Vikan


Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 28

Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 28
MIÐAÐ VIÐ VERÐ: ★★★★★★★ FRÁBÆR ★★★★★★ MJÖG GÓÐUR ★ ★ ★ ★ ★ GÓÐUR AiiGóÐUR TRABANT ★ ★ ★ SÆMILEGUR ★ ★ VIÐUNANDI ★ LÉLEGUR Þessa dagana, þegar það kost- ar par hundruð krónur að kaupa sér nýja skó og „skrensurinn“ með strætisvagninum kostar fjórar krónur, er ekki nema von, að menn reki upp stór augu, þeg- ar hægt er að fá nýjan bíl — nýjan — fyrir 65 þúsund krónur. Það var svo sem auðvitað, að slíkur gripur kæmi frá landi, þar sem misskipting auðsins er ekki til og hagur neytendans er öllu ofar settur, og samkvæmt orð- anna hljóðan ætti það að vera trygging fyrir því, að bíllinn sé níðsterkur og bili mjög sjaldan, en ef það kæmi fyrir, kosti vara- hlutir í hann sama og ekki neitt. Hins vegar eru menn á íslandi svo gerðir, að þeir líta ílestar framleiðsluvörur fyrrgreindra landa hálfgerðu hornauga, sum- ir með fyrirlitningu. Það er kannski ekki nema von, þegar þessi ódýri bíll á í hlut — hálf- bróðir hans, plastbíllinn P 70, er enn ekki gleymdur hér. Og hér kemur þessi, með tvígengis- vél, sem lætur í eins og tómum niðursuðudósum sé velt í poka niður fjallshlíð, og yíirbyggingu úr plasti. En menn skyldu var- ast að fella sleggjudóma um nú- tímann, byggða á fortíðinni, án þers að kynna sér nútímann vand- lega fyrst. í gömlu plösturunum var plötuplast á trégrind. í þessum er trefjaplast á stalgrind. Og gæði trefjaplastsins í bílaiðnaði fram yfir plötuplast eru varla sambærileg. Trefjaplastið er miklu sterkara og betra viður- eignar, t.d. í réttingu og bætingu. Mér er sagt, og ég hef ekki ástæðu til að rengja það, að Trabant bíll, sem ekið var i hlið- ina á hér í vetur, hafi verið rétt- um með því að bregða heitu straujárni innan á beygluna, og strauja hana hreinlega út aftur. Um tvígengisvélarnar er svo sem ekki nema gott að segja, þegar menn hafa sætt sig við hljóðið í þeim. Satt að segja kom Trabant mér alveg á óvart. Mér datt ekki í hug, að hann væri: a) svona lipur í akstri, b) ynni svona vel, c) lægi svona vel, d) að hraða- mælirinn á svo til nýjum bíl væri dottinn úr sambandi, e) að miðstöðvarstillarnir lægju slitnir í hanzkahólfinu, f) að sólskygg- ið væri dottið af. Hann er lipur og liðugur innan- bæjar. Hann leggur sæmilega vel á, og tekur sæmilega vel við, og gírskiptingar ganga mjög vel og lipurt. Hann er fjögra gíra, skipt- ur með handfangi í borðinu, all- ir gírar samstilltir. Með því að gera ekki nema rétt hreyfa hann af stað í fyrsta og skipta svo strax í annan, má segja, að hann sé allsæmilegur í viðbragði. Brems- urnar þurfa ekki mikið átak og vinna ágætlega. Það fer ágætlega um mann undir stýri, og ég myndi telja gott að aka þessum bíl, ef stefnuljósin slökktu sjálf á sér að beygju lokinni. Hann liggur prýðilega og er furðu þýð- ur. Vinnslan er mjög viðunanleg, ekki hvað sízt, þegar þess er gætt. að hestarnir undir húddinu eru aðeins 23 og aðeins í tveimur strokkum — en að vísu tvígeng- isstrokkum. •— í húddinu er ann- ars mjög þokkalegt um að lit- ast og virðist sæmilega greitt að komast að flestu; mótorinn er nokkuð til hliðar og á stærð við venjulega saumavél í tösku. Það er merkilegt við hann, að kveikja á honum er alls engin, heldur aðeins sitt háspennukeflið fyrir hvorn strokk og platínur í enda keflanna. Mótorinn er sagður geta gengið, þótt annað keflið eyðileggist. Þarna eru svo ýmsir aðrir hlutir, svo sem gír- kassi og einhvers staðar á þess- um slóðum er drifið, því bíllinn er framhjóladrifinn. Að aftan er svo farangurs- geymsla — hið mesta gímaid mið- að við stærð bílsins, og opnast vel. Þar við bætist svo, að and- artaksverk er að kippa aftursæt- inu úr, og er þá flutningsrúm í allri farangursgeymslunni og húsinu fram að framsætum. —- Sætin eru annars góð að fram- an, tveir stólar heldur þægilegir, en sófi að aftan, la la fyrir tvo, en fleiri mega heldur ekki vera þar. Rúm er all gott frammi í, en fótalöngum myndi trúlega eym- ast, ef þeir þyrftu lengi að sitja aftur í. Bíllinn er klæddur að innan með taui og plasti. Mælaborðið er akkúrat ekkert. Hraðamælir er að vísu — þ.e.a.s. að minnsta kosti svoleiðis skífa, en nálin þar hreyfðist ekki, þótt ég þendi bilinn eins og ég þorði, og hann er sagður geta komizt í 100 og þola 90 km hraða að staðaldri. Neðst á mælaskífunni eru tvö ljós, annað gefur til kynna að gleymzt hafi að slökkva á stefnuljósunum, en hitt að nú. sé, eitthvað bogið við rafmasnið. Smurmæli þarf engan né Ijós, því smurolían er sett saman við bensínið. Yzt á þessu borði vinstra megin eru fáeinir smellu- rofar, fyrir Ijós, þurrkur o.s.frv. Rúðusprauta er engin, en raf- magnþurrkurnar sýnast vera all góðar. Miðstöðin er allgóð, og er henni stjórnað með fáeinum handföngum, sem kvað vera kom- ið fyrir undir mælaborðsnefn- unni, en voru i þessum bíl, sem fyrr segir, í hanzkahólfinu, ásamt benslnmælinum, sem á venjulegu máli myndi kallast tommustokkur. Og er raunar óþarfur, því varageymir er á bíln- um, sem hægt er að grípa til, ef aðalgeymirinn þurrkast. Ég hef ákveðið, að gefa þess- um bíl fjórar stjörnur, sem þýðir „allgóður, miðað við verð“. Reynslan getur átt eftir að breyta stjörnufjöldanum eitthvað, af eða á, en ég treysti mér ekki til að segja í hvora átt. En óneitan- lega er ég hræddur við, hve mik- ið átak og skell þarf til að loka á honum hurðunum, húddinu og skottinu. Við þau ógnarátök fer varla hjá því, að eitthvað losni eða brotni fyrr en síðar. S. Ekki lengur tilvíljun Þúsundir kvenna um heim alian nota nú C. D. INDICATOR, hiS svissneska reikningstæki, sem reiknar nákvæmlega út l>á fáu ðaga í hverjum mánuði, sem , frjóvgun getur átt sér stað. Læknavísindi 56 landa róðieggja C. D. INDICATOR fyrir heilbrigt og farsælt hjónaband, jafnt ef barn- * eigna er óskað sem við takmarkan- ir þeirra. Sendið eftirfarandi afklippu ásamt svarfrímerki til j C. D. INDICATOR, pósth. 1238, Rvk. Sendið undirrit. upplýsingar yðar. Nafn ............................. Heimili........................... (Vinsamlegast skrifið með bókstöfum) 2g — VTKAN 19. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.