bergjaganginum. Það er nauðsynlegt þar sem baðherbergi og þvottahús
er sameinað í eitt. Utveggurinn vinstra megin er framlengdur í fullri hæð
og myndast við það skjólgóður krókur við húsið. Á útlitsmyndinni sést, að
byggt hefur verið bílskýli hægra megin við innganginn ó teikningunni.
Svona skýli kosta aðeins brot að bílskúrsverði, eru að sumu leyti jafnvel
talin fara betur með bíla, en eru af einhverjum óstæðum ekki leyfð í
Reykjavík.
mmm|
l§iB| '- ^ :;í. fiiii *gjji
inngangur
Lítið en snoturt einbýlishús eftir arkitektinn Karl Bisgaard. Það er með þessu þokkalega, klassiska þaklagi og takið eftir því, að þakið
nær vel út fyrir á alla kanta. Það fer oftast vel þegar þessi þakhalli er viðhafður. Til þess að búa til skjólgott horn — hlutur sem Danir
virðast hugsa meira um en við — þá er bilskúrinn byggður hornrétt við húsið.
Þetta er svokallað „splitievel-hús", það er að segja: hluti þess er byggður ofan á kjallara, en hluti þess mitt á milli hæðanna, svo
gengið er hálfa hæð niður og hálfa hæð upp. Skipulagið virðist prýðilegt. í kjallara er rúmgóð geymsla, þvottahús og kyndiklefi.
14
VIKAN 14. tbl.