Vikan - 07.05.1964, Page 43
vinur minn gerði það góðverk, að
hann greiddi árgang af Readers
Digest“ og lét senda mér hann
sem gjöf. Þar las ég svo grein
um það, hvernig hægt væri að
hvíla sig með því að nota hverja
litla stund sem gæfist, til að
sofna. Og svo var því lýst hvernig
hægast væri að venja sig á það.
Ég sá strax hvað þetta mundi
vera mér nauðsynlegt, en hló
samt með sjálfum mér yfir þeirri
bjartsýni, að mér skyldi detta í
hug að ég gæti setzt í stól eða lagt
mig upp í dívan á daginn og sofn-
að eftir eigin skipun. En samt
fór ég að reyna, og ekki leið á
löngu þar ég komst upp á lagið,
og nú er svo komið að þó ég
eigi ekki nema fimm mínútur eða
svo, þá get ég setzt í stól eða
lagt mig á leugbekk og sofnað
á stundinni. Og þetta hefur alveg
bjargað mér. Það veitir svo ótrú-
lega mikla hvíld að festa aðeins
blund í nokkrar mínútur mitt í
önnum dagsins, og jafnast á við
margra tíma svefn á nóttunni".
Síra Árelíus leit laumulega á
armbandsúrið sitt, og ég sá að
klukkan var að verða sex, en þá
átti hann að hafa tíma með ferm-
ingabörnum sínum úti í kirkju.
Við urðum því að Ijúka samtal-
inu en myndatakan var alveg eft-
ir, og hún mundi taka nokkrar
mínútur.
En Árelíus vildi ekki að börn-
in biðu eftir sér í óvissu, og sendi
þess vegna út í kirkju til að biðja
þau afsökunar, en hann mundi
koma eftir nokkrar mínútur.
Svo var tekið til við að mynda,
og presturinn rak á eftir, því
hann var kominn í tímahrak eins
og oftar. Þegar hann fór út í
kirkjuna, tók hann með sér heil-
an hlaða af stílabókum, sem ferm-
ingarbörnin áttu. „Ég læt þau
skrifa ýmislegt í þessar bækur
og líma myndir í þær. Það festir
þeim betur í minni það sem við
tölum um, og hefur meiri áhrif.
Sum barnanna eru sérstaklega
dugleg við þetta, sérstaklega
stúlkurnar, og ég er mjög hrif-
inn af árangrinum".
Við urðum samferða í kirkjuna,
þangað sem öll börnin biðu stillt
og prúð. Þau stóðu öll á fætur
þegar við gengum inn, og Árelíus
settist við hljóðfærið. Síðan var
sunginn einn sálmur, en síðan
höfð yfir trúarjátningin.
Það var kominn tími fyrir okk-
ur að fara, en fyrst vildi Árel-
íus sýna okkur kirkjuna, sem
ekki er fullbyggð ennþá, en er
mjög smekkleg öll að innan, enda
hefur Sveinn Kjarval séð um
innréttingu hennar á sinn smekk-
lega hátt. Við vildum ekki tefja
lengur en nauðsynlegt var, því
að við vissum að strax og tíman-
um með börnunum væri lokið,
þurfti Árelíus að hringja út á
land til að reyna að hafa sam-
band við fjölskylduföður héðan
úr bænum, sem hafði stungið af
frá konu og fjórum börnum, og
DIVISION OF THE SIEGLER CORPORATION
SJÓN VARPSTÆKI
★ Taka á móti útsendingum á baeði amerísku og
evrópsku kerfi. ★ Teak kassi. ★ Tveir hátalarar.
★ 23" myndalampi af nýjustu gerð gefur skýrari
mynd. ★ Tækin eru sérstaklega gerS fyrir 220 v. 50
rið með netspenni, sem kemur í veg fyrir titring á mynd-
inni. ★ Engar prentaðar rásir.
Fullkomin viSgerSa- og varahlutaþjón-
usta - Hagkvæmir greiSsluskilmálar
mft * DUAl A. 0. C.
P* mm cm i, f,
W 'mmomm msicrm^
f! 4 rtm mwwAstE smmmm
ÚTSÖLUSTAÐIR:
RADIOVINNUSTOFAN
HEIMILISTÆKI S. F.
HAFNARSTRÆTI 1 - SÍMI 20455.
Vesturgötu 17 — Keflavík
HARALDUR BÖÐVARSSON & CO.
Akranesi
RADIOVIRKINN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10.
VERZL. VALDIMARS LONG
Hafnarfirði — Sími 50288.
Þriðja heftið af Nýjum danslagatextum
var að koma út. í heftinu eru aðeins
íslenzkir textar við öll nýjustu lögin.
Beatles — mynda- og danslagatexta-
heftið er fyrir nokkru komið út í því
eru 23 textar við Beatleslög og 23
myndir af þessari heimsfrægu hljóm-
sveit.
Sendið kr. 25,00 fyrir hvoru hefti og
þið fáið það sent um hæl burðargjalds-
frítt.
NÝIR DANSLAGATEXTAR
PÓSTHÓLF 1208 — KVÍK.
VIKAN 19. tbl. —