Vikan


Vikan - 02.04.1964, Síða 47

Vikan - 02.04.1964, Síða 47
komst hún út úr hellinum og síðan alla leið upp á yfirborðið. Hún varð að segja Slater frá þessu — og lögreglunni. Hún varð að segja alla söguna. Þá mundi dauði Joe frænda skýr- ast og þá kæmi í ljós, að þar hafði verið framið morð. Hún kom upp í turninn og lok- aði steinlúgunni á eftir sér. Hurð- in stóð opin eins og hún hafði skilið við hana. Hún gekk út, setti slána fyrir dyrnar og gekk fram hjá turninum að stígnum, þar sem Joe frændi hafði mætt örlögum sínum. Paul hafði drep- ið hann. En hvernig? Paul hafði farið inn til borgarinnar þetta kvöld. Hann hafði fjarvistarsönn- un. En á einhvern hátt hafði hann ýtt Joe frænda út í opinn dauð- ann, jafn örugglega og hann hefði sjálfur verið viðstaddur. Marian leit á stengurnar og keðjuna, sem myndaði þarna grindverk. En ef síðustu hlekk- ina í keðjunni hefði nú vantað þetta þakudimma kvöld? Mari- an gat séð það fyrir sér: Joe frændi, nærsýnn og gleraugna- laus, að fikra sig meðfram keðj- unni þar til hann kom að enda hennar, en þá átti að beygja inn á klöppina. í þess stað hafði hann fallið út fyrir brúnina og niður í myrkan sjóinn. Paul hafði ef til vill komið seint heim, læðzt upp að stígnum og fest aft- ur síðustu hlekkina . . . Marian beitti sjálfa sig valdi til þess að halda áfram. Þessi mynd, sem stóð svo ljóslifandi fyrir henni, gerði henni erfiðara um heimgönguna. Þegar hún var hálfnuð með stíginn, stanzaði hún og horfði niður. Svo beit hún á jaxlinn og horfði beint fram. En það, sem hún kom auga á þar, kom henni til að taka andköf af skelfingu. Við enda stígsins stóð maður og beið eftir hennij. Laglegur maður með bros á vörum. Hann stóð þarna og hallaði sér upp að berginu með hendur í vösum, eins og honum lægi ekkert á. Hann var nógu nærri henni til þess að geta kallað til hennar, en hann sagði ekki orð. Hann beið. Eftir henni. Paul beið eft- ir því, að ljúka því verki, sem hann hafði hafið daginn áður. Höfuð hennar virtist vera að springa af óttaslegnum ráðagerð- um. Ef hún sneri við, mundi hann elta hana út í turninn, og það sem þar gæti komið fyrir var of hræðilegt til þess að geta látið sér detta það í hug. Héldi hún hins vegar áfram, mundi hann koma á móti henni og ýta henni fram af brúninni. Það yrði auðvelt fyrir hann. Enginn var þarna nálægur. Þó var betra að ganga áfram en snúa við. Hún átti eftir aðeins nokkra metra til hans, þegar hún stanz- aði og reyndi að jafna sig. Nú gat hún séð augu hans — þau voru hörð og illileg þrátt fyrir brosið. Hann sagði enn ekkert. Var hann að bíða eftir því, að hún beygði inn á klöppina, ætlaði hann að hrinda henni þar niður? Þá sá hún einhverja hreyfingu í nánd. Andlit kom í ljós við hlið garðsins. Gamalt, veðurbar- ið andlit. Henni fannst að enginn engill gæti verið fallegri en Adams, gamli garðyrkjumaður- inn var nú í hennar augum. Hún kom ekki upp nokkru orði, en lyfti handleggnum og veifaði til hans. Hann opnaði hliðið og kallaði: -— Ég kom til að litast um eftir yður, ungfrú. Mér fannst þér vera svo lengi í burtu. En ég vissi ekki að þér væruð hér, herra Paul . . . Hann gekk til þeirra. — Þér hefðuð ekki átt að fara út á stíginn, sagði hann ásakandi. — það er of hættulegt fyrir kvenfólk, er það ekki, herra Paul? — Ég geri ekki ráð fyrir, að hún geri það oftar. Paul rétti henni höndina um leið og hún kom upp á klöppina. Hann var fölur og bros hans var þvingað. Höndin var rök, og Marian lang- aði mest til að draga að sér hönd- ina. — Langar þig ekki í drykk? spurði hann, þegar þau komu inn í húsið. Hún kinkaði kolli og hann hellti konjaki í glös fyrir þau bæði. Hún tók eftir því að hönd hans titraði, og að hennar hönd skalf líka þegar hún tók við glasinu. Hún neyddi sjálfa sig til að líta framan í hann. Það var hræðilegt að horfast í augu við morðingja. Hún tæmdi glas- ið, setti það frá sér og sneri sér að dyrunum. — Hvert ætlarðu? •—• Upp á herbergið mitt. Mér er illt í höfðinu. Það var satt. Henni fannst sem verið væri að berja þar með ótal hömrum. Hún gekk þreytulega upp stig- ann, læsti herberginu á eftir sér og kastaði sér á rúmið. Hún lá og hugsaði um allt sem hún hafði séð og upplifað þennan eftirmið- dag. Hún var hrædd og áhyggju- full. Hvert mundi næsta skref hans verða? Hvað átti hún að gera? Hvað sem hún gerði, mundi það vekja athygli hans. Hvernig átti hún að ná í Alan? Loks sofn- aði hún örmagna af þreytu. Það var orðið dimmt, þegar hún vaknaði. Hún settist upp í rúminu og fálmaði eftir slökkv- aranum á náttborðslampanum. Herbergið var eins og það átti að sér. Hún stóð upp og athugaði dyrnar. Þær voru enn læstar. Hún leit á úrið sitt, en það hafði stanzað klukkan hálf fimm. Hún vissi ekki hve lengi hún hafði sofið, en hún var sjálfri sér reið fyrir að sofna. Allt varð erfiðara eftir að myrkrið var skollið á og nú hafði hún að öllum líkind- um enga möguleika til að ná í Alan Chard eða Slater mála- færslumann. Það lék engin vafi á því, að Paul vissi að hún gerði sér ljóst hvað hann ætlaðist fyr- ir. Kannski beið hann núna skammt frá dyrum hennar til þess að fylgjast með hverri hreyf- ingu hennar ... Henni datt í hug bjallan á arinnhillunni, sem notuð var til að hringja á þjónustufólkið með, og hún studdi á hana, lengi og fast. En enginn kom. Allt var kyrrt og þögult. Hafði honum ef til vill hugkvæmzt að skera á leiðslurnar? Eða átti Amy frí í kvöld? Þögnin fór að þvinga hana. Það var eins og hún væri alein í húsinu. Tíminn leið og hún heyrði ekki einu sinni fótatak eða daufa hljómlist frá útvarp- inu. Hvað sem var — allt var betra en þessi hræðilega bið. Hún gekk aftur að dyrunum og stóð þar og hlustaði meðan hún reyndi að taka í sig hug- rekki og opna hurðina. En þegar hún hugsaði sér þann möguleika, að þá stæði hún augliti til aug- litis við Paul, gafst hún upp. Hún læddist að glugganum og reyndi að muna hvernig allt var fyrir utan gluggann hennar. Hún mundi, hve hissa hún hafði orð- ið, þegar bröndótti kötturinn VIKAN 14. tbl. 47

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.