Vikan


Vikan - 13.05.1964, Síða 18

Vikan - 13.05.1964, Síða 18
Iþessum kyrru hljóðu götum kvölds- ins er einsog skuggarnir séu bún- ir að koma sér fyrir líkt og þeir ætli að verða eilífir þar, einsog borgin er eilíf í kynningum ferða- skrifstofanna. Og ferðamaðurinn heyr- ir fótatök sín einsog tempómæli sem öðlast sjólfstæði með lótlausan dyn umferðarinnar ó bak við, fjarri. Svo stanzar hann og horfir á mynztur fyrir fótum sér á gamalli steinlögn strætis- ins. En húsin halda niðri í sér and- anum til þess að vekja ekki hvert annað í þrengslunum og í þessu mikla afnámi tímans. En fyrr en varir skellur tíminn aftur á með fjórhjólaðri skotflaug sem hvín fyrir hornið á tveim hjólum með blind- andi Ijósum úr sínum óðu vélaugum og höggdeyfirinn einsog grimmdar- lega samanbitinn munnur með tveim tönnum utan á samanpressuðum króm- gljáandi vörum. Hinn rómantíski ferða- maður snarvindur sér úr farbraut þess- arar snúningslipru bifreiðar og kýs að hugsa sér að þarna sé einn Þjóðverjinn ennþá til þess að halda í rómantiska drauminn. Barbari, segir hann og prófar hvernig það hljómar upphátt í end- urheimtri þögninni þegar bifreiðin er horfin fyrir næsta horn. Germanir hafa alltaf verið kallaðir barbarar á Italíu allt frá því að þeir fóru að renna nið- ur hlíðar Alpafjalla með orgi og grenj- an hundrað árum áður en Kristur fædd- ist svo Maríus ræðismaður mátti láta hífa sig upp úr hægindum og yfirgefa átveizlurnar góðu í Róm þar sem fjöð- urstafurinn gegndi svo mikilvægu hlut- verki, og fara í broddi hersveita sinna norður á Pósléttu til að berja niður Simbra og Teftóna, þessa tvo germ- önsku þjóðflokka: í barbari. Utan í háum múrvegg sem lauf- fléttur teygjast fram af með kyrrlát- um skugga sínum, þar stendur gos- brunnur með seytlandi vatni og þess músik, blágrænt spilar vatnið Ijósdepl- unum til og frá [ steinkeri og bunar RÖMVERSKAR SMAMYNDIR Efftír Tlior Vilh|álmsson úr munni nautnatvíbræðra og stein- andlitin horfa ósvífin og storkandi gegnum aldirnar á skammlífan föru- mann kvöldsins og stundlegan. í svip þeirra er úrkynjuð slægð, klók- skapur ræktaður í lastabælum. Tvö andlit. Vatnsbuna úr munnum beggja. En úr öðrum munninum eru taumarnir tveir því að varirnar hafa brotnað og bunan klofnað í tvennt hjá öðrum. Kannski hefur einhverjum hreinlynd- um menningarpílagrím blöskrað ósvífn- in í þessum andlitum tvö þúsund ára gömlum. Kannski var norrænum mynd- höggvaranema storkað í sinni hreinu sál norræns sveitalífs svo hann missti á sér stjórn og keyrði hamarinn á þess- ar nautnalegu fordjörfunarvarir og mölvaði svo glottið breikkaði en hann henti frá sér hamrinum og hljóp æpandi á norsku út götuna. Hjelpe mig Olav den hellige ut av denne forhekselsens kokende gryte. Carlo Levi — í hinni hörðu samkeppni menningar- pólitíkurinnar. Jg — VIKAN 20. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.