Vikan


Vikan - 07.05.1964, Side 39

Vikan - 07.05.1964, Side 39
að þér gerðuð það í ákveðnum tilgangi, að haga orðum yðar þannig?“ spurði Blacklock skip- stjóri undrandi. Það glóði á eldinn í vindli lá- varðarins. „Ég fullyrði ekki að ég hafi vitað til hvers mundi drága, en ég þóttist viss um, að til nokkurra atburða mundi draga. Þetta var hrottaskapur, það játa ég, en við vorum að lenda í sjálfheldu". Það glóði enn á eldinn. „Meðal annarra orða — ég er mjög ánægður með hvernig þér leidduð það mál til lykta“. Þetta var viðurkenning, sem margur nýr skipstjóri hefði orð- ið stoltur af, en Blacklock skip- stjóri var ekki einu sinni viss um hvort skilja mætti þau sem við- urkenningu. Þetta höfðu verið hrottalegar aðfarir, eins og lá- varðurinn raunar gerði sér sjálf- ur ljóst. Einhliða beiting ofur- eflisins og valdsins, þar sem sig- urinn vannst fyrir samvizkulaust hrekkjabragð. Það var eins og Calderstone lá- varður fyndi á hér hugsanir hans. „Við áttum ekki annars úrkosta“, sagði hann. „Þeir svifust einskis". Kannski var það gild afsökun. Skipið varð að láta úr höfn. „Mér þykir að minnsta kosti vænt um, að ég skyldi geta orðið að liði“, mselti lávarðurinn enn. Það tók að kólna. Blacklock skipstjóri hneppti að sér yfir- höfninni. írlandshaf fyrir stafni, lilikað mánaskin'i. Og' „Góðvon“ hafði látið úr höfn samkvæmt áaetlun. Það mátti kallast sæmi- legt dagsverk. En fyrir handan írlandshaf tók við vítt úthaf, og handan þessa dags víður sær daga og stunda. Og það gat brugðið til beggja vona um sigl- inguna. Calderstone lávarður, sem gerði sér grein fyrir þögninni, leit til skipstjórans, sigurreifur enn. „Ég geri ráð fyrir að yður kunni að þykja þetta heldur harðar aðfarir við að stjórna skipi“, sagði hann. Blacklock skipstjóri varp önd- inni. Hann hugsaði sitt, og þar sem hann stóð í brúnni, þurfti hann ekki að dylja meiningu sína fyrir neinum, jafnvel ekki forseta skipafélagsins. „Fjandans harðar aðfarir við að stjórna hverju sem er . . .“ -Ar FLJÖTANDI HÓTEL Á HLfÐARVATNI Framhald af bls. 7. hraunskálum og ])ar verða ágæt- ir baðstaðir. Þetta sést vcl á mynd, sem Þorsteinn Jósefsson hefur tekið þarna við vatnið. Við höfum samið við ábúendur jarðanna Hraun.holts og Hlíðar um full réttindi fyrir okikar fólk og meira að segja getum við livenær sem er gefið gestum okk- ar kost á reiðhestum, já meira madur dagsi KLÆÐIST FÖTUM FRÁ OKKUR

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.