Vikan - 13.05.1964, Qupperneq 40
1
Utvegsbanki
íslands
Reykjavík - Akureyri - ísafirði -
Siglufirði - Seyðisfirði - Vest-
mannaeyjum - Reykjavík.
★
Annast öll venjuleg bankaviðskipti
innanlands og utan.
★
Tekur á móti fé í hlaupareikning og
til ávöxtunar með sparisjóðskjörum
með og án uppsagnarfrests.
★
RÍKISÁBYRGÐ ER Á ÖLLU SPARI-
SJÓÐSFÉ f BANKANUM
★
Ú T I B Ú ER í REYKJAVÍK
Á LAUGAVEGI 105.
VIK
ii
* _
4
’toupnap
Stjörnuspáin g-ildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú ert að fikra þig áfram með eitthvað nýtt. Lang-
bezt er fyrir þig að leita ráða, því þú veizt, hvar
þú getur fengið góða hjálp. Sennilega verðurðu fyrir
einhverjum fjárútlátum í sambandi við eignir þín-
ar. Vertu mjög varkár.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
i^M Þú lendir £ sennu við einhvern innan fjölskyldunn-
II ar og nú skaltu ekki láta undan, því þú ert í full-
WUT um rétti. Þú hefur góðan tíma til að sinna því,
sem þig langar mest til. Þú verður heppinn í við-
skiptum, seinni part vikunnar.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Nú skaltu drífa þig í að koma verkum þínum í fram-
K kvæmd. Ef þú átt frumkvæðið, er ekkert liklegra,
en að þú fáir að ráða tilhögun þeirra. Þú verður
að eyða nokkrum tíma til að hjálpa vinum þínum.
Segðu ekki neitt, sem þú getur ekki staðið við.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Forvitinn náungi fer í fínu taugarnar á þér, en þú
kannt gott ráð og skalt nota það. Þú færð góða
hugmynd um skemmtun, sem í vændum er, berðu
hana undir vini þína. Þú þarft sennilega að snúast
talsvert i kringum fólk, sem er þér ekki um geð.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Þú verður fyrir talsverðu happi þótt það færi þér
kannske ekki auð. Þú eignast nýjan kunningja, sem
þú skalt vera dálitið varkár gegn. Dveldu sem mest
heima hjá þér og láttu fara vel um þig, það líður
ekki á löngu þar til þú færð ótal verkefni.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
ODeilumál nokkurt er reis fyrir nokkru sökum mis-
skilnings, leysist nú upp og eru allir aðilar ánægðari
en áður. Þú færð gott tilboð, sem getur orðið til
að hressa upp á þig andlega og likamlega. Tefldu
ekki á tvær hættur.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Óvænt útgjöld munu gera þig áhyggjufullan, en þú
getur huggað þig vlð, að þér berast bjargráð, sem
bæta mikið úr fyrir þig. Þú skalt reyna að gera
yfirlit yfir, hvert peningarnir þínir fara, svo þú sért
ekki svona undrandi yfir blankheitum þinum.
Drekamerkið (24. októbcr — 22. nóvembcr):
Þú ert ánægður með lífið og tilveruna og flest geng-
ur þér í haginn. Þú skalt reyna að njóta félagsskap-
ar kunningjanna, svo sem unnt er. Þú færð bréf,
sem skýrir þér frá gleðitíðindum i sambandi við
persónur, sem þér þykir mjög vænt um.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. descmber):
©Þú ættir að létta undir með persónu, sem þú þekkir
vel, og er mjög einmana. Þú hefur heldur lítið fyrir
stai'ni. Drífðu þig af stað og afgreiddu það, sem þú
hefur saltað langa lengi, það verður þér mikill
léttir. Festu ekki kaup á neinum farartækjum.
Steingeitarmcrkið (22. desember — 20. janúar):
Þú verður fyrir talsverðri gagnrýni. Reyndu að hag-
nýta þér hana að einhverju leyti, því jafnvel þú
kemur auga á nokkur sannleikskorn þar á meðal.
Kunningi þinn hefur fengið mjög gott starf eða
tilboð, en þú mátt ekki láta neinn finna að þú öfundir hann.
Vatnsberamcrkið (21. janúar — 19. febrúar);
Óheilindi félaga þíns fá þig til að breyta ákvörðun-
Æ'T' B um þinum. Þú kynnist nýjung á sviði áhugamála
þinna, sem þú verður mjög upptekinn af. Taktu
þeim ráleggingum, sem þér eru gefnar, og leggðu
ekki út í neitt á eigin spýtur, fyrr en þú ert 100% viss.
OFiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Þig dauðlangar til að breyta eitthvað til, en brest-
ur kjarkinn er á herðir. Láttu þetta ekki á þig fá,
því þér berast góð tækifæri og allt batnar af sjálfu
sér. Þú neyðist til að fara á bak við yfirmann þinn,
sökum skapbresta hans.
_ VIKAN 20. tbl.